Skip to main content
30. apríl 2026

Gítarinn er mín hugleiðsla og aftenging frá amstri hversdagsins

Gítarinn er mín hugleiðsla og aftenging frá amstri hversdagsins - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sjáum ís á norðurpól, frosinn
Sjáum pálmatré í sól
Sjáum eyðimerkursand, fokinn
Sjáum gos og glænýtt land

Þessar línur er að finna í laginu Könnum heiminn eftir Ívar Örn Benediktsson, rannsóknaprófessor við Jarðvísindastofnun Háskólans, sem sendi nýverið frá sér sína fyrstu hljómplötu. Eflaust álykta einhverjir út frá titli og texta að Ívar sé algjörlega hugfanginn af vinnu sinni, sem hann sinnir m.a. á jöklum og úti á sjó. Ívar er það að vissu marki en sjálfur segir hann tónlistina vera sína hugleiðslu og aftengingu frá amstri hversdagsins. Hugmyndin að ofangreindu lagi kviknaði út frá ferðaþrá á COVID-tímum en það er var einmitt á þeim tíma sem hjólin, eða kannski platan, fóru að snúast á ferli hans sem tónlistarmaður.

Platan nýja ber nafn höfundarins, Ívar Ben, og hefur að geyma 11 lög eftir Ívar. „Ég á textana við sjö þeirra, tveir eru eftir Steindór Dan Jensen píanóleikara og tvö lög eru án orða,“ segir hann um tónlistina sem hann lýsir sjálfur sem mjúku dægurlagapoppi.

kapap plotunnar

Kápa plötunnar nýju sem ber nafn Ívars.

Hitað upp fyrir Skítamóral og Sálina á unglingsárunum

Ívar hefur fengist við tónlist allt frá tíu ára aldri en þá fékk þessi fjölhæfi Skagamaður hljómborð að gjöf frá foreldrum sínum. „Ég fór fljótlega að reyna að búa eitthvað til. Fann strax meiri þörf fyrir að skapa eitthvað en að læra almennilega á hljóðfærið – sem ég sé reyndar eftir að hafa aldrei gert. Ég keypti mér svo gítar á unglingsárum, lærði sjálfur og fór að pikka upp lög og prófa mig áfram við að setja saman hljóma og línur,“ segir hann.

Á framhaldsskólaárunum í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi var Ívar í tveimur skammlífum hljómsveitum. Önnu þeirra var hljómsveitin Fleyja sjér sem varð í þriðja sæti í Frostrokki, tónlistarkeppni nemendafélags skólans. „Ég var svo í stóru soul-bandi á Skaganum þar sem ég lék á conga-trommur og slagverk og fannst geysilega gaman. Hljómsveitin kom nokkrum sinnum fram á Akranesi, við spiluðum á 17. júní ef ég man rétt og hituðum upp fyrir Skítamóral á skólaballi. Svo hituðum við upp fyrir Sálina hans Jóns míns á sveitaballi í Hreðavatnsskála, sem var gríðarlegt stuð,“ segir Ívar og bætir við að líklega hafi það verið hápunktur hljómsveitarinnar að Sálin skyldi óska eftir því að fá hana aftur sem upphitunarband. „En þá fór trommarinn okkar á sjóinn og bandið lagðist af í kjölfarið.“

Á háskólaárum Ívars stofnaði hann skúffudúettinn Alda 57 ásamt góðum félaga og nærsveitunga úr Innri-Akraneshreppi, Sævari Inga Jónssyni, en þeir leigðu íbúð saman á Öldugötu 57 við þriðja mann. „Við höfðum kynnst í FVA og uppgötvað sameiginlegan áhuga á íslenskri tónlist. Sævar er virkilega góður textasmiður og ég samdi töluvert af lögum við textana hans og einhver gerðum við saman. Þetta voru svona sveitarómantísk dægurlög, sem stóð nú alltaf til að gera eitthvað meira með og gefa jafnvel út. Þau liggja enn þá í skúffunni en hver veit nema þau brjótist fram í dagsljósið einhvern tímann,“ segir Ívar kíminn.

ivar og samstarfsfolk

Ívar að störfum ásamt samstarfsfólki í jarðvísindum. MYND/Úr einkasafni

Þegar kom að framhaldsnámi í jarðvísindum við Kaupmannahafnarháskóla og Háskóla Íslands varð minni tími til tónlistarsköpunar enda Ívar einnig kominn með fjölskyldu. „En þegar ég var lektor við Lundarháskóla í Svíþjóð (2012-2015) vorum við nokkrir íslenskir félagar sem stofnuðum hljómsveitina Skánandi og lékum við nokkur tilefni þar sem Íslendingar komu saman, þ.á m. í júróvisjónpartíi skömmu fyrir keppnina í Malmö,“ segir hann enn fremur um tónlistarferilinn. 

