Hver er Silja Bára R. Ómarsdóttir?

Silja Bára R. Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, var eins og kunnugt er kjörin næsti rektor Háskóla Íslands í almennri kosningu meðal starfsfólks og stúdenta skólans í lok mars. En hver hinn nýi rektor, hvernig kom hún til starfa við HÍ og hver eru áhugamál hennar utan vinnu?
Það er rétt að byrja þessa yfirferð á að forvitnast um R-ið í nafninu en það stendur að sögn Silju fyrir nafn móður hennar, Ragnheiðar. Silja Bára heitir því fullu nafni Silja Bára Ragnheiðar Ómarsdóttir.
Silja Bára er borinn og barnfæddur Norðlendingur. „Ég fæddist í heimahúsi í Ólafsfirði og ólst upp þar til ellefu ára aldurs. Þá tóku við tvö ár á Akureyri áður en ég flutti til Reykjavíkur,“ segir Silja Bára sem gekk í Barnaskóla Ólafsfjarðar, Lundarskóla og Álftamýrarskóla áður en hún innritaðist í Menntaskólann við Hamrahlíð þaðan sem hún lauk stúdentsprófi árið 1990. Hún er fyrsti MH-ingurinn til þess að gegna embætti rektors Háskóla Íslands.
Silja Bára fagnar rektorskjöri með sínu nánasta fólki. MYND/Kristinn Ingvarsson
Áhugi á alþjóðamálum kviknaði snemma
Aðspurð segist Silja Bára hafa vitað frá því að hún var lítil að hana langaði að læra eitthvað sem tengdist alþjóðamálum. „Ég man eftir því á Ári barnsins 1979 að hafa lesið sögur sem börn alls staðar að úr heiminum sendu inn og vildi þá strax skilja betur hvers vegna aðstæður fólks væru svona ólíkar. Ég hélt að ég þyrfti að fara í lögfræði til að læra þjóðarétt til að komast í þessi viðfangsefni en komst sem betur fer að því að alþjóðasamskipti voru til því ég er enn hugfangin af faginu og hefði ekkert annað viljað læra,“ segir hún.
Að loknu stúdentsprófi lá leiðin út til Bandaríkjanna þar sem Silja Bára lauk BA-prófi í alþjóðasamskiptum frá Lewis & Clark College í Bandaríkjunum árið 1995 og MA-próf í sömu grein frá University of Southern California árið 1998.
Meðal fyrstu kennara í alþjóðasamskiptum í HÍ
Silja Bára hefur sagt frá því í fjölmiðlum að líkamsárás sem hún varð fyrir í Bandaríkjunum og fráfall leiðbeinanda hennar hafi orðið til þess að hún hvarf frá doktorsnámi þar í landi og hélt aftur heim til Íslands. Hún starfaði m.a. sem sviðsstjóri hjá Jafnréttisstofu eftir að heim var komið og samhliða því starfi hóf hún að kenna við Háskóla Íslands árið 2005.
„Þegar ég flutti heim frá Bandaríkjunum, eftir að hafa stundað allt mitt háskólanám þar, sendi ég ferilskrána mína á fólk við stjórnmálafræðiskor. Margrét Björnsdóttir, sem þá var á Stofnun stjórnsýslu og stjórnmála, hafði samband við mig, sagðist svo sem ekkert hafa í hendi en vildi hitta mig til að muna eftir mér. Ári seinna var svo verið að setja á fót nám í alþjóðasamskiptum og þá höfðu þau samband til að athuga hvort ég vildi koma inn í kennslu í því námi. Þau hafa ekki losnað við mig síðan,“ segir Silja um upphaf þess að hún hóf störf í HÍ.
Samhliða kennslunni gegndi Silja Bára stöðu forstöðumanns Alþjóðamálastofnunar skólans á árunum 2006-2008. Hún lauk einnig diplómanámi á framhaldsstigi í aðferðafræði félagsvísinda og kennslufræði háskóla frá Háskóla Íslands á árunum 2011 og 2012.
