Til þess að sækja um starfsþjálfun þurfa grunnnemar að hafa lokið að minnsta kosti 90 ECTS einingum og meistaranemar að hafa lokið að minnsta kosti 30 ECTS einingum. Í báðum tilvikum þarf meðaleinkunn að vera að lágmarki 7,25. Umsókn skal innihalda ferilskrá, kynningarbréf og skjáskot úr Uglu sem sýnir einingafjölda og einkunnir. Umsóknir sendist á vidskipti@hi.is. Umsóknarfrestur er til 18. ágúst 2026. Artasan - NÝTT Starfsnemi í heilsuvörudeild Artasan Heilsuvörudeild Artasan býður nemendum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri starfsemi deildarinnar í gegnum starfsþjálfun. Langar þig að læra á lifandi og skemmtilegum vinnustað, fá innsýn í sölu og markaðssetningu heilsuvara og taka þátt í verkefnum sem hafa raunverulegt gildi? Þá gæti þetta verið spennandi tækifæri fyrir þig. Við bjóðum upp á fjölbreytt verkefni, góða leiðsögn og lærdóm sem nýtist vel til framtíðar. Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með reyndu fólki, kynnast vörumerkjum á heilsumarkaði og leggja þitt af mörkum í uppbyggingu deildarinnar. Heilsuvörudeild Artasan sérhæfir sig í sölu og markaðssetningu á vítamínum, bætiefnum, barna- og húðvörum, munnheilsuvörum og öðrum heilsutengdum vörum. Við leggjum áherslu á vandaðar vörur frá sérvöldum framleiðendum víðs vegar að úr heiminum og markmið okkar er að bjóða vörur sem styðja við heilsu, vellíðan og aukin lífsgæði. Vörurnar okkar fást meðal annars í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaða og verslana. Staðan hentar nemendum í markaðsfræði eða viðskiptafræði sem hafa áhuga á markaðssetningu, heilsu, vörumerkjum og neytendamarkaði. Helstu verkefni: Gerð markaðs-, kynningar- og fræðsluefnis í samstarfi við vörumerkjastjóra Aðstoð við sölu- og fræðslukynningar Stuðningur við markaðsstjóra og teymi heilsuvörudeildar Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum tengdum vörumerkjum, efni og markaðsstarfi Hæfniskröfur: Áhugi á heilsutengdum málefnum og áhrifum bætiefna á heilsu og vellíðan Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð Góðir samskiptahæfileikar og lausnarmiðað viðhorf Góð almenn tölvukunnátta Umsóknir skal senda á vidskipti@hi.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi tilgreinir áhuga sinn á stöðunni og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsóknafestur er til og með 18 ágúst. Intellecta - NÝTT Starfsnám í ráðningardeild Intellecta og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða nemendum að kynnast starfsemi Intellecta í gegnum starfsþjálfunarstöðu í ráðningardeild. Í starfsþjálfun fá nemendur dýrmæta þjálfun og reynslu í að beita fræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni í atvinnulífinu undir leiðsögn sérfræðinga. Nemandi í þessari stöðu mun vinna undir leiðsögn stjórnendaráðgjafa. Þessi staða er í boði fyrir meistaranema sem hafa lokið 60 ECTS einingum með fyrstu einkunn (7,25). Helstu verkefni: Gerð gagnapakka og matsblaða Yfirferð og úrvinnsla ferilskráa/umsókna Umsagnaöflun Bókun viðtala, undirbúningur viðtala Fyrirlögn prófa og verkefna Ýmis önnur verkefni sem snúa að ráðningarferlinu Menntunar- og hæfniskröfur: Brennandi áhugi á mannauðsmálum er skilyrði. Reynsla af starfi sem tengist mannauðsmálum er kostur Reynsla af þjónustustörfum Jákvæðni og mikil hæfni í mannlegum samskiptum Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi Framúrskarandi íslenskukunnátta Um fyrirtækið: Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á tveimur sviðum: ráðgjöf og ráðningum. Við vinnum með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar okkar hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Ráðningarsvið Intellecta sinnir ráðningum stjórnenda og sérfræðinga bæði fyrir opinberar stofnanir og einkamarkaðinn. Þá sinnir sviðið einnig mannauðsráðgjöf og ráðgjöf til einstaklinga í atvinnuleit. Ráðgjafarsvið Intellecta sinnir verkefnum s.s. á sviði upplýsingatækni, stefnumótunar og stjórnunar auk þess sem kjarakönnun Intellecta hefur veitt stjórnum og stjórnendum góða innsýn inn í þróun launa á markaði. Umsóknir skal senda á vidskipti@hi.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi tilgreinir áhuga sinn á stöðunni og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsóknafestur er til og með 18 ágúst. Umsóknafestur er til og með 18 ágúst. 66°N - NÝTT Starfsþjálfunarstaða – Uppsetning tímalínu Ertu skipulagður, nákvæmur og með áhuga á því að vinna með gögn og ferla í faglegu umhverfi? Við leitum að starfsþjálfunarnema sem vill taka þátt í að móta og setja upp tímalínu fyrirtækisins á skýran og aðgengilegan hátt. Um verkefnið Starfsþjálfunin felst í að vinna með fyrirliggjandi upplýsingar og setja upp skýra og notendavæna tímalínu sem sýnir helstu vörður, áfanga, verkháðni (e. task dependency) og lykilfundi fyrirtækisins. Markmiðið er að bæta yfirsýn og aðgengi að mikilvægum upplýsingum fyrir starfsfólk. Helstu verkefni: Aðstoð við uppsetningu og framsetningu tímalínu fyrirtækisins Skipulag og úrvinnsla gagna í Microsoft ExcelSetja tímalínuna upp í lifandi Gantt rit Samvinna við starfsfólk til að safna og staðfesta upplýsingar Tryggja nákvæmni, skýrleika og samræmi í framsetningu Hæfniskröfur: Áhugi á skipulagi, upplýsingamiðlun og ferlum Góð hæfni í Microsoft-umhverfinu, sér í lagi Excel Góð hæfni í mannlegum samskiptum Jákvæðni, frumkvæði og vilji til að læra Stundvísi og ábyrgð Heiðarleiki í vinnubrögðum Nákvæmni og vandvirkni Við bjóðum: Lærdómsríka starfsþjálfun í faglegu umhverfi Tækifæri til að vinna að raunverulegu verkefni sem nýtist öllu starfsfólki Góða handleiðslu og stuðning í starfi Öfluga reynslu sem nýtist í áframhaldandi námi og starfsferli Hvernig á að sækja um: Umsóknafestur er til og með 13. ágúst. Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn. Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi, ferilskrá og afriti af Uglu fyrir hverja umsókn og ekki má setja margar umsóknir saman, heldur skal senda hverja og eina í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is 66°N - mannauðsmál - NÝTT Starfsþjálfunartækifæri á sviði mannauðs hjá 66°Norður 66°Norður leitar að jákvæðum og metnaðarfullum nema sem vill öðlast bæði þekkingu og hagnýta reynslu á sviði mannauðsmála. Þetta er frábært tækifæri til að fá innsýn í þau fjölbreyttu verkefni sem sérfræðingar í mannauðsmálum sinna í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk. Helstu verkefni Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðs, þar á meðal umbótum og þróun á stefnum, ferlum og verklagi. Þátttaka í daglegum verkefnum á sviði mannauðs Hæfniskröfur Mjög góð færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli Nemi í mannauðsstjórnun Góð færni í Microsoft Office Góð samskiptahæfni Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Lausnamiðuð hugsun Drifkraftur og metnaður Við bjóðum: Lærdómsríka starfsþjálfun í faglegu umhverfi Tækifæri til að vinna að raunverulegu verkefni sem nýtist öllu starfsfólki Góða handleiðslu og stuðning í starfi Öfluga reynslu sem nýtist í áframhaldandi námi og starfsferli Hvernig á að sækja um: Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum (90 ECTS í grunnnámi og 30 ECTS í meistaranámi) með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn. Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi, ferilskrá og afriti af Uglu fyrir hverja umsókn og ekki má setja margar umsóknir saman, heldur skal senda hverja og eina í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is Nemendur skulu senda hverja umsókn í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is Umsóknafestur er til og með 18 ágúst. Dansverkstæðið - NÝTT Um Dansverkstæðið Dansverkstæðið hefur frá árinu 2010 verið miðpunktur íslenskrar danslistar og eini samastaður sjálfstætt starfandi danslistafólks á Íslandi. Hlutverk okkar er að styðja við danslistafólk með aðstöðu, verkefnum, viðburðum, vinnustofum og alþjóðlegu samstarfi. Þar er boðið upp á vinnuaðstöðu fyrir dansara, danshöfunda og annað sviðslistafólk, auk þjálfunar, námskeiða og annars stuðnings sem eflir faglega þróun. Dansverkstæðið er einnig vettvangur danssýninga, vinnustofa og fjölbreyttra viðburða fyrir börn, fullorðna og listafólk, og gegnir mikilvægu hlutverki í að styrkja og þróa íslenskt danssamfélag.Við vinnum með fjölbreyttum hópi listafólks og menningarstofnana og leggjum áherslu á samvinnu, nýsköpun og þróun sviðslista. Um starfsnámið Við leitum að áhugasömum og sjálfstæðum starfsnema sem vill kynnast rekstri menningarstofnunar og taka þátt í daglegu starfi sem styður við dans- og sviðslistafólk. Starfsnámið býður upp á fjölbreytta reynslu af verkefnastjórnun, viðburðahaldi, samskiptum og rekstri listastofnunar. Helstu verkefni · Almenn aðstoð við daglegan rekstur Dansverkstæðisins · Aðstoð við skipulagningu og framkvæmd ýmissa viðburða · Samskipti við listafólk, samstarfsaðila og gesti · Aðstoð við samfélagsmiðla, kynningu og upplýsingamiðlun · Aðstoð við umsýslu verkefna og skýrslugerð · Skráning og utanumhald verkefna Við leitum að einstaklingi sem · Hefur áhuga á dansi, sviðslistum eða menningarstarfi · Er skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum · Hefur góða samskiptafærni · Hefur áhuga á að læra um starfsemi sjálfstæðrar listastofnunar Við bjóðum · Innsýn í rekstur og starfsemi mikilvægrar menningarstofnunar · Tækifæri til að vinna með listafólki og menningarstarfsfólki · Fjölbreytt og skapandi starfsumhverfi · Leiðsögn og stuðning í gegnum starfsnámið Umsóknafestur er til og með 18 ágúst. Hugverkastofa - NÝTT Starfsþjálfunarstaða í viðburðastjórnun Hefur þú brennandi áhuga á markaðsmálum og viðburðastjórnun? Langar þig til að starfa í hringiðu hugverkaverndar og nýsköpunar? Hugverkastofan og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða upp á starfsþjálfunarstöðu á haustönn við undirbúning, skipulagningu og kynningu á viðburði í tengslum við 35 ára afmæli stofnunarinnar. Neminn mun fá tækifæri til að fylgja verkefni eftir frá hugmyndavinnu til skipulags og framkvæmdar. Leiðbeinandi í verkefninu er samskiptastjóri Hugverkastofunnar. Helstu verkefni: Þátttaka í skipulagningu afmælisviðburðar Utanumhald dagskrár, tímalínu og gestalista Samskipti við fyrirlesara, samstarfsaðila og gesti Aðstoð við kynningu viðburðarins á samfélagsmiðlum og annars staðar: efnisgerð, uppsetning og birtingar Aðstoð við annað kynningarstarf Hugverkastofunnar eftir því sem við á Hæfniskröfur: Áhugi á viðburðastjórnun og markaðsmálum Áhugi á samfélagsmiðlum og miðlun Áhugi á nýsköpun, atvinnulífi og hugverkaréttindum Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti Frumkvæði og vilji til að læra Nákvæmni og vandvirkni Við bjóðum: Hagnýta reynslu af raunverulegum viðburði, allt frá undirbúningi til framkvæmdar Innsýn í starfsemi