Ráðherra skipar Silju Báru R. Ómarsdóttur rektor Háskóla Íslands

Logi Einarsson, ráðherra háskólamála, hefur skipað Silju Báru R. Ómarsdóttur, prófessor við Stjórnmálafræðideild, rektor Háskóla Íslands til næstu fimm ára en hann afhenti Silju Báru skipunarbréf þessa efnis föstudaginn 16. maí.
Eins og kunnugt er sigraði Silja Bára í rektorskjöri sem fram fór meðal starfsfólks og stúdenta Háskóla Íslands í mars síðastliðnum. Háskólaráð samþykkti svo á fundi sínum 3. apríl að tilnefna Silju Báru í embætti rektors Háskóla Íslands fyrir tímabilið 1. júlí 2025 til 30. júní 2030. Hún tekur við starfinu af Jóni Atla Benediktssyni sem gegnt hefur embætti rektors frá árinu 2015.
Silja Bára er prófessor í alþjóðasamskiptum við Stjórnmálafræðideild á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá University College í Cork á Írlandi, meistaraprófi í alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Suður-Kaliforníu og BA-prófi í sömu grein frá Lewis & Clark háskólanum í Bandaríkjunum. Silja Bára hefur starfað við HÍ í um tvo áratugi og lagt stund á rannsóknir á sviði utanríkis- og öryggismála, kyn- og frjósemisréttinda og feminískra alþjóðasamskipta.
Logi Einarsson, ráðherra háskólamála, hefur skipað Silju Bára R. Ómarsdóttur, prófessor við Stjórnmálafræðideild, rektor Háskóla Íslands til næstu fimm ára en hann afhenti Silju Báru skipunarbréf þessa efnis föstudaginn 16. maí. MYND/ Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið