Skip to main content
11. maí 2026

Námsleið í umhverfis- og auðlindafræði hlýtur ársfundarverðlaun HÍ

Námsleið í umhverfis- og auðlindafræði hlýtur ársfundarverðlaun HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Námsleið í umhverfis- og auðlindafræði hlýtur verðlaun fyrir frumkvæði og forystu innan Háskóla Íslands árið 2026 en þau voru afhent á ársfundi skólans sem fram fór í Hátíðasal Aðalbyggingar í dag. Ársfundurinn var helgaður samstarfi þvert á fræðigreinar innan skólans. 

Þetta var í áttunda sinn sem verðlaunin voru afhent en þau eru ætluð hópi eða teymi sem hefur sýnt sérstakt frumkvæði og forystu við þróun og uppbyggingu framúrskarandi starfs innan Háskóla Íslands. 

Kennarar sem standa að námsleiðinni umhverfis- og auðlindafræði hljóta verðlaunin fyrir frumkvæði og forystu í þverfræðilegu samstarfi en námsleiðin er eina þverfræðilega framhaldsnámið við Háskóla Íslands sem tengist öllum fimm fræðasviðum skólans. 

Um þessar mundir eru 20 ár frá því að kennsla hófst í umhverfis- og auðlindafræði en með stofnun hennar var brugðist við ákalli úr samfélaginu um aukna þekkingu og rannsóknir tengdar umhverfis- og sjálfbærnimálum.
 

Hluti kennara og annars starfsfólks við námsleið í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands ásamt rektor skólans. Námsleiðin er eina þverfræðilega framhaldsnámið við Háskóla Íslands sem tengist öllum fimm fræðasviðum skólans MYND/Kristinn Ingvarsson

„Stjórnendur og kennarar námsleiðarinnar hafa þróað alþjóðlegt og metnaðarfullt nám. Allt frá upphafi hefur námsleiðin brotið niður hefðbundna deildarmúra og mörk fræðigreina og  skapað þannig vettvang bæði fyrir starfsfólk og nemendur, þar sem ólík sjónarhorn mætast og ný þekking verður til,“ sagði Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, þegar tilkynnt var um verðlaunahafana á ársfundi skólans.

Um 400 nemendur hafa brautskráðst úr námsleiðinni frá upphafi, búnir þekkingu og færni til að starfa þvert á fræði, faggreinar og landamæri við úrlausn flókinna áskorana samtímans. Benti rektor á að sá árangur væri skýr vitnisburður um hverju markvisst frumkvæði og sterk forysta geta skilað. „Með verðlaununum viljum við undirstrika mikilvægi þess að háskólinn auðveldi þekkingarsköpun þvert á fræðasvið. Sem fyrirmynd þverfræðilegs starfs við Háskóla Íslands er námsleiðin í umhverfis- og auðlindafræði verðugur handhafi þessara verðlauna,“ sagði rektor enn fremur.

Þau Brynhildur Davíðsdóttir og Lára Jóhannsdóttir, prófessorar í umhverfis- og auðlindafræði, og Sveinn Agnarssonm, prófessor og formaður stjórnar meistara- og doktorsnáms í umhverfis- og auðlindafræði, tóku við viðurkenningunni úr hendi Silju Báru R. Ómarsdóttur rektors á ársfundinum í dag.