Nemendum gefst kostur á að sækja um skiptinám á vormisseri 2027 í samstarfsskólum sem enn er laust í. Frestur til að sækja um er 10. september 2026. Kynningarfundir og vinnustofa Haldnir verða kynningarfundir fyrir þau sem hafa áhuga á að kynna sér skiptinám á vormisseri 2027. Auk þess verður boðið upp á vinnustofu. Á vinnustofunni getur þú fengið aðstoð við undirbúning og umsókn um skiptinám hjá starfsfólki Alþjóðasviðs. Nemendur þurfa ekki að vera allan tímann, en mikilvægt er að vera vel undirbúin og hafa kynnt sér gestaskóla svo vinnustofan nýtist sem best. Kynningarfundir: Ekki er nauðsynlegt að skrá sig á viðburði en þau sem skrá sig fá senda áminningu um kynninguna/vinnustofuna. Athugið að staðsetning í stofum gæti breyst. 19. ágúst kl. 11.40-12.40 - stofa VRII-155 (á íslensku) - Skráningarform 25. ágúst kl. 15.00-15.40 - Teams kynning (á ensku) - Skráningarform 27. ágúst kl. 13.15-14.15 - stofa Oddi-202 (á íslensku) - Skráningarform 31. ágúst kl. 15.00-15.40 - Teams kynning (á íslensku) - Skráningarform Vinnustofa: Þriðjudaginn 1. september kl. 15.00-16.30 - stofa HT-300 - Skráningarform Viðtalstímar Nemendum gefst einnig kostur á að bóka viðtalstíma í gegnum Teams. Mikilvægt er að koma undirbúin á fundinn, svo hægt sé að tryggja að fundurinn nýtist vel. Nemendur geta valið um tímasetningar en hvert spjall tekur um 15 mínútur. Nemendur geta komið einir eða nokkrir saman, en þá er nóg að einn skrái sig. Miðað er við að ekki séu fleiri en fimm í hóp. Bóka viðtal Skólar sem laust er í á vormisseri 2027 Hér má sjá lista yfir þá skóla og námsleiðir sem laust er í á vormisseri 2027 (pdf) Fyrir frekari upplýsingar um umsóknarferlið og gestaskóla er hægt hafa samband við Alþjóðasvið með því að senda póst á ask@hi.is eða hringja í síma 525 4311. Gott er að kynna sér vel upplýsingar á vefsíðunni okkar en þar kemur fram mikið af hagnýtum upplýsingum um skiptinámsferlið. Hér er hægt að horfa á upptöku frá kynningu á skiptinámi Upplýsingar um skiptinám og umsóknarferlið facebooklinkedintwitter