Vísindavefurinn og HHÍ endurnýja samstarfssamning sinn

Bryndís Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Happdrættis Háskóla Íslands, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Jón Gunnar Þorsteinsson, ritstjóri Vísindavefs HÍ, endurnýjuðu á dögunum samning um stuðning Happdrættisins við Vísindavefinn.
Happdrætti Háskóla Íslands hefur frá fyrstu tíð verið aðalstuðningsaðili Vísindavefsins. Það hefur tryggt grunnrekstur vefsins og gert honum kleift að sinna því mikilvæga hlutverki að svara spurningum ungs fólks og almennings um nútíma vísindi og fræði. Stuðningur happdrættisins sýnir í verki skilning á mikilvægi vandaðrar vísindamiðlunar á íslensku. Slík miðlun styrkir stoðir upplýstrar umræðu um ýmis málefni sem eru ofarlega á baugi hverju sinni.
Hlutverk Vísindavefsins er ekki aðeins að miðla þekkingu heldur einnig að kynna aðferðafræði vísinda fyrir lesendum sínum. Svör vefsins eiga að mennta og fræða lesendur og efla þannig hæfni þeirra til að greina á milli vísindalegrar þekkingar og falsfrásagna. Hið síðarnefnda hefur rutt sér æ meir til rúms í samtímanum, m.a. fyrir tilstuðlan algríms og gervigreindar. Oftar en ekki er markmið falsfrásagna að grafa undan viðtekinni þekkingu og sannleika. Hlutverk Vísindavefsins er hins vegar það gagnstæða: að treysta stoðir vísindalegrar þekkingar.
Til að styrkja enn frekar við þetta hlutverk Vísindavefsins var nýverið sett á laggirnar fagleg ritnefnd við vefinn. Hlutverk hennar er meðal annars að setja Vísindavefnum ritstjórnarstefnu og tryggja honum ritstjórnarlegt sjálfstæði.
Vísindavefurinn hefur um langt árabil verið einn vinsælasti vefur landsins og á síðasta ári voru árlega heimsóknir á vefinn rúmar tvær milljónir og flettingar rúmlega þrjár milljónir. Lesendur leita oft til vefsins til að fá svör við spurningum sem uppi eru í umræðunni hverju sinni og til marks um það fjölluðu mest lesnu svör vefsins á síðasta ári meðal annars um margbreytileika kyns og loftslagsmál.
