Íslensk fræði

Íslensk fræði
MA – 120 einingar
Meistaranám í íslenskum fræðum hentar þeim sem vilja bæði læra bókmenntir og málfræði. Markmið námsins er að veita nemendum vísindalega þjálfun og búa þá undir framhaldsnám og störf af ýmsu tagi.
Skipulag náms
- Haust
- Rannsóknarverkefni BV
- Rannsóknarverkefni AV
- Vinnustofa: Klínísk málvísindi og heilbrigðismáltækniV
- Söguleg setningafræðiV
- Íslenskt málkerfi og máltækniV
- Vinnustofa: Rannsóknir á íslenskum nútímabókmenntum á 21. öldV
- Kalt stríð: Menning, listir og bókmenntirV
- Um Völsunga í bókmenntum, list og afþreyinguV
- Rannsóknaraðferðir í málvísindumV
- Ritstjórn og fræðileg skrifV
- Forritun í máltækniV
- Vor
- Rannsóknarverkefni AV
- Rannsóknarverkefni BV
- Mál og samfélagV
- Vinnustofa í menningarblaðamennskuV
- Vinnustofa: Rannsóknir á íslenskum miðaldabókmenntum á 21. öldV
- MálheildirV
- Frásögn, kvikmyndir og menning í verkum SjónsV
- Hjarðljóð og huggunarkvæðiV
- Náttúrusögur: (yfir)náttúra í þjóðsögum og bókmenntum fyrri aldaV
- Íslenskar og færeyskar samtímabókmenntirV
- Íslenska í skólakerfinuV
- Íslensk miðaldahandritV
- Íslensk og erlend setningagerðV
Rannsóknarverkefni B (ÍSL804F)
Nemandi skráir sig í rannsóknarverkefni í samráði við kennara sem tekur að sér hlutverk leiðbeinanda. Í sameiningu skilgreina þeir verksvið, leslista, tegund verkefnis (skýrsla, ritgerð o.s.frv.) og fyrirkomulag vinnufunda. Frekari upplýsingar veitir greinarformaður.
Rannsóknarverkefni A (ÍSL440F)

Vinnustofa: Klínísk málvísindi og heilbrigðismáltækni (ÍSL602F)
Þegar við hringjum í manneskju sem við þekkjum vel þurfum við aðeins örfáar sekúndur til að átta okkur á því hvernig við hittum á - hvort hún sé t.d. nývöknuð, í uppnámi eða kvefuð. Við heyrum jafnvel hvort hún sé brosandi, allt út frá vísbendingum í röddinni, talinu og málbeitingunni. Hvað ef við gætum beislað þessar upplýsingar og mælt þær? Hvaða aðrar vísbendingar eru til staðar þegar við tölum? Eru merki um sjúkdóma sem eiga eftir að greinast eða þroskaraskanir sem er erfitt að mæla? Nýlegar rannsóknir benda til þess að svo sé. Upptökur á tali fólks, svokölluð málsýni, hafa til dæmis að geyma vísbendingar um það hvort einhver sé á fyrstu stigum taugahrörnunarsjúkdóms á borð við Alzheimer, Parkinson og MND, jafnvel áður en viðkomandi finnur fyrir breytingum á færni í daglegu lífi.
Málsýni eru auk þess eitt nákvæmasta tólið í verkfærakistu talmeinafræðinga og með þeim er hægt að greina ýmis smáatriði í málnotkun einstaklinga sem önnur tæki á borð við stöðluð próf grípa ekki. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar kemur að því að greina málþroskaröskun hjá fjöltyngdum börnum en reynst hefur einstaklega erfitt að þróa áreiðanlegar mælingar á málþroska þeirra. Örar framfarir í máltækni undanfarinn áratug hafa umbylt þessu sviði klínískra málvísinda þannig að sprottið hafa ýmsar lausnir á sviði heilbrigðismáltækni sem greina tal og mál sjálfvirkt.
En virka þessar tæknilausnir þvert á tungumál? Eru einkenni málþroskaröskunar og taugahrörnunasjúkdóma eins í íslensku og öðrum tungumálum? Hvað geta svörin við þessum spurningum sagt okkur um mannlegt mál og mannshugann? Þessar spurningar verða undirliggjandi í vinnustofunni þar sem nemendur fá tækifæri til þess að taka þátt í yfirstandandi rannsóknum á sviði klínískra málvísinda og heilbrigðismáltækni undir leiðsögn kennara.