Á auðvelt með að semja lög

Ívar segist aðspurður eiga mjög auðvelt með að semja lög, setja saman hljóma og laglínur. „Ég gríp í gítarinn nánast á hverjum degi, það er mín hugleiðsla og aftenging frá amstri hversdagsins. Oft verður eitthvað til, einhver lína eða hljómagangur, sem ég held svo áfram að vinna með þar til ég er kominn með nokkuð vel mótað lag. Textagerðin er mér mun erfiðari og ég gef mér miklu sjaldnar tíma til að semja texta en hugmyndir að þeim fæðast bara í hversdeginum, við að heyra eða sjá eitthvað sem grípur athyglina eða snertir við manni. Á plötunni eru textarnir mínir bara um ástina og lífið í víðum skilningi – s.s. um stríð og frið, ferðaþrá frá Covid-tímum, tjáningu, föðurmissi, ást til konunnar minnar og fólksins míns,“ segir hann um sköpunarferlið.

Spurður um áhrifavalda í tónlist segir hann þá koma úr ýmsum áttum. „Ætli sú tónlist sem hreyfir við manni hafi ekki mest áhrif á hvernig tónlist maður semur. Það getur verið eitthvað skínandi tært og fallegt eða eitthvað sem er skítugt og grúvar. Melódísk dægur- og rokktónlist höfðar mikið til mín en líka þjóðlagatónlist, soul og funk og blús og smá af jazzi. Ef ég á að nefna hljómsveitir og tónlistarmenn þá koma Bítlarnir fyrst upp í hugann, þeir hitta mig beint í hjartað oftar en aðrir, en líka t.d. U2, Turin Brakes og John Mayer, og seventies rokk og proggrokk eins og Led Zeppelin og Queen. Ég hlusta mikið á íslenska tónlist sem hefur án nokkurs vafa líka mikil áhrif á mína tónlistarsköpun – Jón Ólafs, Nýdönsk, Sálin, Maggi Eiríks og margir fleiri,“ segir Ívar en þessir síðastnefndu tónlistarmenn áttu sannarlega eftir að vera áhrifavaldar í útgáfu hans.

Heimavöllur Ívars í vinnunni eru m.a. jöklar landsins en í starfi sínu við Háskóla Íslands sérhæfir Ívar sig í jöklajarðfræði, landmótun jökla og aðspurður segist hann hafa mörg járn í eldinum í rannsóknum. MYND/Úr einkasafni

Leikið inn á plötu með landsliði hljóðfæraleikara

Ívar segist lengi hafa haft þann draum að taka upp eigið efni og koma því út á öldur ljósvakans en hvorki hafa haft kunnáttu né tengslanet til að taka skrefið og kannski síst tíma samhliða fjölskyldu og fullu starfi sem jarðvísindamaður í Háskólanum. Óvænt tækifæri kom upp í hendurnar á honum í upphafi COVID-19-faraldursins þegar Jón Ólafs tónlistarmaður auglýsti lagasmíðanámskeið sem Ívar ákvað að skrá sig á. „Ég hafði heyrt vel af Jóni látið og lengi líkað tónlistin hans. Við fórum í gegnum slatta af lögum sem ég átti til og ég samdi nokkur ný. Jóni leist vel á afraksturinn, hvatti mig til að taka þetta efni upp og bauðst til að hjálpa. Það var of gott tækifæri til að sleppa og upp úr því varð þessi plata að veruleika,“ segir Ívar.

Jón lét sér ekki nægja að aðstoða hann við upptökur og útgáfu heldur lék hann einnig á plötunni ásamt fleiri kanónum úr íslensku tónlistarlífi, Ólafi Hólm, trommuleikara Nýdanskrar, Friðrik Sturlusyni, bassaleikara Sálarinnar hans Jóns míns, og Stefáni Magnússyni, Stebba Magg, gítarleikara sem leikið hefur með fjölda hljómsveita en hann er sonur Magnúsar Eiríkssonar.
Platan kom svo út 31. janúar síðastliðinn, á afmælisdegi föður Ívars, sem hefði orðið 80 ára þann dag. Lagið Skýjum ofar á plötunni er einmitt helgað minningu hans en faðir Ívars lést aðeins 44 ára gamall.

