Skip to main content
19. ágúst 2026

Ný rannsókn á mataræði 10. bekkinga að hefjast

Ný rannsókn á mataræði 10. bekkinga að hefjast - á vefsíðu Háskóla Íslands

Um 250 unglingum í 10. bekk í grunnskólum um allt land býðst á næstu vikum að taka þátt í rannsókn sem Rannsóknastofa í næringarfræði við Háskóla Íslands og Embætti landlæknis standa saman að og snýr að mataræði 10. bekkinga. Rannsókn á mataræði og næringu þessa aldurshóps hefur ekki verið gerð hér á landi í aldarfjórðung.

Markmið og tilgangur rannsóknarinnar, sem ber heitið MATARÆÐI 10. BEKKINGA – «Þetta er ekkert mál», er að afla upplýsinga um mataræði þessa aldurshóps á Íslandi, næringarefnabúskap líkamans, heilsu og tengda þætti. Niðurstöðurnar munu auka þekkingu og verða grundvöllur þess að bæta ráðleggingar um mataræði unglinga og stuðla að betri heilsu þessa hóps í framtíðinni.

Þátttökuskólar eru alls átta talsins og voru þeir valdir af handahófi. Upplýsingum um mataræði verður safnað með viðtölum við þátttakendur en þeim býðst einnig að gefa blóðdropa-, munnvatns- og þvagsýni. Sýnin verða einungis notuð til að að meta næringarástand – ekkert annað. 

Ekki verður hægt að tengja svör og aðrar niðurstöður við einstaklinga en þeir geta þó óskað eftir upplýsingum um sínar eigin niðurstöður úr rannsókninni. 

Rannsóknina framkvæmir Rannsóknastofa í næringarfræði við Háskóla Íslands fyrir Embætti landlæknis en þess má geta að síðustu heildrænu rannsóknirnar á mataræði barna og unglinga á ýmsum aldri voru framkvæmdar á árunum 2002-2012 og því er það mat heilbrigðisyfirvalda að nauðsyn sé að gera nýjar rannsóknir. 

Vísindasiðanefnd hefur veitt leyfi fyrir rannsókninni og sama má segja um þau sveitarfélög þar sem rannsóknin fer fram og þátttökuskóla þar sem rannsóknin fer af stað í haust. Foreldrar þátttakenda fá sent kynningabréf um rannsóknina þar sem leitað verður eftir upplýstu samþykki þeirra og barnanna. 

Þátttaka í rannsókninni er algjörlega valfrjáls og foreldrar/forsjáraðilar þátttakenda og þátttakendur sjálfir get dregið samþykki sitt til baka og hætt þátttöku hvenær sem er, án útskýringa. Góð þátttaka eykur notagildi upplýsinganna. 

Ábyrgðarmenn: Inga Þórsdóttir, prófessor emerita, og Birna Þórisdóttir lektor, báðar við Háskóla Íslands

Meðrannsakendur: Tinna Óðinsdóttir, Sigurbjörg Bjarnadóttir, Jenny June Tómasdóttir, Bryndís E. Birgisdóttir og Hólmfríður Þorgeirsdóttir.

Aðrir meðrannsakendur: Anna Sigríður Ólafsdóttir, Ellen Alma Tryggvadóttir, Jóhanna Eyrún Torfadóttir og Þórhallur Ingi Halldórsson.

Kynningarbréf sent til foreldra/forrsjáraðila þátttakenda

Information Letter for Parent/Guardian

Kynningarbréf sent til þátttakenda

Information Letter for 10th Graders

Um 250 unglingum í 10. bekk í grunnskólum um allt land býðst á næstu vikum að taka þátt í rannsókn sem Rannsóknastofa í næringarfræði við Háskóla Íslands og Embætti landlæknis standa saman að og snýr að mataræði 10. bekkinga. Rannsókn á mataræði og næringu þessa aldurshóps hefur ekki verið gerð hér á landi í aldarfjórðung.