Styrkir til eflingar náttúruvísinda við Háskóla Íslands

Minningarsjóður Aðalsteins Kristjánssonar til eflingar náttúruvísinda við Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að veita nemendum og/eða fræðimönnum við Háskóla Íslands styrki til rannsókna í náttúruvísindum.
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2026.
Að þessu sinni verða veittir styrkir til doktorsnema í náttúruvísindum við Háskóla Íslands sem þurfa að bæta fjórða árinu við án öruggrar fjárveitingar.
Heildarfjárhæð úthlutunar er allt að kr. 6.000.000.
Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
- Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
- Upphaf doktorsverkefnis (mánuður, ár).
- Heiti verkefnis, markmið og vísindalegt eða hagnýtt gildi.
- Útdráttur: Hnitmiðuð lýsing á verkefninu (hámark 150 orð).
- Veigameiri lýsing á verkefninu, sérstaklega framkvæmd þess hingað til miðað við upphafleg markmið (hámark 450 orð)
- Hvernig styrkurinn verður notaður til að ljúka verkefninu ásamt tíma- og fjárhagsáætlun.
- Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning.
- Samstarfsaðilar og aðrir styrktaraðilar verkefnis ef við á.
- Nöfn, símanúmer og netföng tveggja mögulegra meðmælenda.
- CV og ritaskrá (fylgiskjal).
Hámarkslengd umsóknar skal vera þrjár síður fyrir utan fylgiskjöl. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Styrkþegi skal gera grein fyrir stöðu verkefnisins að ári liðnu. Ef styrkur er ekki nýttur í samræmi við umsókn skal honum skilað.
Áætlað er að úthlutun fari fram í apríl 2026.
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands: sjodir@hi.is.
Sjóðurinn var stofnaður 1978 með dánargjöf Aðalsteins Kristjánssonar, er bjó lengstum í Winnipeg í Kanada og síðast í Puente, Los Angeles, Kaliforníu, en Aðalsteinn lést hinn 14. júlí 1949.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is eða Sigurði S. Snorrasyni, formanni stjórnar sjóðsins, sigsnor@hi.is.