Lýsingu á námskeiðsforminu, þ.e. vinnustofu, má finna hér
Söguleg setningafræði (ÍSM801F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er að lýsa meginatriðum í setningagerð íslensks fornmáls og gera grein fyrir helstu breytingum sem hafa orðið á setningagerð málsins allt til nútímans. Þar má nefna breytingar á orðaröð, sagnasamböndum, fallstjórn, afturbeygingu, o.fl. Nemendur verða þjálfaðir í að nota Sögulegan íslenskan trjábanka til að leita að dæmum um ýmis setningafræðileg atriði og greina þau. Jafnframt verður farið yfir helstu kenningar um uppkomu og eðli setningafræðilegra breytinga og þessar kenningar bornar að íslenskum gögnum.
Íslenskt málkerfi og máltækni (MLT301F)
Námskeiðið er ætlað máltækninemum sem ekki hafa málfræðibakgrunn. Tilgangur þess er að gefa yfirlit um helstu einkenni íslensks málkerfis, einkum þau sem huga þarf sérstaklega að við vélræna greiningu. Helstu viðfangsefnin verða íslenskt hljóðkerfi og hljóðritun (IPA og SAMPA); íslenskt beygingarkerfi og orðmyndun með sérstakri áherslu á málfræðilega mörkun og markamengi; og íslensk setningagerð með áherslu á þáttun, bæði liðgerðarvensl (phrase structure) og hæðisvensl (dependency).
Vinnustofa: Rannsóknir á íslenskum nútímabókmenntum á 21. öld (ÍSB722F)
Í vinnustofunni verður fjallað um helstu rannsóknir sem gerðar hafa verið á íslenskum nútímabókmenntum á 21. öld. Allir nemendur taka virkan þátt í umræðum og verkefnum og deila með kennara ábyrgð á miðlun þekkingar og framgangi vinnunnar. Kennararnir eru faglegir leiðtogar, verkstjórar og umræðustjórar en halda ekki formlega fyrirlestra. Áhersla verður lögð á rannsóknarmiðað nám sem felst í því að nemendur skilgreina rannsóknarspurningar, finna rannsóknir, rýna þær, hafa á þeim skoðun og tjá sig um þær í hópi jafningja í rannsóknarhópi, safna eigin gögnum, greina þau og lýsa þeim, fá endurgjöf, veita öðrum endurgjöf og skrifa fræðilegan texta (rannsóknarritgerð).

Kalt stríð: Menning, listir og bókmenntir (LIS710F)
Í námskeiðinu verður rýnt í tengsl pólitískrar og fagurfræðilegrar orðræðu á Íslandi á tímum kalda menningarstríðsins sem stórveldin tvö, Bandaríkin og Sovétríkin, háðu um hugi og hjörtu heimsbyggðarinnar á síðari hluta 20. aldarinnar. Byggt verður á þverfaglegum rannsóknum á kalda stríðinu með áherslu á samspil hnattrænna (e. global) áhrifa og staðbundina aðstæðna. Þessi heimanlega (e. glocal) nálgun gerir það mögulegt að skoða íslenska gerendur (e. agents) í kalda stríðinu ekki aðeins sem fulltrúa heimsveldanna tveggja, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, heldur líka á forsendum eigin menningar og hagsmuna. Beitt verður blönduðum aðferðum og kenningum félagsvísinda, list-, bókmennta- og sagnfræði. Lögð verður sérstök áhersla á greiningu bókmenntatexta og listaverka en einnig verður gaumur gefin að þátttöku íslenskra mennta- og listamanna í alþjóðlegu menningarstarfi. Nemendur kynnast því hvernig fjallað hefur verið um kalda stríðið á síðustu árum bæði á fræðilegum vettvangi en líka í miðlun til almennings gegnum sýningar, hlaðvörp og teiknimyndasögur.
Um Völsunga í bókmenntum, list og afþreyingu (ÍSB819F)
Í námskeiðinu verður Völsunga saga lesin og greind út frá ólíkum sjónarhornum, í nánu samhengi við þau hetjukvæði sem hún byggist á. Í upphafi verður sagan greind sem bókmenntaverk en að því loknu verða einstakir efnisþættir skoðaðir, svo sem af Sigurði Fáfnisbana og forfeðrum hans, Gjúkungum, Atla og Jörmunreki. Þá verða hliðstæður þáttanna skoðaðar í evrópsku samhengi, hvort heldur sem er í sagnaritun, kveðskap eða list. Að lokum verður litið til varðveislu efnisins í gegnum aldirnar og birtingarmyndar þess í ólíkum list- og textaformum, t.d. óperu, kvikmyndum, myndlist, þjóðsögum, þjóðkvæðum, rímum og danskvæðum. Markmiðið er að sýna fram á þá margþættu og margbreytilegu þræði sem liggja á milli sögunnar og eldri sem yngri birtingarmynda efniviðarins.
