Afreks- og hvatningarsjóður HÍ styrkir nýnema við skólann

Ert þú eða einhver sem þú þekkir á leið í grunnnám í Háskóla Íslands í haust? Þá gætir þú eða viðkomandi átt möguleika á styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Sjóðurinn styrkir framhaldsskólanema sem innritast í HÍ og hafa náð afburðaárangri á stúdentsprófi eða staðið sig vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2026-2027 er 5. júní 2026.
Afreks- og hvatningarsjóður studenta Háskóla Íslands hefur styrkt hátt í 500 nemendur til grunnnáms í skólanum frá því að hann var stofnaður árið 2008. Styrkupphæð nemur samtals 400.000 þúsund krónum á hvern styrkhafa.
Við val á styrkhöfum er tekið mið af framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi. Einnig er horft til virkni í félagsstörfum og árangurs stúdenta á öðrum sviðum, s.s. í listum og íþróttum. Þá styður sjóðurinn einnig nemendur sem sýnt hafa sérstakar framfarir í námi sínu eða hafa náð góðum námsárangri þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og umsóknareyðublað um styrk er að finna á vef sjóðsins.