Rannsakar hörfun jökla af Grímsey

Í starfi sínu við Háskóla Íslands sérhæfir Ívar sig í jöklajarðfræði, landmótun jökla og aðspurður segist hann hafa mörg járn í eldinum í rannsóknum. „Akkúrat núna eru rannsóknir á jöklunarsögu Íslands efst á baugi þar sem ég og samtarfsfólk innan lands og utan erum að reyna að auka þekkingu á hnignun ísaldarjökulsins sem lá yfir landinu öllu á hámarki síðasta jökulskeiðs fyrir rúmlega 20 þúsund árum. Ég var t.d. nýlega í Grímsey þar sem við sóttum setkjarna og sýni til aldursgreininga í von um að tímasetja jökulhörfun af eynni. Í ágúst er svo fyrirhugaður rannsóknaleiðangur á Árna Friðrikssyni til að kortleggja jöklalandmótun og taka sjávarsetkjarna af landgrunninu austan við landið. Það er algjörlega óplægður akur þegar kemur að sögu og landmótun ísaldarjökulsins og verður spennandi að sækja fyrstu gögn þaðan,“ segir hann og bætir við að þekking á jökla- og umhverfisbreytingum fortíðar skipti gríðarlega miklu máli til að skilja þær loftslagsbreytingar sem nú eiga sér stað og hvernig þær kunna að þróast til framtíðar. 

Ívar

Ívar að störfum á hálendinu. Mynd/Balthasar Epprecht

„Svo er nýhafið framhlaup í Dyngjujökli og ætlunin að gera athuganir við jökulsporðinn þegar hann hleypur fram í sumar eða haust. Ég hef unnið með landmótun framhlaupsjökla síðan í doktorsnámi en ekki gefist færi á að rannsaka framhlaup í rauntíma fyrr en nú. Þetta er einstak tækifæri til að auka þekkingu okkar á hegðun og landmótun framhlaupsjökla á Íslandi,“ útskýrir Ívar.

Og tónlistarsköpunin og jarðfræðirannsóknirnar fara vel saman, að sögn Ívars, þetta sé ekki svo ólíkt í sjálfu sér. „Í hvoru tveggja þarf maður að vera skapandi og fara af stað með einhverja hugmynd, þróa hana, ræða útfærslur við samstarfsfélaga og vera tilbúinn að taka rýni, breyta og bæta, viðhafa öguð vinnubrögð, hafa passlegan skammt af metnaði og vandvirkni en láta ekki leitina að fullkomnun stoppa sig heldur geta sett punkt,“ segir jöklajarðfræðingurinn og tónlistarmaðurinn Ívar að endingu. 

Tandurheinn heiðarleiki í sköpun

Ívar tók hús á kollega sínum í Háskólanum, Arnari Eggert Thoroddsen, tónlistarfræðingi og aðjunkt í félagsfræði, skömmu eftir að platan kom út og færði honum vínyleintak af henni. „Eitt af því sem ég hef alltaf haft sérstakan áhuga á í íslenskri tónlist er hin svokallaða einyrkjatónlist. Hér erum við venjulega að tala um óþekkta einstaklinga sem hafa tónlist ekki að aðalstarfi en eru með hana í sér. Þeir glamra á gítar á kvöldin, semja jafnvel og á einhverjum tímapunkti vill tónlistin einfaldlega út og inn á "band" svo ég tali fornt mál. Hæfileikunum er vissulega misjafnlega deilt, efnið spannar allan gæðaskalann, frá hreinum hörmungum upp í hreina og klára snilld. Og flest allt er þar einhvers staðar á milli. Heiðarleikinn við sköpunina er þó oftast nær tandurhreinn og það er einmitt þetta mannlega element sem heillar svo mikið. Ívar Ben fellur kirfilega í þennan flokk,“ segir Arnar Eggert.

ivar og arnar

Arnar Eggert og Ívar með plötuna nýju.

Áhugasöm geta nálgast plötu Ívars á Spotify en einnig er hægt að kaupa eintak á vínyl hjá Ívari í gegnum tölvupóst (ivarben@hi.is), messenger eða Instagram (ivarben_music). Einhver eintök er svo að finna í Lucky Records, 12 tónum og Reykjavík Record Shop að sögn Ívars.

Hér má svo hlýða á viðtal við Ívar í Rokklandi á Rás 2

Ívar Örn Benediktsson