Skip to main content

Þroskaþjálfafræði - Örnám

Þroskaþjálfafræði - Örnám

Menntavísindasvið

Þroskaþjálfafræði

Örnám – 30 einingar

Örnám er 30 eininga fræðilegt og starfstengt nám og er ætlað þeim sem lokið hafa BA-prófi í þroskaþjálfafræði og vilja styrkja sig í starfi. 

Skipulag náms

X

Þroskaþjálfar í menntakerfinu (ÞRS103F)

Á námskeiðinu er fjallað um hlutverk þroskaþjálfa á ólíkum stigum og sviðum menntakerfis. Hugmyndafræðin um inngildandi menntun verður sett í samhengi við hugmyndir, lykilhugtök og faglegar áherslur  þroskaþjálfafræða. Sjónum er beint að  leiðtoga- og ráðgjafahlutverk þroskaþjálfa í íslensku menntakerfi, með áherslu á stuðning við virka og fulla þátttöku, teymisvinnu og þverfaglegt samstarf.

Fjallað verður um þróun og framkvæmd stoðþjónustu innan menntakerfis á Íslandi og stuðningshugtakið skoðað frá víðu sjónarhorni með því að líta til allra leiða og aðgerða sem auka hæfni menntastofna og samfélags til að mæta fjölbreytileikanum. Horft verður til þess hvernig hægt sé að virkja umhverfið til stuðnings og gera stuðninginn sjálfbæran.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Kennsluskrifstofa Menntavísindasviðs

1. hæð, Stakkahlíð – Enni
s. 525 5950 mvs@hi.is

Opið kl. 8.15 – 15.00 alla virka daga

Fylgstu með Menntavísindasviði

 Instagram   Youtube 
 Facebook

Stakkahlíð

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.