Ferðamálafræði, MA



Ferðamálafræði
MA – 120 einingar
Meistaranám í ferðamálfræði frá Hí á Hólum er sveigjanleg fjarnámsleið, þar sem nemendur getur valið sína áherslu á sviði ferðamála eða tengdra greina. Mögulegt er að taka hluta námsins við aðra skóla, hérlendis eða erlendis.
Skipulag náms
Rannsóknir og rit (ROR4210120)
Í námskeiðinu eru lesin grundvallarrit í ferðamálafræði, samhengi og áhrif þeirra rakin. Allir nemendur lesa ákveðin rit og rekja áhrif þeirra á rannsóknarhefð síns sviðs. Hver nemandi velur eitt grundvallarrit á sínu sviði og gerir grein fyrir því. Til skoðunar eru hugmyndafræðilegar forsendur og kenningarammi ritanna, tengsl þeirra við rannsóknir, aðferðafræði rannsókna og hver áhrif þeirra hafa orðið á sviðið. Jafnframt þekkingarfræðileg uppbygging ferðamálafræða einsog hún birtist í samtímanum.
Málstofa (MÁL5110120)
Markmið námskeiðsins er að undirbúa nemendur fyrir þátttöku í fræðilegum og faglegum umræðum um ferðaþjónustu í samtímanum. Nemendur þurfa að taka virkan þátt í að skapa fræðilega umræðu í námskeiðinu. Námskeiðið skiptist í nokkrar málstofur og lokaverkefni. Í hverri lotu er ákveðið lesefni krufið til mergjar
Aðferðasmiðja (AÐS4010120)
Námskeiðið er inngangur að rannsóknaraðferðum með aðaláherslu á að greina fræðilegan grunn rannsókna. Fyrri hluti námskeiðsins fjallar um verufræðileg viðfangsefni en seinni hlutinn um þekkingarfræði. Námskeiðið fer fram sem röð af smiðjum þar sem nemendur skoða og skilgreina viðfangsefni sín í MA rannsókninni út frá mögulegum og viðeigandi rannsóknaraðferðum, sem mætti beita og aðlaga.
Í námskeiðinu er unnið á íslensku og ensku eftir því hver bakgrunnur þátttakenda er hverju sinni.
- Haust
- Villt náttúra og ferðamennska á NorðurslóðumVE
- Sjálfbær og ábyrg ferðaþjónustaVE
- Hestatengd ferðaþjónustaVE
- Óháð misseri
- MA ritgerð
- MA ritgerð
- MA ritgerð
Villt náttúra og ferðamennska á Norðurslóðum (VNN4510180)
Stjórnendur ferðaþjónustufyrirtækja þar sem villt dýr og náttúra er hluti af þeirri vöru sem í boði er, þurfa að þróa innan fyrirtækisins stjórnunaráætlun sem tekur tillit til þarfa bæði íbúa á svæðinu og ferðamanna, um leið og hún tryggir lágmarks áhrif á náttúru og villt dýr. Í námskeiðinu verða til umræðu kenningar um stjórnun slíkra ferðaþjónustufyrirtækja og alþjóðleg dæmi, þar sem slíkum aðferðum er beitt, eru krufin til mergjar. Sérstakri athygli verður beint að aðstæðum á Norðurslóðum og á heimskautasvæðum, þar sem hratt gætir áhrifa loftslagsbreytinga. Þrjú lykilatriði í stjórnun slíkra ferðaþjónustufyrirtækja verða skoðuð sérstaklega, þ.e. áhrif ferðaþjónustu á vistfræði umræddra svæða, þátttaka íbúa í stjórnun á svæðinu og áhrif ferðamannanna sjálfra. Um er að ræða þverfaglegt námskeið sem mun í senn nýta aðferðir félags- og náttúruvísinda í nálgun sinni á viðfangsefnið.
Sjálfbær og ábyrg ferðaþjónusta (SÁF4610180)
Hugtakið sjálfbærni er mikilvægt í þróun og stefnumótun í ferðaþjónustu samtímans. Í námskeiðinu eru lykilatriði sjálfbærrar ferðaþjónustu krufin og farið yfir hvernig hugtakið hefur þróast. Þá verða ákveðnr þættir sjálfbærninnar ræddir, svo sem auðlindir, athafnir og hefðir/venjur samfélaga. Samband sjálfbærrar ferðaþjónustu og sjálfbærrar þróunar verður skoðað á gagnrýninn hátt. Í seinni hluta námskeiðs verða skoðuð dæmi um ábyrgar aðgerðir og ástundun í ferðaþjónustu.
Hestatengd ferðaþjónusta (HTF4410180)
Hestaferðaþjónusta er ört vaxandi víða um heim. Í þessu námskeiði er hestaferðaþjónusta kynnt út frá fræðilegum og hagnýtum þáttum. Fjallað er um hestamennsku sem atvinnugrein og þátt hestaferðaþjónustu innan hennar. Rýnt er í þróun fyrirtækja, nýsköpun og stjórnun innan hestaferðaþjónustu . Hestaferðaþjónusta skoðuð sem hluti af landbúnaðarferðaþjónustu sem og heilsu- og náttúrutengdri ferðaþjónustu. Rýnt er í rannsóknir á bæði framboðs- og eftirspurnarhliðum greinarinnar. Ólíkur þáttur kynjanna í hestaferðaþjónustu er skoðaður og rýnt er í siðferðisleg álitamál varðandi það að nota hross í ferðaþjónustu. Horft er til framtíðarmöguleika í hestaferðaþjónustu á heimsvísu. Í námskeiðinu er hestaferðaþjónusta á Íslandi notuð sem dæmi um þróun atvinnugreinarinnar á tilteknum áfangastað.
MA ritgerð (MA5005100, MA5005100, MA5005100)
Meistaraprófsritgerð er skilað og hún varin, þ.e. nemandinn flytur opinn fyrirlestur um verkefni sitt og svarar spurningum prófnefndar og áheyrenda. Náms og kennsluaðferðir: Lestur og skriftir, fyrirlestur
MA ritgerð (MA5005100, MA5005100, MA5005100)
Meistaraprófsritgerð er skilað og hún varin, þ.e. nemandinn flytur opinn fyrirlestur um verkefni sitt og svarar spurningum prófnefndar og áheyrenda. Náms og kennsluaðferðir: Lestur og skriftir, fyrirlestur
MA ritgerð (MA5005100, MA5005100, MA5005100)
Meistaraprófsritgerð er skilað og hún varin, þ.e. nemandinn flytur opinn fyrirlestur um verkefni sitt og svarar spurningum prófnefndar og áheyrenda. Náms og kennsluaðferðir: Lestur og skriftir, fyrirlestur
Hafðu samband
Hægt er að hafa samband við þjónustuborð Háskólans á Hólum og senda fyrirspurnir varðandi nám og umsóknir á netfangið holar@hi.is.
Fylgdu okkur á:
