Mannauðsstjórnun

Mannauðsstjórnun
MS – 90 einingar
Meistaranám í mannauðsstjórnun er fræðilegt og hagnýtt nám fyrir þau sem vilja öðlast þekkingu og skilning á stjórnun mannauðs innan fyrirtækja og stofnana.
Námið snertir alla helstu grundvallarþætti í rekstri stofnana og fyrirtækja.
Skipulag náms
- Haust
- Þróun mannauðs og frammistaða.
- Inngangur að rekstri
- Stefnumiðuð mannauðsstjórnun
- Starf stjórnandans, forysta og samskiptiB
- Hagnýt tölfræðiB
- Vor
- Vinnuréttur og samskipti á vinnumarkaði
- Inngangur að rekstri
- Vinnusálfræði, ráðningar og stafræn tækni
- Breytingastjórnun og innleiðing stefnuB
- Eigindleg aðferðafræðiB
Þróun mannauðs og frammistaða. (VIÐ1ABF)
Námskeiðið fjallar um frammistöðustjórnun og markvissa þróun fjölbreytts mannauðs sem samþætta þætti í stjórnun fólks og árangri skipulagsheilda. Áhersla er lögð á hönnun, innleiðingu og þróun frammistöðustjórnunarkerfa ásamt því hvernig reglubundin og uppbyggjandi endurgjöf, hvatning, námskenningar og starfsþróun styðja við hæfniþróun, þátttöku og framleiðni starfsfólks. Fjallað er um þjálfunar- og starfsþróunaráætlanir, tengsl frammistöðumats við nám og þróun, og hvernig stjórnendur geta nýtt frammistöðugögn til að styðja upplýsta ákvarðanatöku. Einnig er tekin fyrir fagleg og ábyrg viðbrögð við frammistöðuvanda, þar á meðal umbótaáætlanir, erfið samtöl og fagleg viðtöl, auk siðferðilegra og lagalegra álitaefna tengdra uppsögnum og starfslokum. Námskeiðið skoðar jafnframt áhrif frammistöðustjórnunar, uppsagna og starfsloka á vinnustaðamenningu og starfsanda, og leiðir til að draga úr neikvæðum áhrifum slíkra ferla í skipulagsheildum.
Inngangur að rekstri (VIÐ155M)
Markmiðið með námskeiðinu er að gefa nemendum breiða og haldgóða innsýn í þau fyrirbæri, lögmál og kenningar sem viðskiptafræðingum nauðsynlegt er að þekkja við rekstur bæði fyrirtækja og stofnana.
Námskeiðið byggist upp af fimm efnisþáttum:
• fjármál
• lögfræði
• rekstrarhagfræði
• reikningshald
• þjóðhagfræði
Fyrirkomulag:
Námskeiðið Inngangur að rekstri er í boði tvisvar á ári og eiga nemendur að ljúka því á fyrsta ári náms síns. Annars vegar í ágúst og hins vegar í janúar. Nemendur sem hefja nám að hausti gera best í því að ljúka námskeiðinu í ágúst, en hafa þó möguleika á að ljúka því í janúar. Nemendur sem hefja nám í janúar skulu ljúka námskeiðinu í janúar en geta þó einnig tekið það í ágúst.
Námskeiðið opnar 1. hvors mánaðar og lokar þann 31. Allt námsefni verður aðgengilegt frá þeim 1.
Námskeiðið nýtist ekki til eininga í meistaranáminu.
Stefnumiðuð mannauðsstjórnun (VIÐ1AAF)
Námskeiðið fjallar um mannauðsstjórnun sem stefnumiðaðan þátt í rekstri skipulagsheilda. Áhersla er lögð á hvernig mannauðsáætlanir eru samþættar heildarstefnu og markmiðum fyrirtækja og stofnana til að styðja við afköst og samkeppnishæfni. Nemendur vinna með hæfileikastjórnun, mælikvarða og greiningar til að meta áhrif mannauðsstjórnunar og styðja upplýsta ákvarðanatöku. Á grundvelli þessarar þekkingar er sjónum beint að alþjóðlegri mannauðsstjórnun, þar sem fjallað er um aðlögun stefnu, verklags og mannauðsákvarðana í fjölþjóðlegu og menningarlega fjölbreyttu og síbreytilegu starfsumhverfi
Starf stjórnandans, forysta og samskipti (VIÐ182F)
Í forgrunni námskeiðsins er starf stjórnandans, á öllum stjórnstigum, eðli þess og áskoranir. Starfsmannamál sem og samskiptaþátturinn er í brennipunkti og rauður þráður í öllum viðfangsefnum eða þáttum námskeiðsins. Forystuhlutverk stjórnandans er sérstaklega til skoðunar. Það er sett í samhengi við stjórnun mannauðsmála almennt og tengt við að stjórna starfsfólki í umbótaverkefnum og róttækum breytingum. Forysta er einnig skoðuð í tengslum við árangursríka teymisvinnu og aðferðir við að leysa og höndla ágreining og erfið starfsmannamál.
