Skip to main content

Móttaka nýnema 2026

Móttaka nýnema 2026 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. ágúst 2026 9:00 til 18. ágúst 2026 14:00
Hvar 

Saga

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Menntavísindasvið Háskóla Íslands býður alla nýnema í grunnnámi velkomna í nám við sviðið dagana mánudaginn 17. ágúst kl. 09:00 - 15:00 og þriðjudaginn 18. ágúst kl. 10:00 - 14:00 

Móttakan í ár verður með nýju sniði og er hluti af vinnu Menntavísindasviðs við fyrsta árs upplifun nemenda. Markmiðið er að taka vel á móti nýnemum, hjálpa þeim að kynnast samnemendum, rata betur um námsumhverfið og fá skýrari mynd af því hvernig háskólanám virkar. 

Við viljum að nemendur fari af stað með betri tilfinningu fyrir því hvert þeir eiga að leita, hvernig námið er byggt upp, hverjir eru með þeim í náminu og að þeir tilheyri samfélagi á Menntavísindasviði. 

Fyrri dagurinn hefst í minni hópum eftir námsbrautum. Nýnemar mæta beint í sína heimastofu þar sem þeir hitta samnemendur, kennara eða starfsfólk og eldri nemanda sem tekur þátt í dagskránni. 

Áhersla dagsins er á: 

  • tengslamyndun  
  • fyrstu kynni af námsbrautinni  
  • væntingar til háskólanáms  
  • námsfærni  
  • Canvas, Ugla og önnur kerfi  
  • stuðning og þjónustu við nemendur  

Nemendur taka þátt í verkefnum sem hjálpa þeim að kynnast hvert öðru, ræða algengar spurningar um háskólanám og læra hvar þau finna upplýsingar og stuðning. 

Verkefni dagsins fer fram í gegnum Canvas námskerfið og hjálpar nemendum að kynnast mikilvægum kerfum, þjónustu og námsumhverfi Háskóla Íslands. 

Nánari upplýsingar um stofu og hóp verða sendar nýnemum þegar nær dregur. 

Seinni dagurinn tengir nemendur betur við Menntavísindasvið, deildirnar, Háskóla umhverfið og félagslíf nemenda. 

Áhersla dagsins er á að nýnemar: 

  • kynnist Menntavísindasviði sem heild  
  • fái betri mynd af deildinni sinni og námsbrautinni  
  • kynnist þjónustu og stuðningi sem stendur þeim til boða  
  • heyri frá nemendafélögum og fulltrúum nemenda  
  • styrki tengsl við samnemendur  
  • upplifi sig sem hluta af stærra háskólasamfélagi  

Dagskránni lýkur með verkefnum á námsbrautum þar sem nemendur fá tækifæri til að festa tengslin betur og ræða hvað það þýðir að tilheyra sinni námsbraut. 

Nánari upplýsingar má finna hér