Skip to main content

Viðskiptafræði

Viðskiptafræði

Félagsvísindasvið

Viðskiptafræði

MS – 90 einingar

Meistaranám í viðskiptafræði byggir á þverskurði af viðskiptafræðunum með það að markmiði að gefa nemendum heildstæða þekkingu sem nýtist vel í atvinnulífinu sem og við rannsóknir á starfsemi fyrirtækja í heild sinni.

Skipulag náms

X

Hagnýt tölfræði (VIÐ1ADF)

Markmið þessa námskeiðs er að styrkja tölfræði og aðferðafræði þekkingu nemenda og gera þeim betur kleift að tileinka sér rannsóknaraðferðir og rannsóknarniðurstöður. Farið verður yfir vandaðar rannsóknir og fjallað um þá tölfræði og aðferðafræði sem er nauðsynleg til að framkvæma þær.  Einnig er ætlast til að nemendur framkvæmi sitt eigið rannsóknarverkefni sem undirbúning undir greiningarvinnu í atvinnulífinu og lokaverkefni til mastersgráðu.

X

Viðskiptasiðfræði (VIÐ191F)

Námskeiðið fjallar um siðferðilegar áskoranir í rekstri fyrirtækja og hvernig þær birtast innan fyrirtækja og í samskiptum þeirra við hagsmunaaðila, stjórnvöld og samfélagið í heild. Áhersla er lögð á að nemendur greini, beiti, meti, rökstyðji og móti siðferðilegar lausnir á raunveruleg viðfangsefni viðskipta með hliðsjón af kenningum viðskiptasiðfræðinnar.

Kennsluefni og verkefni byggja á raunhæfum dæmisögum, fræðilegum textum og samvinnu við aðila úr atvinnulífi. Nemendur vinna markvisst að því að greina siðferðileg álitamál, beita fræðilegum nálgunum, meta ólíkar leiðir fyrirtækja, rökstyðja eigin siðferðilega afstöðu og móta hagnýtar tillögur að ferlum og/eða stefnum í flóknu samfélagslegu samhengi.

Námskeiðið leggur jafnframt áherslu á að nemendur þrói meðvitaða og ábyrgða afstöðu til eigin hlutverks sem sérfræðingar og stjórnendur, í takt við gildi Háskóla Íslands um samfélagslega ábyrgð, jafnrétti, sjálfbærni og nýsköpun, með gott siðferði að leiðarljósi.

Nemendur velja umfang námskeiðsins út frá ECTS einingum. Námskeiðið er hægt að taka sem 7,5 ECTS einingar, 6 ECTS einingar (nemendur úr heimspeki), 3 ECTS einingar og 1,5 ECTS einingar.

Athygli er vakin á því að námskeiðið er kennt í fyrstu lotu haustannar, samkvæmt lotukerfi meistaranáms Viðskiptafræðideildar. 

X

Virðismat fyrirtækja (VIÐ187F)

Verðmat á fyrirtækjum og mat á fjárfestingum. Fjallað er um innihald ársreikninga og greiningu þeirra í tengslum við verðmat og mat á fjárfestingum. Farið er yfir aðferðir sem henta við verðmat á mismunandi fyrirtækjum s.s. rekstrarfélögum, fasteignafélögum, bönkum, tryggingafélögum o.s.frv.

X

Eigindleg aðferðafræði (VIÐ2A4F)

Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir eigindlegar aðferðir, sem notaðar eru til að safna og greina gögn um einstaklinga og skipulagsheildir. Nemendur munu fá þjálfun í að skilgreininga vandamál og semja rannsóknarspurningu. Þá munu nemendur skipuleggja og framkvæma gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og greina frá niðurstöðum skriflega. Nemendur munu kynnast veikum og sterkum hliðum  mismunandi aðferða innan eigindlegra rannsóknaraðferða, þannig að þeir geti valið þá aðferð, sem best hentar til að leysa tiltekið vandamál.