Rannsóknaraðferðir í málvísindum (AMV701F)
Námskeiðið er ætlað meistaranemum í almennum málvísindum og íslenskri málfræði en gagnast einnig öðrum meistaranemum sem fást við málfræðirannsóknir. Í námskeiðinu er fjallað um helstu rannsóknaraðferðir í málvísindum, bæði að því er varðar tilraunagögn og náttúruleg gögn. Kennd verða grundvallaratriði í hönnun dómaprófa, eyðufyllinga, framköllunarprófa, tilrauna af ýmsu tagi og leit í málheildum eins og Risamálheildinni og IcePaHC. Fjallað verður um rannsóknaraðferðir sem tengjast einstökum sviðum málvísinda, t.d. setningafræði, hljóðkerfisfræði, félagslegum málvísindum, sögulegum málvísindum, sálfræðilegum málvísindum, samskiptamálfræði og fleiru. Einnig verður fjallað um greiningu og túlkun málfræðilegra gagna af öllu tagi, helstu kosti og galla ólíkra rannsóknaraðferða og siðfræði rannsókna í málvísindum.
Ritstjórn og fræðileg skrif (ÍSL101F)
Þjálfun í ýmsum þáttum er varða ritun fræðilegs efnis og ritstjórn. Ólíkar gerðir fræðilegra ritsmíða skoðaðar og metnar. Þjálfun í því að gera athugasemdir við skipulag og framsetningu á fræðilegum texta og í öðrum þáttum ritstjórnar. Áhersla lögð á ritun fræðilegra greina, en einnig hugað að samningu smærri verka (ráðstefnuútdrátta, ritdóma) og stærri (M.A.-ritgerða, doktorsritgerða, bóka). Fjallað um rannsóknaráætlanir, frágang handrita og ritstuld. Tekin dæmi af textum um ýmis efni, einkum málfræðileg, bókmenntaleg og sagnfræðileg. Stuðst við bókina Skrifaðu bæði skýrt og rétt (Höskuldur Þráinsson 2015).
Námskeiðið er opið nemendum á mörgum námsleiðum í MA-námi á Hugvísindasviði skv. reglum viðkomandi greina. Nemendur á MA-stigi í íslenskum bókmenntum, íslenskri málfræði, íslenskum fræðum og íslenskukennslu geta fengið námskeiðið metið sem hluta af þeirri skyldu sem þeir þurfa að uppfylla í meistarastigsnámskeiðum í íslenskum bókmenntum eða íslenskri málfræði. Nemendur í MA-námi í íslenskukennslu geta þó ekki haft þetta námskeið sem eina málfræði- eða bókmenntanámskeiðið á MA-ferlinum.
Forritun í máltækni (MLT701F)
Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað meistaranemum í máltækni sem taka námið við Íslensku- og menningardeild HÍ, hafa bakgrunn í málvísindum en lítinn sem engan í tölvunarfræði. Þetta námskeið taka þeir í flestum tilvikum samhliða námskeiðinu Tölvunarfræði 1a. Hafi einhver með annars konar bakgrunn áhuga á námskeiðinu er þó sjálfsagt að hafa samband við kennara fyrir frekari upplýsingar. Námskeiðið er samkennt með ÍSL333G Forritun fyrir hugvísindafólk á BA-stigi og allir nemendur sitja sömu fyrirlestrana en MA-nemar fá lengri verkefni en BA-nemar.
Tilgangur þessa námskeiðs er að styðja við nemendur á fyrstu stigum forritunar, aðstoða þá við að ná tökum á grunnþáttum hennar og veita þeim þjálfun í að leysa einföld en fjölbreytt máltækniverkefni í forritunarmálinu Python. Nemendur kynnast þar fyrir utan nokkrum málvinnslutólum sem hægt er að beita við textavinnslu.

Mál og samfélag (ÍSL004M)
Í þessu námskeiði verður fjallað um samspil tungumáls og samfélags með aðferðum og hugtökum félagslegra málvísinda og með hliðsjón af alþjóðlegum og innlendum rannsóknum á því sviði.
Rætt verður m.a. um málviðhorf, málsnertingu, mállýskur, málsnið og málstýringu. Hugað verður að ýmsum birtingarmyndum málnotkunar og breytileika í máli og að því hvernig þættir á borð við umhverfi, samhengi og bakgrunn málnotanda hafa áhrif á málnotkun og val málsniðs.
Yfirlit verður veitt um helstu rannsóknaraðferðir, eigindlegar og megindlegar, nýlega strauma í félagslegum málvísindum og aðferðir metnar með tilliti til rannsóknarefnis.
Kynntar verða rannsóknir á viðhorfum til málnotkunar og máls, eigin máls og annarra, ásamt því að ræða hvað óhefðbundin málnotkun hefur í för með sér. Í því samhengi verður sérstök áhersla lögð á mál þeirra sem tala íslensku sem erlent mál og stöðu innflytjenda.
Fjallað verður um stöðu íslensku í dag, einkum gagnvart ensku og öðrum tungumálum. Hugað verður að lögmálum um málstýringu og að hugmyndum fólks um tungumálið fyrr og síðar. Fjallað verður um íslenska málstefnu, málstýringu, málstöðlun og hreintunguhneigð frá ýmsum hliðum, m.a. í samtímalegu og sögulegu ljósi og með hliðsjón af erlendum málsamfélögum.
Til umræðu verður málnotkun tiltekinna félagshópa (t.d. unglinga) með tilliti til félagslegs hlutverks málnotkunarinnar innan hópsins annars vegar og innan málsamfélagsins í heild sinni hins vegar.
Gert er ráð fyrir að nemendur vinni verkefni, hópverkefni eða einstaklingsverkefni, þar sem leitað er svara við ýmsum spurningum sem bornar verða fram í kennslu og umræðu.
Vinnustofa í menningarblaðamennsku (ÍSB707F)
Hluti nemenda sem útskrifast af Hugvísindasviði, ekki síst úr Íslensku- og menningardeild, mun væntanlega starfa í framtíðinni á fjölmiðlum, forlögum og opinberum menningarstofnunum og fást þar við umfjöllun og kynningu á bókum og listviðburðum. Í námskeiðinu verður fjallað um hlutverk og einkenni íslenskrar menningarblaðamennsku í víðum skilningi og glímt við þær textategundir sem henni tilheyra, þar á meðal viðtöl, ritdóma, listgagnrýni, fréttatilkynningar og svonefnt "plögg". Nemendur vinna hagnýt verkefni sem tengjast annars vegar þessum starfsvettvangi og hins vegar íslensku menningarlífi eins og það kemur til með að þróast vorið 2018.
Vinnustofa: Rannsóknir á íslenskum miðaldabókmenntum á 21. öld (ÍSB827F)
Í vinnustofunni verður fjallað um helstu alþjóðlegu rannsóknir á íslenskum miðaldabókmenntum á 21. öld. Nemendur taka virkan þátt í umræðum og verkefnum og deila með kennara ábyrgð á miðlun þekkingar og framgangi vinnunnar. Kennarinn eru faglegur leiðtogi og umræðustjóri en heldur ekki formlega fyrirlestra. Áherslan er á rannsóknarmiðað nám sem felst í því að nemendur skilgreina rannsóknarspurningar, finna rannsóknir, rýna þær, hafa á þeim skoðun og tjá sig um þær í hópi jafningja, safna eigin gögnum, greina þau og lýsa þeim, fá endurgjöf, veita öðrum endurgjöf og skrifa rannsóknarritgerð.

Málheildir (MLT201F)
Tilgangur námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum hlutverk og gagnsemi málheilda við hugbúnaðargerð og rannsóknir á bæði textum og tali. Tiltækar íslenskar málheildir verða kynntar auk þess sem nemendur fá innsýn í samsetningu nýrra málheilda. Farið verður yfir uppbyggingu gagnasafnanna, möguleika þeirra og takmarkanir. Nemendur vinna með gögnin á frjóan hátt og nýta þau til að þróa nýjan búnað eða ný gögn.
Frásögn, kvikmyndir og menning í verkum Sjóns (ABF846F)
Í námskeiðinu verður fjallað um höfundarverk Sjóns með áherslu á skáldsögur, ljóð og kvikmyndir. Gengið verður útfrá bókinni Sjónsbók : Ævintýrið um höfundinn, súrrealisma og sýnir (2016) eftir Úlfhildi Dagsdóttur, og greinasafninu Critical Approaches to Sjón : North of the Sun (2025). Meðal annars verður farið yfir kenningar um súrrealisma og framúrstefnu, frásagnafræði og menningarfræði.
