
Upplýsingasíða fyrir nýnema á Hugvísindasviði
Verið velkomin í nám á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Við sviðið starfa Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, Íslensku- og menningardeild, Mála- og menningardeild og Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði. Hér að neðan má nálgast gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema.
Þjónusta
Velkomin í Háskóla Íslands
Sjáðu um hvað námið snýst

Mikilvægar dagsetningar við upphaf haustmisseris 2024
- 16. ágúst. Móttaka nýnema á Hugvísindasviði.
- 19. ágúst. Kennsla hefst.
- 5. september. Síðasti dagur til að endurskoða námskeiðaskráningar.
- 15. september. Síðasti dagur til úrsrkáningar úr námskeiðum/prófum á haustmisseri.

Gátlisti nýnemans
- Virkjaðu netfangið þitt og fáðu netaðgang
- Lestu HÍ tölvupóstinn þinn reglulega
- Kynntu þér námsskipulagið og reglur um framvindu í kennsluskrá
- Nálgastu bókalista í námskeiðunum þínum
- Lærðu á Ugluna og alla hennar möguleika
- Skráðu þig í nemendafélag
- Skoðaðu kennsludagatalið og stundatöflur
- Lærðu að rata um háskólasvæðið
Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs er staðsett á 3. hæð í Aðalbyggingu Háskólans við Sæmundargötu 2. Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 alla virka daga.
Hægt er að nálgast upplýsingar í netspjalli hér á síðunni, í síma 525 4400 eða með tölvupósti á netfangið hug@hi.is. Þú getur líka fylgst með okkur á Instagram og Facebook.
Nemendur við Hugvísindasvið geta einnig nýtt sér þjónustuborð á Háskólatorgi.