Silja Bára hóf svo doktorsnám við University College Cork á Írlandi þaðan sem hún lauk doktorspróf árið 2018. Hún hlaut viðurkenningu Félags stjórnmálafræðinga á Írlandi það ár fyrir bestu doktorsritgerðina við írskan háskóla. Í framhaldinu var hún ráðin lektor og svo prófessor í alþjóðasamskiptum við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Segist með akademískan athyglisbrest
Rannsóknaráherslur Silju Báru eru á sviði utanríkis- og öryggismála, kyn- og frjósemisréttinda og femínískra alþjóðasamskipta en sjálf segist hún stundum lýsa sér með akademískan athyglisbrest. „Ég hef áhuga á mjög mörgu. Doktorsritgerðin mín var um öryggisskynjun Íslendinga og ég er að vonast til að bók sem er byggð á henni komi út á árinu. Sumum finnst það skrýtið að ég tengi áhugann á kyn- og frjósemisréttindum við þetta svið en ég sé skýr tengsl milli stöðu kvenna og hinsegin hópa við frið og öryggi.“
Silja Bára í pontu í Hátíðasal.
Silja Bára er einnig félagi í Hinu íslenska ástarrannsóknafélagi. „Við Berglind Rós, vinkona mín, erum að ritstýra bók á því sviði - ástin er alls staðar og mikilvægt að skoða hana með gagnrýnum augum. Loks stunda ég starfendarannsóknir á kennslunni og hef birt nokkrar greinar um kennslumál,“ segir Silja Bára.
Silja Bára hefur auk þess tekið þátt í Fulbright Arctic Initiative III (FAI), flaggskipi Fulbright á sviði norðurskautsrannsókna, og þá hefur hún verið rannsóknarstjóri Höfða - friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands og er jafnframt í fyrsta íslenska teyminu til að ritstýra fræðitímaritinu Scandinavian Political Studies.
Silja Bára hefur komið að kennslu á öllum fimm fræðasviðum skólans og hefur enn fremur leiðbeint nærri 250 nemum í lokaritgerðum á grunn- og framhaldsstig. Hún hlaut viðurkenningu Háskóla Íslands fyrir lofsvert framlag til kennslu árið 2019. MYND/Björn Gíslason

Margverðlaunaður kennari
Kennslan hefur sannarlega átt hug Silju Báru frá því hún hóf störf við HÍ og því til vitnis má benda á að hún hefur komið að kennslu á öllum fimm fræðasviðum skólans og hefur enn fremur leiðbeint nærri 250 nemum í lokaritgerðum á grunn- og framhaldsstigi, þar með talið doktorsnemum og nýdoktorum. Silja Bára er meðlimur í Kennsluakademíu opinberu háskólanna en það er samfélag kennara sem hafa lagt sérstaka rækt við kennsluþróun, stuðlað að bættum kennsluháttum og vilja taka þátt í að efla og þróa háskólakennslu enn frekar. Þá hlaut Silja Bára viðurkenningu Háskóla Íslands fyrir lofsvert framlag til kennslu árið 2019.
Silja Bára ræðir við fréttamann Stöðvar 2, sem er fyrrverandi nemandi hennar við Stjórnmálafræðideild, að loknu rektorskjöri. MYND/Kristinn Ingvarsson
„Ég legg áherslu á það að vekja áhuga nemenda á viðfangsefninu og reyni að fá þau til að tengja það við sinn veruleika. Í alþjóðastjórnmálum er hægt að skoða nokkurn veginn allt - heilsu, völd, misskiptingu, öryggi, umhverfismál, hinseginleika og svo framvegis. Þetta er alltaf bara spurning um að finna það sem kveikir á nemendum og uppáhaldið mitt er að sjá ljósin kvikna, athugasemdirnar í lok misseris þegar nemandi segist hafa getað útskýrt eitthvað fyrir foreldrum sínum yfir fréttunum. Það sýnir að þau eru að taka efnið til sín, tengja við raunveruleikann og beita gagnrýnni hugsun!“ segir Silja Bára aðspurð um áherslur sínar í kennslu.
