Skip to main content
1. október 2024

Tvö verðlaunuð fyrir frábæran árangur í stærðfræði

Tvö verðlaunuð fyrir frábæran árangur í stærðfræði - á vefsíðu Háskóla Íslands

Hallgrímur Haraldsson og Hildur Gunnarsdóttir, nemendur á þriðja ári í stærðfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, hafa hlotið viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Sigurðar Helgasonar prófessors fyrir frábæran námsárangur. Heildarupphæð verðlaunanna nemur 11.500 bandaríkjadölum, jafnvirði tæplega 1,6 milljónum króna. 

Hallgrímur Haraldsson er á þriðja ári í BS-námi í stærðfræði. Þau eru teljandi á fingrum annarrar handar námskeiðin sem hann hefur ekki fengið 10 í og þá hefur einkunnin verið 9,5. Hallgrímur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 2022. Hann tók þátt í stærðfræði- og eðlisfræðikeppnum framhaldsskólanna í menntaskóla og síðustu árin hefur hann aðstoðað við framkvæmd  keppna og þjálfun keppenda. Síðasta sumar var Hallgrímur aðstoðarmaður í rannsóknaverkefni sem naut stuðnings RANNÍS. Á yfirstandandi misseri er Hallgrímur í skiptinámi við Kaliforníuháskóla í Berkeley. Að loknu BS-námi stefnir hann á doktorsnám í Bretlandi eða vestan hafs.

Hildur Gunnarsdóttir er á þriðja ári í BS-námi í hagnýttri stærðfræði. Eins og Hallgrímur hefur hún fengið 10 í einkunn í svo til öllum námskeiðum sem hún hefur tekið við HÍ. Hildur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 2022. Líkt og Hallgrímur þá tók Hildur þátt í stærðfræði- og eðlisfræðikeppnum framhaldsskólanna en frá því að hún innritaðist í hagnýtta stærðfræði hefur hún komið að kennslu bæði í framhaldskóla og við Háskóla Íslands. Þá kenndi Hildur í sumarbúðunum Stelpur diffra í Háskóla Íslands á liðnu sumri.  Sumurin 2023 og 2024 starfaði hún við rannsóknir hjá Íslenskri erfðagreiningu og á yfirstandandi misseri er Hildur í skiptinámi við Trinity College í Dyflinni. Að loknu BS-námi stefnir hún á frekara stærðfræðinám. Þess má geta að systir Hildar, Vigdís Gunnarsdóttir, hlaut verðlaun úr Verðlaunasjóði Sigurðar Helgasonar árið 2021.

Um sjóðinn

Verðlaunasjóður Sigurðar Helgasonar prófessors veitir viðurkenningar til stærðfræðinema og nýútskrifaðra stærðfræðinga fyrir góðan námsárangur og styrkir þá til frekari afreka í námi og rannsóknum.

Stofnandi sjóðsins er Sigurður Helgason. Hann var prófessor í stærðfræði við Tækniháskóla Massachusetts (MIT) í Boston. Sigurður fæddist á Akureyri 30. september 1927 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1945. Eftir árs nám við verkfræðideild Háskóla Íslands hélt Sigurður til Danmerkur og lauk Mag.Scient.-prófi í stærðfræði 1952 frá Kaupmannahafnarháskóla. Hann hélt þá til frekara náms við Princeton-háskóla í Bandaríkjunum og lauk þaðan doktorsprófi 1954 og kenndi síðan við MIT, Princeton-háskóla, Chicago-háskóla og Columbia-háskóla. Sigurður varð prófessor við MIT árið 1965 og eftir hann liggja fjölmargar bækur og vísindagreinar um stærðfræði. Hann var heiðursdoktor við Háskóla Íslands frá árinu 1986 og einnig heiðursfélagi Íslenska stærðfræðafélagsins. Sigurður lést á síðastliðnu ári.

Styrktarsjóðir á borð við Verðlaunasjóð Sigurðar Helgasonar eru mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands. Skólinn hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga á undanförnum árum en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að hvetja nemendur skólans til dáða, efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.
 

Fulltrúar styrkþega ásamt fulltrúum úr stjórn sjóðsins og rektor HÍ