Skip to main content

Áfengis- og vímuefnamál - Örnám

Áfengis- og vímuefnamál - Örnám

Félagsvísindasvið

Áfengis- og vímuefnamál

Örnám á framhaldsstigi – 30 einingar

Markmið námsleiðarinnar er að koma til móts við þörf fyrir sérhæfða þekkingu og færni á sviði áfengis- og vímuefnamála. Nemendur fá fræðilega og hagnýta þekkingu um málefni einstaklinga með áfengis- og vímuefnaröskun og áhrifin sem það getur haft á aðra fjölskyldumeðlimi og fjölskyldukerfi. 

Skipulag náms

X

Áfengis- og vímuefnamál I: Stefnumótun, þverfagleg nálgun og skilgreiningar (FRG119F)

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á félagslegum, sálfræðilegum og læknisfræðilegum þáttum áfengis- og vímuefnaneyslu og þróun áfengis- og vímuefnaröskunar. Fjallað er um skimun, greiningarlíkön og einkenni vímuefnaröskunar, auk þess sem gerður er samanburður á samfélagslegum og menningarlegum þáttum áfengis- og vímuefnaneyslu.

Jafnframt er fjallað um hlutverk stefnumótunar og löggjafar í tengslum við forvarnir og meðferðarúrræði, með áherslu á þverfaglegt samstarf og hvernig áfengis- og vímuefnaröskun getur þróast með ólíkum hætti hjá mismunandi hópum.

Námskeiðið er kennt í tveimur þriggja daga staðlotum. Skyldumæting er í lotur.

X

Áfengis- og vímuefnamál II: Meðferðarlíkön, forvarnir og vinnulag með einstaklingum með áfengis- og vímuefnaröskun (FRG228F)

Námskeiðið fjallar um áfengis- og vímuefnamál sem þverfaglegt fræðasvið og miðar að því að nemendur öðlist þekkingu á beitingu gagnreyndra aðferða í meðferð og þjónustu við ólíka hópa. Fjallað er um helstu einkenni vímuefnaröskunar, bataferli einstaklinga með vímuefnaröskun og fallþróun.

Áhersla er lögð á að dýpka skilning nemenda á málefnum fólks með vímuefnaröskun og efla hæfni þeirra til að vinna í þverfaglegu samstarfi að velferðarmálum þessa hóps.

Námskeiðið er kennt í tveimur staðlotum, þrjá daga í senn.  Skyldumæting er í lotur.

X

Aðferðir í fjölskyldumeðferðarvinnu einstaklinga með áfengis- og vímuefnaröskun (FRG231F)

Námskeiðið fjallar um áhrif áfengis- og vímuefnaröskunar einstaklings á aðra fjölskyldumeðlimi og fjölskyldukerfi. Kynntar eru helstu rannsóknir, kenningar og meðferðarnálganir í fjölskyldumeðferð og í vinnu með einstaklingum og fjölskyldum sem búa við áfengis- og vímuefnaröskun.

Jafnframt er fjallað um tengsl áfengis- og vímuefnaneyslu við heimilisofbeldi, sem og streitutengda andlega og líkamlega heilsuvanda aðstandenda.

Námskeiðið er kennt í tveimur staðlotum á misseri, þrjá daga í senn.  Skyldumæting er í lotur.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500 
Netfang: nemFVS@hi.is

Opið virka daga frá 09:00 - 15:00 
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík

Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs

Félagsráðgjafardeild á samfélagsmiðlum

 Facebook

Gimli, Háskóli Íslands

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.