Hjarðljóð og huggunarkvæði (ÍSB720F)
Lesnir verða bókmenntatextar í bundnu máli, bæði trúarlegir og veraldlegir, sem samdir voru á 17. og 18. öld. Fjallað verður um hugtakið barokk og svokallaða barokktexta, athugað hvað einkennir slíka texta og hvort þær kvæðategundir sem íslensk skáld lögðu stund geti kallast barokktextar og eigi sér jafnvel hliðstæður í erlendum kveðskap frá sama tíma. Skáldin sem tekin verða til athugunar eru m.a. Hallgrímur Pétursson, Stefán Ólafsson, Bjarni Gissurarson, Steinunn Finnsdóttir, Sigga skálda og Látra-Björg.
Náttúrusögur: (yfir)náttúra í þjóðsögum og bókmenntum fyrri alda (ÍSB814M)
Með hliðsjón af þjóðsögum, bókmenntatextum og öðrum heimildum fjallar námskeiðið um birtingarmyndir náttúru og yfirnáttúru í frásagnarmenningu á Íslandi í gegnum aldirnar. Nemendur læra um þýðingu, snertifleti og óljós mörk þessara fyrirbæra og hvernig þau hafa mótað samfélag og umhverfi. Nemendur kynnast þannig ólíkum hugmyndum um stöðu fólks og (annarra) dýra innan, yfir eða utan við náttúruna. Í fjölbreyttum fyrirlestrum og verkefnavinnu verður fjallað með gagnrýnum hætti um mennsku og dýrsleika, lífheima og handanheima, efnisleika og hið yfirskilvitlega. Kannað verður hvaða hlutverk og form landslag, lífverur, líkamar, veður og náttúrufyrirbrigði taka í frásögnunum. Kynntar verða nýjustu rannsóknir á þessu breiða sviði, svo sem á framsetningu jarðhræringa og himingeima, bjarndýra, hvala, sela og húsdýra, og á náttúrvættum og öðrum þjóðsagnaverum á borð við álfa, drauga, tröll og berserki. Nemendur læra hvernig sagnaheimar og þjóðtrú hafa sett mark sitt á náttúruskynjun, alþýðuhefðir, þjóðhætti og samfélagsleg rými svo sem álagabletti, helga staði og staði sem eru þekktir fyrir reimleika. Einnig spyrjum við hvernig þessar frásagnir birtast í alþýðulist og myndlist, allt frá fyrri öldum til nútímans. Að lokum munum við kanna hvaða þýðingu frásagnir af náttúru og yfirnáttúru hafa í samhengi mannaldar, mannmiðaðra sjónarhorna, loftslagsbreytinga og ólíkrar stöðu samfélagshópa og tegunda.
Íslenskar og færeyskar samtímabókmenntir (ÍSB826F)
Í námskeiðinu verða lesin færeysk og íslensk skáldverk frá 20. og 21. öld og þau sett í samhengi við bókmennta- og menningarsögu þessara tveggja eyjaþjóða. Viðfangsefni námskeiðsins eru meðal annars þær spurningar sem leitað hafa á rithöfundana, hvernig sjálfsmynd þjóðanna birtist í verkunum og tengsl færeysks og íslensks bókmenntasviðs, svo sem í gegnum þýðingar.
Námskeiðið er kennt í samstarfi við Guðrúnu í Jákupsstovu, lektor við Fróðskaparsetur Færeyja, sem kennir sambærilegt námskeið þar á sama misseri. Hluti af námskeiðinu verður þannig kenndur í gegnum netið en engu að síður er reiknað með staðkennslu og þátttöku nemenda í stofu. Stefnt er að því að námsferð til Tórshavn verði þáttur í námskeiðinu og að sömuleiðis komi færeyski hópurinn í heimsókn til Reykjavíkur.
