Skip to main content
27. maí 2026

Úrslit Nýsköpunarkeppni grunnskólanna í Sögu

Úrslit Nýsköpunarkeppni grunnskólanna í Sögu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tæplega 40 grunnskólanemar taka þátt í úrslitum Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) sem fara fram húsakynnum Menntavísindasviðs HÍ í Sögu dagana 28.-30. maí. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, veitir aðalverðlaun í keppninni á lokahófi laugardaginn 30. maí og um leið verður opnuð sýning á verkum nemenda sem opin er öllum áhugasömum.

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna er ætluð nemendum í 5.-7. bekk og markmið hennar er að efla skapandi og gagnrýna hugsun barna og ungmenna og hvetja þau til að sjá tækifæri til umbóta í eigin samfélagi. Hér er þó ekki aðeins um keppni að ræða heldur vettvang þar sem hugmyndaflug, samkennd og framtíðarsýn barna fær að njóta sín.

Alls bárust rúmlega 500 hugmyndir hvaðanæva af landinu í keppnina í ár. Sérfræðingar frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, IKEA á Íslandi og Hugverkastofunni fóru yfir þær og völdu 25 hugmyndir til þátttöku í úrslitum en að baki þeim standa 38 nemendur. Við valið var horft til sköpunargleði, frumleika, hagnýts gildis og þess hvernig hugmyndirnar takast á við raunverulegar áskoranir í samfélaginu. 

Dagskráin í Sögu dagana 28.-30. maí er fjölbreytt og samanstendur m.a. af skapandi vinnustofum þar sem nemendur vinna áfram með hugmyndir sínar í samstarfi við sérfræðinga, kennara og háskólanema. Þar fá nemendur meðal annars tækifæri til að þróa frumgerðir, æfa framsetningu hugmynda og kynnast því hvernig hugmynd verður að lausn.

Lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fer fram á Sögutorgi í Sögu laugardaginn 30. maí kl. 14-16 þar sem hugmyndir nemenda verða kynntar, boðið verður upp á skemmtiatriði og viðurkenningar afhentar. Á meðal gesta eru Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sem veitir aðalverðlaun keppninnar, og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, sem flytja mun opnunarávarp. Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, stýrir athöfninni.  Að lokinni formlegri dagskrá verður sýning á verkefnunum formlega opnuð.

Lokahófið er öllum opið. 

""