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpa þekkingu á merkingu lykilhugtaka og góðan skilning á kenningarlegum viðmiðum, aðferðum og mögulegum leiðum stjórandans til að sinna starfinu með árangursríkum hætti. Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir með það að markmiði að ýta undir áhuga, virkni og þátttöku nemenda.
Hagnýt tölfræði (VIÐ1ADF)
Markmið þessa námskeiðs er að styrkja tölfræði og aðferðafræði þekkingu nemenda og gera þeim betur kleift að tileinka sér rannsóknaraðferðir og rannsóknarniðurstöður. Farið verður yfir vandaðar rannsóknir og fjallað um þá tölfræði og aðferðafræði sem er nauðsynleg til að framkvæma þær. Einnig er ætlast til að nemendur framkvæmi sitt eigið rannsóknarverkefni sem undirbúning undir greiningarvinnu í atvinnulífinu og lokaverkefni til mastersgráðu.
Vinnuréttur og samskipti á vinnumarkaði (VIÐ2A0F)
Námskeiðið fjallar um samskipti aðila vinnumarkaðarins og lagalegan ramma vinnusambandsins með sérstakri áherslu á íslenskan vinnumarkað. Markmið námskeiðsins er að veita nemendum heildstæða fræðilega og hagnýta þekkingu á vinnumarkaðsfræðum og vinnurétti. Fjallað er um stofnanauppbyggingu vinnumarkaðarins, hlutverk og samskipti ríkisvalds, vinnuveitenda og stéttarfélaga, kjarasamninga, vinnudeilur og verkfallsrétt. Jafnframt er farið yfir réttindi og skyldur aðila vinnusambands, þar á meðal ráðningarsamband, laun, vinnutíma, orlof, veikindarétt, jafnrétti, einelti og lok vinnusambands. Áhersla er lögð á að nemendur geti greint raunhæf mál, beitt fræðilegri og lagalegri þekkingu og tekið upplýstar ákvarðanir í faglegu samhengi.
Inngangur að rekstri (VIÐ155M)
Markmiðið með námskeiðinu er að gefa nemendum breiða og haldgóða innsýn í þau fyrirbæri, lögmál og kenningar sem viðskiptafræðingum nauðsynlegt er að þekkja við rekstur bæði fyrirtækja og stofnana.
Námskeiðið byggist upp af fimm efnisþáttum:
• fjármál
• lögfræði
• rekstrarhagfræði
• reikningshald
• þjóðhagfræði
Fyrirkomulag:
Námskeiðið Inngangur að rekstri er í boði tvisvar á ári og eiga nemendur að ljúka því á fyrsta ári náms síns. Annars vegar í ágúst og hins vegar í janúar. Nemendur sem hefja nám að hausti gera best í því að ljúka námskeiðinu í ágúst, en hafa þó möguleika á að ljúka því í janúar. Nemendur sem hefja nám í janúar skulu ljúka námskeiðinu í janúar en geta þó einnig tekið það í ágúst.
Námskeiðið opnar 1. hvors mánaðar og lokar þann 31. Allt námsefni verður aðgengilegt frá þeim 1.
Námskeiðið nýtist ekki til eininga í meistaranáminu.
Vinnusálfræði, ráðningar og stafræn tækni (VIÐ2A1F)
Námskeiðið fjallar um vinnusálfræðileg undirstöðuatriði ráðninga og starfsvals í samtímalegu vinnuumhverfi. Áhersla er lögð á hvernig fræðileg hugtök og líkön vinnusálfræðinnar nýtast við greiningu starfa, skilgreiningu hæfniskrafna og hönnun markvissra ráðningar- og valferla. Fjallað er um ráðningar sem stefnumótandi og faglegt ferli, þar sem val, mat og ákvörðunartaka byggja á kerfisbundinni greiningu, mælanlegum viðmiðum og faglegu mati. Nemendur kynnast jafnframt uppbyggingu vinnuveitendamerkis, hæfileikastjórnun og tengslum ráðninga við langtímaþarfir skipulagsheilda. Í námskeiðinu er fjallað um notkun stafrænnar tækni, gagnagreiningar og gervigreindar í ráðningum sem stuðning við ákvarðanatöku, meðal annars til að auka skilvirkni og draga úr hlutdrægni. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur skilji bæði möguleika og takmarkanir slíkra lausna. Jafnframt er fjallað um siðferðileg, lagaleg og fagleg álitaefni tengd ráðningum, notkun gagna og stafrænnar tækni, og ábyrgð mannauðsstjórnenda við meðferð upplýsinga og ákvarðanatöku.