Íslenska í skólakerfinu (ÍSF801F)
Meginmarkmið námskeiðsins er annars vegar að varpa ljósi á það hvernig íslenska er kennd á unglingastigi grunnskóla og í framhaldsskólum og hins vegar hvernig hægt er að efla kennslu í námsgreininni með hliðsjón af hagnýtum og fræðilegum rannsóknum. Hvaða hæfni á að byggja upp í beitingu og meðferð tungumálsins? Hvaða leikni eiga nemendur að hafa eftir hvert skólastig og hvernig á að þjálfa hana? Hvað er mikilvægast að nemendur skilji og viti um tungumál og bókmenntir eftir skólagönguna? Hvaða kennsluaðferðum er helst beitt? Hvaða námsefni er mest notað og að hvaða marki endurspeglar það nýlega þekkingu á sviði íslenskrar málfræði og íslenskra bókmennta? Í verkefnavinnu námskeiðsins fá nemendur tækifæri til að útfæra eigin hugmyndir að viðfangsefnum í íslenskukennslu með áherslu á miðlun nýlegrar þekkingar.
Íslensk miðaldahandrit (ÍSL416M)
Í þessu námskeiði verður fjallað um íslenska handritamenningu frá ýmsum hliðum. Nemendur fá þjálfun í að lesa íslensk handrit frá ýmsum tímum, allt frá elstu skinnhandritunum á tólftu og þrettándu öld og fram á tíma pappírshandrita á sautjándu og átjándu öld. Gefið verður yfirlit yfir skriftarsöguna, fjallað um uppruna íslenskrar skriftar og helstu breytingar á henni í tímans rás og nemendur þjálfaðir í að lesa ólíkar skriftartegundir frá ólíkum tímum. Stafsetning fornra handrita er um margt ólík þeirri stafsetningu sem við eigum að venjast í nútímanum. Þar er til að mynda notað kerfi skammstafana sem að hluta til er arfur úr miklu eldri latínustafsetningu. Nemendur fá þjálfun í að lesa úr þessum styttingum. Íslenskt mál hefur einnig breyst í tímans rás og margvíslegar málbreytingar birtast þegar lesnir eru íslenskir textar frá ólíkum tímum. Rætt verður um valdar breytingar. Breytingar á skrift, stafsetningu og máli veita mikilvægar vísbendingar um aldur handrita og fá nemendur þjálfun í að tímasetja íslensk handrit á grundvelli skriftar, stafsetningar og máls.
Fjallað verður um bókagerð á miðöldum og meðal annars rætt um skinnaverkun, blekgerð og bókband. Fjallað verður um skrifara og skrifaraskóla og líklegar miðstöðvar bókagerðar á Íslandi á miðöldum. Rýnt verður í verk nokkurra afkastamikilla skrifara frá fjórtándu öld. Hvað var skrifað? Hvernig var skrifað? Breyttust vinnubrögð skrifara á löngum skrifaraferli? Enn fremur verður fjallað um textana sem handritin geyma og undirstöður textafræðinnar kynntar. Njáls saga hefur, svo dæmi sé tekið, varðveist í ríflega sextíu handritum og textinn í þeim er nokkuð breytilegur. Hvaða handrit á að leggja til grundvallar við útgáfu Njáls sögu? Rætt verður um mismunandi útgáfur fornra texta og nemendur takast á við útgáfuverkefni. Fjallað verður um rafrænar útgáfur og nemendur fá þjálfun í merkingu fornra texta með textamerkingarmálinu XML eftir leiðbeiningum Medieval Nordic Text Archive (MENOTA) og Medieval Unicode Font Initiative (MUFI).
Námskeiðið er kennt með blöndu af fyrirlestrum og vinnustofum með virkri þátttöku nemenda. Efni verður oft miðlað með upptökum á fyrirlestrum til að geta nýtt meiri tíma í kennslustofu fyrir umræður og virka þátttöku nemenda.
Námskeiðið er kennt í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og fara nemendur í heimsókn á stofnunina til að kynnast safnkosti og vinnuaðstöðu og skoða handrit.
Efnisþættir
Vika 1
(1) Inngangur
Námskeiðið kynnt: kennslufyrirkomulag, lesefni, verkefni, námsmat.
Viðfangsefnið kynnt: Íslensk miðaldahandrit.
(2) Elstu handrit og upphaf ritunar á Íslandi
Ágrip af sögu latínuleturs og elstu handrit á íslensku. Hvar lærðu Íslendingar að nota latínuletur? Hvaða stafsetning var notuð? Helstu einkenni miðaldastafsetningar og notkun styttinga.
Vika 2
(3) Rafrænar útgáfur norrænna forntexta
Hvernig er hægt að miðla fornum textum með rafrænum hætti? Textamerkingarmálið XML, TEI, MENOTA, MUFI og fleira því tengt. Við spreytum okkur á að skrifa upp og merkja texta í XML.
