Skip to main content

Námsskipulag, staðlotur og vettvangsnám HÍ á Hólum

Hér má finna kennlufyrirkomulag og skipulag allra deilda HÍ á Hólum skólaárið 2026-2027. Kennsla haustannar hefst að jafnaði með nýnemadögum heima á Hólum.

Staðlotur eru oftast haldnar á Hólum í Hjaltadal en stundum skipulagðar í öðrum landshlutum. Skyldumæting er í lotur óháð því hvar og hvenær þær eru haldnar. Loturnar eru oftast í tvo til fjóra daga 2-3 sinnum á misseri. Fyrir utan lotur er námið óháð stað en ekki alltaf stund og geta nemendur þurft að mæta stundum í rafrænar kennslustundir, hlusta/horfa á fyrirlestra, taka þátt í umræðum og/eða verkefnavinnu. Nemendum ber að kynna sér vel þær reglur sem gilda um skipulag og mætingar í þeim námskeiðum sem þau eru skráð í.

Ekki er víst að staðbundin lota standi alla viðkomandi viku. Lota hefst að jafnaði á mánudegi en lok lotunnar fara eftir námskeiðum hverju sinni. Nemendum ber að kynna sér vel þær reglur sem gilda um skipulag og mætingar í þeim námskeiðum sem þau eru skráð í.   

Varðandi flokkun námskeiða eftir árum er miðað við skilgreinda uppsetningu á fullu námi í þrjú ár, skv. námskrá.