Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði

Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður nýnemum á sameiginlegan kynningarfund í stofu 105 á Háskólatorgi, föstudaginn 21. ágúst kl. 13:30-14:00. Að honum loknum verða kynningarfundir í einstaka deildum.
Dagskrá sameiginlegs fundar í stofu 105 á Háskólatorgi:
- Ávarp Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands
- Þjónusta Nemendaráðgjafar
- Kynning á Uglu, innri vef HÍ
- Haraldur Bernharðsson, forseti Hugvísindasviðs, býður nemendur velkomna.
Að þessum fundi loknum kl. 14:00 verða kynningarfundir í Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, Íslensku- og menningardeild og Mála- og menningardeild. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám og félagsstarf í viðkomandi deildum.
Fundir deilda:
- Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði í stofu 304 í Árnagarði.
- Guðfræði- og trúarbragðafræðideild í stofu 229 í Aðalbyggingu.
- Íslensku- og menningardeild í stofu 218 í Eddu.
- Mála- og menningardeild í stofu 229 í Veröld.
Kennsla hefst mánudaginn 24. ágúst. Nýnemadagar Háskóla Íslands hefjast 31. ágúst.
Á nýnemavef Háskóla Íslands, vef Stúdentaráðs og á vef Hugvísindasviðs eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Eins er hægt að fá innsýn í starfið á facebooksíðum skólans og sviðsins og á Instagram síðum sviðs og skóla.
Ef einhverjar spurningar vakna um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga.
Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður nýnemum á kynningarfund í stofu 105 á Háskólatorgi, föstudaginn 21. ágúst kl. 13:30-14:00.
