Þarftu hjálp við köngulóafælni eða félagskvíða?

Stúdentaklíník Sálfræðideildar Háskóla Íslands leitar að um 20 einstaklingum með köngulóafælni og 20 einstaklingum með félagskvíða til að hefja meðferð sem fyrst.
Hugræn atferlismeðferð við köngulóarfælni fer fram í einni 2–3 klukkustunda lotu að loknu matsviðtali.
Hugræn atferlismeðferð við félagskvíða fer fram í 10–12 meðferðatímum sem eru 60-90 mínútna langir. Greiningarferlið er eitt til tvö 60–90 mínútna löng viðtöl.
Þjónustan er í boði fyrir nemendur og starfsfólk Háskóla Íslands og börn þeirra. Meðferðin fer fram í Árnagarði milli kl. 8 og16.
Meðferðina veita framhaldsnemar í klínískri sálfræði undir handleiðslu reyndra sálfræðinga.
Verð fyrir hvert viðtal er 2.500 krónur. Allar upplýsingar eru meðhöndlaðar í fyllsta trúnaði.
Sækja um hér:
Stúdentaklíníkin býður einnig meðferð við:
- Þunglyndi
- Átröskunum
- Öðrum kvíðaröskunum
- Svefnleysi
- Misnotkun áfengis- og vímuefna