X

Stefnumiðuð stjórnun (VIÐ265F)

Námskeiðið miðar að því gegnum fyrirlestra og umræðu um kennsluefnið að nemendur tileinki sér þekkingu á stefnumótun og stefnumiðaðri stjórnun af hinum fjölbreytta fræðilega grunni sem til er í faginu. Gegnum vinnu með dæmisögur og íslensk raundæmi er markvisst ýtt undir leikni og hæfni nemenda á þessu sviði. Í námskeiðinu er horft á stefnumiðaða stjórnun út frá nokkrum sjónarhólum og út frá mismunandi gerðum fyrirtækja. Farið er vel í stöðumat og greiningu á ytra og innra umhverfi, rýnt í mótun stefnu og framvindu stefnumiðaðs starfs í reynd. Kafað er í stefnu út frá m.a. nýsköpun, samrunum, samstarfi, völdum og hagsmunabaráttu. Kennslan tekur mið af því að nám er ferli til að bæta kunnáttu þar sem saman fer inntak námskeiðsins, samhengi þess og framvinda lærdóms. Allt starf í námskeiðinu miðast að því að nemendur nái sem bestum árangri – en námsárangurinn veltur að sjálfsögðu á virkni og ástundun nemandans.

X

MS-ritgerð (VIÐ431L)

Meistaraprófsritgerð skal valin í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar.

Ritgerðin skal vera 30 einingar og kynna nemendur niðurstöður rannsókna sinna.

Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaraprófsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands.

Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
Æski stúdent þess að MS ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra Kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans. Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.

Umsókn um lokun meistararitgerða.

X

MS ritgerð (VIÐ431L)

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hvað segja nemendur?

Jana Katrín Knútsdóttir,  sölu- og markaðsstjóri Icepharma
Vilborg Einarsdóttir, meðstofnandi Mentors ehf.
Jana Katrín Knútsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Icepharma
MS í stjórnun og stefnumótun

Það voru nokkrar ástæður fyrir því að ég valdi meistaranám við Háskóla Íslands. Í fyrsta lagi er nám úr HÍ mikils metið á vinnumarkaði.  Námsleiðirnar sem eru í boði eru fjölbreyttar og áhugaverðar og höfðuðu til mín. Svo er Háskóli Íslands ríkisrekinn og námið er tiltölulega ódýrt. Kennslan var bæði fjölbreytt og skemmtileg, hún krafðist undirbúnings og þátttöku í tímum og það voru farnar nýjar leiðir í kennslunni til að höfða til sem flestra. Það komu oft gestafyrirlesarar til okkar út atvinnulífinu og sögðu okkur sína sögu og svo vorum við líka hvött til þess að fara út í atvinnulífið í verkefnavinnunni, út á vinnumarkaðinn og inn í fyrirtæki. Námið nýtist mér mjög vel í starfi í dag, ég fékk vinnu hjá draumafyrirtækinu mínu. Hér gegni ég stöðu sölu- og markaðsstjóra á heilbrigðissviði og viðskiptafræðimenntun mín og grunnmenntun í hjúkrunarfræði nýtast mér mjög vel.

Vilborg Einarsdóttir, meðstofnandi Mentors ehf.
MS í stjórnun og stefnumótun

Námið hefur nýst mér mjög vel, ég fór í stjórnun og stefnumótun og það kemur beint inn í það verkefni sem ég hef verið að vinna að síðustu ár, sem er að byggja upp fyrirtæki á alþjóðlegum markaði á sviði menntatækni. Það er ekki bara að maður læri af kennurunum heldur snýst þetta líka um það að læra í verkefnavinnu. Við erum búin að halda sambandi ákveðinn kjarni síðan í náminu og hittumst reglulega og það er gríðarlegur styrkur og ég er enn að læra.

Hafðu samband

Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500 
Netfang: nemFVS@hi.is

Opið virka daga frá 09:00 - 15:00 
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík

Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs

Viðskiptafræðideild á samfélagsmiðlum

 Instagram    Facebook

Gimli, Háskóli Íslands

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.