Ólympíulið í raungreinum á faraldsfæti í sumar

Ólympíulið Íslands í eðlisfræði, efnafræði, líffræði og stærðfræði hafa undanfarið verið við æfingar í Háskóla Íslands en þau búa sig öll undir þátttöku í alþjóðlegum mótum í greinunum fjórum sem fara fram víða um heim.
Hefð hefur verið fyrir því að liðin taki hús á rektor Háskóla Íslands á meðan á æfingum stendur og engin breyting varð á því þetta árið. Landsliðið í stærðfræði heimsótti rektorsskrifstofu áður en það hélt ásamt þjálfurum ytra til æfinga og keppni en eðlisfræði-, efnafræði- og líffræðiliðin komu saman á móttöku á vegum rektors á Háskólatorgi.
Landsliðið í raungreinum skipa þeir framhaldsskólanemar sem ná bestum árangri í landskeppnum í greinunum fjórum sem fram fara á hverju skólaári. Við undirbúning fyrir keppnir sumarsins nýta liðin sér ekki aðeins aðstöðu Háskóla Íslands heldur njóta einnig leiðsagnar nemenda og starfsfólks skólans.

Hluti Ólympíuliðsins í stærðfræði ásamt þjálfara sínum, rektor HÍ og forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. MYND/Kristinn Ingvarsson
Ólympíuliðið í stærðfræði skipa þeir Patrek Ragnarsson, Jóakim Uni Arnaldarson, Magnús Thor Holloway, Matthías Pálmason Skowronski, Daði Logason og Eysteinn Daði Hjaltason. Þeir voru við æfingar í VR-II í Háskóla Íslands áður en liðið hélt utan í kínversku æfingabúðirnar IMSC2026 í Beijing í Kína. Að þeim loknum tekur lið þátt í Ólympíuleikunum sem fara fram í Shanghai 14.-20. júlí.
Aðalþjálfari liðsins er Atli Fannar Franklín en auk hans hafa þeir Marteinn Þór Harðason og Matthías Andri Hrafnkelsson annast þjálfun liðsins.

Ólympíuliðið í efnafræði ásamt hluta þjálfarateymis, rektor HÍ og forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. MYND/Kristinn Ingvarsson
Ólympíuliðið í efnafræði skipa þau Daði Þór Friðriksson, Fannar Smári Jóhannsson, Ása Dagrún Geirsdóttir og Jón Oddur Högnason og hafa þau haft æfingaaðstöðu í VR I og II.
Þjálfarar liðsins eru þau Katrín Lilja Sigurðardóttir, Þorsteinn Hálfdánarson, Sigurður Guðni Gunnarsson og Már Björgvinsson auk þess sem Bergur Fáfnir Bjarnason og Kristján Geir Hirlekar hafa aðstoðað við þjálfun. Þrjú þau fyrstnefndu fara utan með liðinu til keppni en það tekur þátt í tveimur mótum í sumar. Hið fyrra er Norðurlandakeppnin í efnafræði, sem er haldin í Helsinki í Finnlandi 7.-9. júlí, og hið síðara Alþjóðlega ólympíukeppnin í efnafræði sem fer fram í Tashkent í Úsbekistan10.-19. júlí.

Hluti Ólympíuliðsins í líffræði ásamt hluta þjálfarateymis, rektor HÍ og forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. MYND/Kristinn Ingvarsson
Ólympíuliðið í líffræði skipa þau Agnar Helgason, Eden Mayim Gittler, Guðmundur Halldór Ingvarsson og Merkúr Máni Hermannsson. Þau hafa stundað æfingar í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, og þá hefur Menntaskólinn í Reykjavík veitt liðinu afnot af Menntaskólaselinu við Hveragerði til útikennslu og vettvangsæfinga.
Þjálfarar liðsins, sem einnig eiga sæti í alþjóðlegri dómnefnd keppninnar, eru þeir Ólafur Patrick Ólafsson, Kári Hlynsson, Magnús Máni Sigurgeirsson og Viktor Logi Þórisson. Liðið heldur utan og tekur þátt í Ólympíukeppninni í líffræði sem að þessu sinni fer fram í Vilnius í Litháen 12.-19. júlí.

Hluti Ólympíuliðsins í eðlisfræði ásamt hluta þjálfarateymis, rektor HÍ og forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. MYND/Kristinn Ingvarsson
Ólympíuliðið í eðlisfræði skipa sjö nemendur, þau Lýður Þór Lýðsson, Elvar Magnússon, Guðlaugur Heiðar Davíðsson, Úlfar Jökull Eyjólfsson, Andrea Erla Guðmundsdóttir, Garðar Logi Björnsson og Vilhjálmur Geir Geirsson. Hópurinn hefur fengið fræðilega þjálfun í VR II og Háskólanum í Reykjavík og glímt við verkleg verkefni í VR I.
Ingibjörg Brynja Finnbjörnsdóttir hefur haft yfirumsjón með þjálfun liðsins en auk hennar hafa meðal annars þeir Matthias Harksen, Garðar Sigurðarson, Viðar Ágústsson og Unnar Arnalds komið að þjálfuninni.
Ólympíuliðið í eðlisfræði tók þátt í Evrópuleikunum sem haldnir voru í Gautaborg í Svíþjóð fyrr í mánuðinum og það heldur svo út til Kólumbíu 2. kúlí til að taka þátt í Ólympíumótinu í greininni sem fram fer í borginni Bucaramanga dagana 4.-12. júlí.
Háskóli Íslands óskar landsliðunum í raungreinum alls hins best í æfingum og keppni sumarsins.