Auk þess að sinna kennslu og rannsóknum af kappi hefur Silja Bára ekki látið sitt eftir liggja í þeim þætti fræðimannsstarfsins sem snýst um að miðla þekkingu sinni út í samfélagið. Silja Bára er enda fyrir löngu orðin landskunn fyrir greiningar sínar á bandarískum stjórnmálum og er sá fræðimaður sem fjölmiðlar leita alla jafna til þegar leggja á mat á vendingar í bandarísku stjórnmála- og þjóðlífi. Af nógu er að taka þar þessi misserin þar sem forsetakosningar og endurkoma Donalds Trump í forsetaembætti kallar á stöðugar túlkanir á stefnu Bandaríkjanna innan lands og gagnvart umheiminum.
Háskólaráð Háskóla Íslands. MYND/Kristinn Ingvarsson
Hefur kynnst rektorsstarfinu vel í gegnum háskólaráð
Þegar talið berst að nýja starfinu sem hún var kjörin til segist Silja Bára hafa fengið að kynnast starfi rektors og háskólasamfélaginu vel í gegnum störf sín í háskólaráði en þar hefur hún setið undanfarin þrjú ár. „Þar hef ég öðlast innsýn í flesta þætti starfsemi skólans,“ segir hún full tilhlökkunar.
Silja Bára tekur formlega við starfi rektors af Jóni Atla Benediktssyni þann 1. júlí næstkomandi. Starf rektors er annasamt og því hefur Silja Bára kynnst nú þegar því hún mun sækja ráðstefnu Aurora-háskólasamstarfsins nokkrum vikum áður en hún tekur formlega við embættinu. „Svo eru þegar komnar margar beiðnir um fundi vegna ákveðinna verkefna. Það sem mig langar mest að byrja á er að skoða betur hvernig við getum stuðlað að inngildingu í skólanum, þá bæði fyrir starfsfólk og stúdenta og á breiðum grunni,“ segir hún innt eftir því hver verði fyrstu verkin í rektorsembætti.
Silja Bára er formaður Rauða krossins. MYND/úr einkasafni
Rektor á traktor
Utan HÍ hefur Silja Bára látið mikið til sín taka í félags- og sjálfboðaliðastarfi. Hún er sem stendur formaður Rauða krossins á Íslandi og var síðasti formaður Jafnréttisráðs á árunum 2019-2021. Þá er hún ein 50 kvenna víða að úr heiminum sem valdar voru til að taka þátt í Global Community for Women's Leadership, alþjóðlegri áætlun sem miðar að því að þjálfa og styðja nýja kynslóð kvenleiðtoga í heiminum til frekari afreka.
Verðandi rektor á traktor. MYND/úr einkasafni
Aðspurð um það hvað henni þyki gaman að gera utan vinnu segist Silja Bára reyna að verja sem mestum tíma með börnum systkina sinna. „Þau eru fimm á aldrinum 3-11 ára og eru hvert öðru dásamlegra. Kraftlyftingarnar hafa aðeins setið á hakanum upp á síðkastið vegna hnjámeiðsla, en ég stunda í staðinn sjóböð. Vinahópurinn minn er líka duglegur að hittast, við sitjum oft saman og spilum meðan við kryfjum heimsmálin. Til að slaka á sauma ég út og prjóna yfir hljóðbók eða sjónvarpsþáttum og svo finnst mér mjög gaman að mæta á barsvar. Við eigum svo nokkrar vinkonur saman hús í Hrísey, sem mætti sennilega kalla áhugamál. Þangað reyni ég að fara sem oftast og þarf ekkert að hafa fyrir stafni,“ segir Silja Bára en þar á hún jafnframt sjötíu ára gamla Ferguson-dráttarvél. Hún mun því sannarlega getað kallað sig rektor á traktor innan skamms.
Silja Bára tekur formlega við starfi rektors af Jóni Atla Benediktssyni þann 1. júlí næstkomandi. Starf rektors er annasamt og því hefur Silja Bára kynnst nú þegar því hún mun sækja ráðstefnu Aurora-háskólasamstarfsins nokkrum vikum áður en hún tekur formlega við embættinu. „Svo eru þegar komnar margar beiðnir um fundi vegna ákveðinna verkefna. Það sem mig langar mest að byrja á er að skoða betur hvernig við getum stuðlað að inngildingu í skólanum, þá bæði fyrir starfsfólk og stúdenta og á breiðum grunni,“ segir hún innt eftir því hver verði fyrstu verkin í rektorsembætti. MYND/OBÞ