
BIP – Blönduð hraðnámskeið eru stutt námskeið sem að minnsta kosti þrír háskólar í þátttökulöndum Erasmus+ þróa saman. Námskeiðin innihalda rafrænan hluta, auk staðkennslu í 5-30 daga.
Deildir geta sótt um umsýslustyrk til að halda námskeið (4.000–6.000€). Til þess að námskeiðið sé styrkhæft þurfa að minnsta kosti tíu þátttakendur á Erasmus+ styrk að taka þátt í námskeiðinu. Námskeiðin geta verið fyrir bæði nemendur og starfsfólk.
Umsóknarfrestur til Alþjóðasviðs er 1. apríl fyrir námskeið sem fara fram næstkomandi skólaár.