stofnunar sem starfar á mótum lögfræði, nýsköpunar og atvinnulífs Þekkingu á hugverkaréttindum sem nýtist í markaðs-, og nýsköpunarstarfi Góða handleiðslu og stuðning í starfi Hvernig á að sækja um: Staðan er í boði fyrir meistaranema sem lokið hafa a.m.k. tilskyldum 30 ECTS í meistaranámi með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn. Umsækjendur þurfa að senda ferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu af Uglu um að hafa lokið tilskyldum einingum á vidskipti@hi.is. Nemendur geta sótt um fleiri en eina stöðu en skila þarf sér kynningarbréfi, ferilskrá og afriti af Uglu fyrir hverja umsókn. Senda þarf hverja umsókn fyrir sig í sér tölvupósti á vidskipti@hi.is. LifePass - markaðsmál - NÝTT Starfsþjálfun í markaðsmálum og samfélagsmiðlum Hefur þú áhuga á markaðsmálum, samfélagsmiðlum og uppbyggingu vörumerkja? Langar þig að öðlast reynslu í hraðvaxandi sprotafyrirtæki á sviði heilsu og hreyfingar? LifePass Iceland og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða upp á starfsþjálfunarstöðu á haustönn með áherslu á markaðssetningu, samfélagsmiðla og vörumerkjauppbyggingu á íslenskum markaði. LifePass er ungt sprotafyrirtæki sem veitir notendum sveigjanlegan aðgang að fjölbreyttum heilsu- og hreyfingarstöðum um landið. Neminn fær tækifæri til að taka virkan þátt í að byggja upp samfélagsmiðla LifePass á Íslandi, móta skilaboð fyrirtækisins og vinna að efnisgerð og herferðum í nánu samstarfi við hönnuð og aðra meðlimi teymisins. Leiðbeinandi er Lucas Bönström, framkvæmdastjóri LifePass. Helstu verkefni: Þátttaka í uppbyggingu og skipulagningu samfélagsmiðla LifePass á Íslandi Gerð og birting efnis á íslensku og ensku í samstarfi við hönnuð fyrirtækisins Aðstoð við mótun vörumerkis, skilaboða og staðfærslu fyrir íslenskan markað Þátttaka í markaðsherferðum sem styðja við vöxt LifePass á fyrirtækjamarkaði Aðstoð við annað markaðs- og kynningarstarf eftir því sem við á Hæfniskröfur: Áhugi á markaðsmálum, samfélagsmiðlum og efnisgerð Mjög gott vald á íslensku og gott vald á ensku Áhugi á vörumerkjauppbyggingu, heilsu, hreyfingu og sprotafyrirtækjum Frumkvæði, sjálfstæði og vilji til að taka ábyrgð Góð samskipta- og samstarfshæfni Nákvæmni og skapandi hugsun Við bjóðum: Hagnýta reynslu af markaðsstarfi í ungu og ört vaxandi sprotafyrirtæki Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á uppbyggingu vörumerkis og samfélagsmiðla Náið samstarf við framkvæmdastjóra, hönnuð og aðra meðlimi teymisins Innsýn í markaðssetningu bæði gagnvart einstaklingum og fyrirtækjum Góða handleiðslu og möguleika á áframhaldandi samstarfi að starfsþjálfun lokinni LifePass - verkefnastjórnun - NÝTT Starfsþjálfun í verkefnastjórnun og viðskiptaþróun Hefur þú áhuga á sprotafyrirtækjum, verkefnastjórnun og viðskiptaþróun? Langar þig að vinna með litlu og öflugu teymi að uppbyggingu nýrrar þjónustu á sviði heilsu og hreyfingar? LifePass Iceland og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands bjóða upp á starfsþjálfunarstöðu á haustönn með áherslu á verkefnastjórnun, viðskiptaþróun og fjölbreytt verkefni sem tengjast daglegum rekstri sprotafyrirtækis. Starfsþjálfunin getur hentað bæði íslenskum og alþjóðlegum nemendum og er vinnumálið að mestu enska. Möguleg verkefni Aðstoð við skipulagningu og eftirfylgni verkefna Þátttaka í viðskiptaþróun og uppbyggingu LifePass á fyrirtækjamarkaði Rannsóknir og greining á markaði, samstarfsaðilum og vaxtartækifærum Samskipti og samhæfing við samstarfsaðila Almennur stuðningur við starfsemi sprotafyrirtækisins eftir þörfum facebooklinkedintwitter