(4) Stafsetning elstu handrita og Fyrsta málfræðiritgerðin
Notkun latínustafrófsins við að skrifa íslensku: áskoranir — og lausnir höfundar Fyrstu málfræðiritgerðarinnar um miðja tólftu öld.
Vika 3
(5) Íslensk skrift og stafsetning á þrettándu öld
Munurinn á íslenskri og norskri skrift og stafsetningu á tólftu öld. Hvað breyttist á þrettándu öld?
(6) Ólíkar tegundir prentútgáfna: fræðilegar útgáfur
Hversu nákvæmar eiga prentaðar útgáfur að vera? Á að prenta hvern stafkrók úr handritinu? Hvað er „samræmd stafsetning forn“? Hverjar eru þarfir notenda? Hvert er hlutverk útgefandans?
Vika 4
(7) Norsk áhrif á skrift, stafsetningu og mál í handritum á Íslandi
Hvernig birtast norsk áhrif? Hve djúpt ristu þau? Hve lengi má finna þau í íslensku ritmáli?
(8) Aldursgreining handrita: skrift, stafsetning og mál
Hvernig er unnt að aldursgreina miðaldahandrit? Fjallað um nokkur einkenni í skrift, stafsetningu og máli er að gagni geta komið.
Vika 5
(9) Íslensk skrift og stafsetning á fjórtándu öld
Helstu einkenni og helstu breytingar.
(10) Ein rithönd eða margar?
Að sjá handa skil: Nokkur greinimörk. Íslenska hómilíubókin frá um 1200: Einn skrifari eða fjórtán?
Vika 6
(11) Bókagerð: skinn, blek, band og forvarsla
Hvernig var skinn verkað til bókfells? Hvernig var blek unnið? Hönnun bókar og bókband.
(12) Bókagerð: skinn, blek, band og forvarsla
Heimsókn á Stofnun Árna Magnússonar: Viðgerð bóka í nútímanum og varðveisla til framtíðar. Gripið í fjaðrapenna, oddur skorinn og dýft í blek.
— VERKEFNAVIKA —
Vika 7
(13) Skrifarar, samfélag skrifara, útflutningur bóka
Um atvinnuskrifara, samvinnu skrifara og mikla bókaframleiðslu. Skrifuðu Íslendingar bækur til útflutnings á þrettándu og fjórtándu öld?
(14) Íslensk skrift og stafsetning á fimmtándu og sextándu öld
Helstu einkenni og helstu breytingar.
Vika 8
(15) Textafræði
Handrit verður til af handriti; textinn tekur breytingum. Um textageymd, lesbrigði, skyldleika handrita og stemmu.
(16) Textafræði
Lesið og skrifað upp úr íslenskum miðaldahandritum, handrit borin saman og lesbrigðum safnað.
Vika 9
(17) Lýsingar í handritum
Um skreytta upphafsstafi og myndlist í miðaldahandritum; listamenn, handbragð og fyrirmyndir.
(18) Handritaskrár og handritaskráning
Við kynnumst helstu handritaskrám og ferlinu við skráningu handrits.
Vika 10
(19) Íslensk skrift og stafsetning á sautjándu og átjándu öld
Helstu einkenni og helstu breytingar.
(20) Miðlun texta í uppskriftum: forngripur eða lifandi texti?
Hvernig breyttist tungumálið í meðförum skrifara sem skrifuðu upp gömul handrit? Njáls saga er talin skrifuð undir lok þrettándu aldar. Hvaða mál er á Njáls sögu á sautjándu og átjándu öld?
Vika 11
(21) Fornfræðaáhugi, handritasöfnun og uppskriftaöld
Á sextándu öld kviknaði mikill áhugi á fornum fræðum, gömlum handritum var safnað og þau skrifuð upp af kappi.
(22) Ólíkar tegundir prentútgáfna: alþýðlegar útgáfur
Hvernig á að búa forna texta í hendur almenningi? Á að halda fornum einkennum í máli og stafsetningu eða á að færa allt til nútímahorfs? Um trúnað við handrit og trúnað við lesendur.
Vika 12
(23) Handritasöfn og handritasafnarar
Ævi og starf Árna Magnússonar.
(24) Handritamálið og heimkoma handritanna
Leitin að Skarðsbók postulasagna og kaup á æsispennandi uppboði, handritamálið og heimkoma handritanna.
— Þetta yfirlit er birt með fyrirvara um breytingar. —
Lesefni
Listi yfir lesefni er að finna á Canvas. Efni þar er (oftast) skipt í þrjá flokka:
(a) Skyldulesning: Textar sem ætlast er til að allir nemendur lesi.
