Skip to main content
16. júní 2026

Fyrsti nemandinn til að ljúka grunnnámi í tryggingastærðfræði við HÍ

Sveinn Þráinn Guðmundsson

Sveinn Þráinn Guðmundsson varð fyrsti nemandinn til að ljúka grunnnámi í tryggingastærðfræði við Háskóla Íslands þegar hann brautskráðist þann 13. júní síðastliðinn með BS-próf í hagnýtri stærðfræði með sérhæfingu í tryggingastærðfræði. Fyrir er Sveinn einnig með B.S. próf í fjármálaverkfræði frá HR sem hann lauk vorið 2023. Sveinn mun hefja M.Sc. nám í tryggingastærðfræði við Stockholm University í ágúst næst komandi.

Grunnám í tryggingastærðfræði hefur verið í boði hjá HÍ frá haustmisseri 2024 undir hagnýtri stærðfræði. Námið var sett á laggirnar samhliða opnun Rannsóknastofnun lífeyrismála við HÍ (e.  Pension Research Institute Iceland (PRICE)). Sjá nánar á vefsíðunni pension-research.is. Stofnunin er styrkt af Landssamtökum Lífeyrissjóða.

Í dag eru 7 nemendur skráðir í tryggingastærðfræði við HÍ.  

Sveinn Þráinn Guðmundsson við brautskráninguna