Sigurður Magnús heiðraður fyrir áratugaframlag til opinberrar nýsköpunar

Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og prófessor í umhverfis- og byggingarverkfræði, hlaut heiðursverðlaun fyrir áratugalangt framlag til opinberrar nýsköpunar á sviði innviða, orkumála og umhverfisverndar á Nýsköpunardegi hins opinbera sem fram fór í gær.
Það er Fjársýslan sem stendur fyrir þessum árlega degi en hann hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir samtal, miðlun reynslu og þróun nýrra lausna í opinberum rekstri. Þema dagsins að þessu sinni var „heildstæðar umbætur í opinberum rekstri“ með sérstakri áherslu á hvernig nýsköpun og markviss innkaup geta stuðlað að betri þjónustu við almenning og atvinnulíf. Á viðburðinum var boðið upp á fyrirlestra, dæmi úr framkvæmd auk þess sem Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026 voru afhent.

Sigurður Magnús Garðarsson ásamt öðrum verðlaunahöfum á Nýsköpunardegi hins opinbera en þeir starfa hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborg og Sjúkratryggingum Íslands. MYND/Fjársýslan
Veitt voru verðlaun í fjórum flokkum, til einstaklings í opinberu starfi, ríkisaðila, sveitarfélags og loks heiðursverðlaun. Hin síðastnefndu komu sem fyrr segir í hlut Sigurðar Magnúsar fyrir áratugaframlag til opinberrar nýsköpunar á sviði innviða, orkumála og umhverfisverndar. Sérstaklega var horft til rannsókna hans og leiðtogahlutverks í uppbyggingu alþjóðlegs samstarfs á sviði jarðvarmanýtingar og sjálfbærra lausna auk forystu í hagnýtingu rannsókna og stuðningi við nýsköpunarumhverfið, m.a. sem stjórnarformaður Vísindagarða Háskóla Íslands, en því starfi hefur hann gegnt um árabil, á miklu uppbyggingartímabili hjá Vísindagörðum.