Breytingastjórnun og innleiðing stefnu (VIÐ2A5F)
Í þessu námskeiði verður farið yfir helstu atriði breytingastjórnunar, s.s. innleiðingu breytinga, viðbrögð starfsmanna, helstu hindranir í vegi breytinga ásamt þeim hamlandi og hvetjandi kröftum sem eru að verki í breytingaferlinu. Farið verður ítarlega í kenningar og aðferðir sem breytingastjórnun byggir á og ræddar verða algengustu lausnir og aðferðir í stjórnun breytinga. Rætt verður um hlutverk leiðtoga, stjórnenda almennt og milli stjórnenda í breytingum sem og krísustjórnun. Fjallað verður einnig um fyrirtækjamenningu og hvers vegna hún er mikilvægur þáttur í breytingaferlinu. Námskeiðið fjallar um breytingastjórnun sem lykilþátt í stefnumiðaðri stjórnun og stjórnarháttum fyrirtækja. Áhersla er lögð á helstu kenningar, líkön og aðferðir breytingastjórnunar og hvernig þau tengjast mótun stefnu, innleiðingu stefnu og eftirfylgni í skipulagsheildum. Nemendur öðlast hæfni til að greina og meta breytingaferli í ljósi skipulags, framkvæmdar og mannlegra þátta, þar á meðal viðbragða starfsmanna, fyrirtækjamenningar og hvetjandi og hamlandi krafta sem hafa áhrif á árangur breytinga. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk leiðtoga, stjórnenda og stjórna fyrirtækja, ábyrgð þeirra á stefnumótandi forystu, góðum stjórnarháttum og trúverðugri innleiðingu breytinga. Í námskeiðinu vinna nemendur með raunveruleg dæmi og tilfellarannsóknir, þar sem þeir beita viðurkenndum verkfærum breytingastjórnunar til að umbreyta stefnumótandi ákvörðunum í raunhæfar aðgerðir og skipulagslegar breytingar. Einnig er fjallað um krísustjórnun og hvernig bregðast megi við óvæntum áföllum á stefnumiðaðan og skipulagðan hátt. Kennsla byggir á fyrirlestrum, umræðum, einstaklings- og hópverkefnum, og miðar að því að styðja gagnrýna hugsun, hagnýta færni og sjálfstæða greiningu. Námskeiðið gerir ráð fyrir virkri þátttöku nemenda og að þeir tengi fræðileg viðmið við raunverulegar áskoranir í stjórnun breytinga, með það að markmiði að móta heildstæða og raunhæfa nálgun að breytingastjórnun í flóknu og síbreytilegu rekstrarumhverfi.
Eigindleg aðferðafræði (VIÐ2A4F)
Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir eigindlegar aðferðir, sem notaðar eru til að safna og greina gögn um einstaklinga og skipulagsheildir. Nemendur munu fá þjálfun í að skilgreininga vandamál og semja rannsóknarspurningu. Þá munu nemendur skipuleggja og framkvæma gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og greina frá niðurstöðum skriflega. Nemendur munu kynnast veikum og sterkum hliðum mismunandi aðferða innan eigindlegra rannsóknaraðferða, þannig að þeir geti valið þá aðferð, sem best hentar til að leysa tiltekið vandamál.
- Óháð misseri
- MS ritgerð
- MS ritgerð
- MS ritgerð
MS ritgerð (MAU431L, MAU431L, MAU431L)
Meistaraprófsritgerð skal valin í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar.
Ritgerðin skal vera 30 einingar og kynna nemendur niðurstöður rannsókna sinna.
Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaraprófsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands.
Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
Æski stúdent þess að MS ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra Kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans. Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.
Umsókn um lokun meistararitgerða.

Hafðu samband
Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500
Netfang: nemFVS@hi.is
Opið virka daga frá 09:00 - 15:00
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs
Viðskiptafræðideild á samfélagsmiðlum

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.