(b) Valfrjálst viðbótarlesefni: Þetta er viðbótarlesefni fyrir þá sem vilja kafa dýpra.
(c) Fyrir þá sem vilja enn þá meira! Hér eru ábendingar um ýmiss konar lesefni. Þessi hluti er mest til upplýsingar en gæti komið að gagni við rannsóknaverkefnið.
Drjúgur hluti skyldulesefninu (og nokkuð af valfrjálsa viðbótarlesefninu) er á Canvas. Lesefni sem ekki er á Canvas er hægt að nálgast á rannsóknabókasafni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í Eddu og á Landsbókasafni-Háskólabókasafni í Þjóðarbókhlöðu.
Forkröfur
Námskeiðið er á meistarastigi en opið grunnnemum sem lokið hafa að minnsta kosti 90 ECTS einingum með fyrstu einkunn (M-námskeið). Kunnátta í íslensku er nauðsynleg.
Kennslufyrirkomulag
Námskeiðið er kennt með blöndu af fyrirlestrum og vinnustofum með virkri þátttöku nemenda. Efni verður oft miðlað með upptökum á fyrirlestrum til að geta nýtt meiri tíma í kennslustofu fyrir umræður og virka þátttöku nemenda (vendikennsla).
Vinnumál: Námskeiðið situr blandaður hópur nemenda hvaðanæva úr heiminum og því eru notuð tvö vinnumál, íslenska og enska. Fyrirlestrar eru teknir upp bæði á íslensku og ensku (að frátöldum gestafyrirlesurum sem flytja sitt mál á ensku), skrifleg verkefni eru bæði á íslensku og ensku, lesefni er á íslensku, ensku og Norðurlandamálum. Umræður í kennslustofu eru að mestu á ensku en íslensku má einnig nota í umræðum. — Sjá sérstakt minnisblað um vinnumál og vinnulag í kennslustofu.
Kröfur og námsmat
Lokaeinkunn í námskeiðinu verður byggð á eftirfarandi þáttum:
(1) Uppskriftir texta úr handritum: 30%
(2) Verkefni í handritaskráningu: 10%
(3) Verkefni í aldursgreining handrits: 10%
(4) Kynning á handriti dagsins: 10%
(5) Rannsóknarritgerð: 30%
(6) Virkni í kennslustundum: 10%
Skriflegum verkefnum verður öllum skilað í gegnum Canvas. Nánari fyrirmæli um verkefni og skilafresti er að finna á Canvas.
Íslensk og erlend setningagerð (ÍSM703F)
Markmið þessa námskeiðs er að efla skilning þátttakenda á setningafræði með því að bera valin atriði í íslenskri setningagerð saman við hliðstæð fyrirbæri í öðrum málum, bæði skyldum og óskyldum. Gert er ráð fyrir því að allir nemendur hafi nokkra undirstöðuþekkingu í setningafræði en að öðru leyti verður reynt að koma til móts við mismunandi bakgrunn og væntingar nemenda, jafnvel með því að skipta hópnum í einstökum tímum eftir undirstöðu og áhugasviði nemenda. Námskeiðið á þannig bæði að geta nýst framhaldsnemum í íslenskri málfræði og málvísindum, sem hafa fyrst og fremst fræðilegan áhuga á íslenskri setningagerð, en einnig framhaldsnemendum í öðrum tungumálum, nemendum á menntavísindasviði og nemendum í þýðingafræði, enda hafi þeir allir einhverja undirstöðuþekkingu á setningafræði.
- Haust
- Meistararitgerð í íslenskum fræðum

Meistararitgerð í íslenskum fræðum (ÍSF441L)
Nemandi sem hyggst skrifa MA-ritgerð skal leita til námsbrautarformanns um val á leiðbeinanda. Hafi nemandi ósk um tiltekinn leiðbeinanda er reynt að verða við henni en að öðrum kosti tekur val á leiðbeinanda mið af efni ritgerðarinnar og sérfræðiþekkingu þeirra sem kenna í íslensku.

Hafðu samband
Þjónustuborð Hugvísindasviðs
s.525 4400 hug@hi.is.
Opið virka daga frá kl 10:00–12:00 og 13:00–15:00.
3. hæð Aðalbyggingar.
Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík.
Nemendur á Hugvísindasviði geta einnig nýtt sér þjónustuborð á Háskólatorgi.
Fylgstu með Hugvísindasviði

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.