Sjálfbær byggðaþróun, MA



Sjálfbær byggðafræði
MA – 120 einingar
Meistaranám sjálfbærri byggðaþróun frá HÍ á Hólum er rannsóknartengt meistaranám sem er ætlað að mennta einstaklinga til starfa á sviði byggða- og samfélagsþróunar í dreifðum byggðum hér á landi eða erlendis.
Skipulag náms
Aðferðasmiðja (AÐS4010120)
Námskeiðið er inngangur að rannsóknaraðferðum með aðaláherslu á að greina fræðilegan grunn rannsókna. Fyrri hluti námskeiðsins fjallar um verufræðileg viðfangsefni en seinni hlutinn um þekkingarfræði. Námskeiðið fer fram sem röð af smiðjum þar sem nemendur skoða og skilgreina viðfangsefni sín í MA rannsókninni út frá mögulegum og viðeigandi rannsóknaraðferðum, sem mætti beita og aðlaga.
Í námskeiðinu er unnið á íslensku og ensku eftir því hver bakgrunnur þátttakenda er hverju sinni.
- Haust
- ByggðaþróunV
- UmhverfisfræðiV
- Vor
- Sveitir og sjávarbyggðirVE
- Viðburðastjórnun og samfélagV
- Vöruþróun og nýsköpunV
- Menning og ferðamálV
- Áætlanagerð og rekstrargreiningV
- Menningararfur er auðlindVE
- Straumar og stefnur í viðburðastjórnunV
Byggðaþróun (BYF2006120)
Fjallað verður um íslenska byggðaþróun í víðu samhengi, með áherslu á ferðamál. Í því ljósi verður farið yfir atvinnu- og efnahagsþróun, menntun, uppbyggingu samfélaga, verslun og þjónustu. Íslensk byggðastefna verður rædd og einstaka þættir byggðaáætlunar metnir í ljósi árangurs og reynslu. Fjallað verður um byggðarannsóknir á þverfaglegum nótum og byggðamál á Íslandi settar í alþjóðlegt samhengi.
Umhverfisfræði (UMH1406120)
Fjallað verður um almenn atriði umhverfisfræðarinnar, svo sem: Náttúrusiðfræði, grundvallarhugtakið sjálfbæra þróun, sjálfbæra starfshætti og vottanir. Þá verður fjallað um hlutverk landvarða í stjórnsýslu, náttúruvernd, friðlýsingar, hlutverk friðlanda, þjóðgarða. Markmið og tilgangur gestastofa, stjórnsýsla umhverfismála og - stefna Íslands, verða kynnt. Einnig verður farið yfir umhverfisvandamál almennt, grunnatriði vistfræðinnar, - loftslagsbreytinga og afleiðingar þeirra á umhverfi okkar. Námskeiðið er eitt þeirra sem eru til grundvallar við veitingu landvarðarréttinda, í samvinnu við Umhverfisstofnun.
Sveitir og sjávarbyggðir (SOS2706120)
Viðfangsefni þessa námskeiðs er ferðaþjónusta í dreifbýli og fjallað um aðferðir sem stuðla að farsælli uppbyggingu hennar. Fjallað verður um hnattvæðingu, markaðsvæðingu dreifbýlisins og hvers eðlis aðdráttarafl þess er. Sérstök áhersla verður á aðferðir sem auka þátttöku íbúa dreifbýlisins og stuðla að aukinni virkni og nýsköpun í ferðaþjónustu.
Viðburðastjórnun og samfélag (VOS2206170)
Fjallað er um hlutverk og gildi viðburða í samfélaginu og rannsóknir á viðburðum. Áhersla er lögð á mat á efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum áhrifum viðburða á einstaklinga og samfélög. Fjallað er um viðburði í tengslum við kenningar um ferðaþjónustu og upplifun. Sjónum er beint að alþjóðlegum stórviðburðum, landsþekktum viðburðum og einnig að smærri viðburðum og tengslum þeirra við samfélög.
Vöruþróun og nýsköpun (VON2806120)
Námskeiðið miðar að þróun viðskiptahugmyndar yfir í viðskiptatækifæri. Fjallað er um meginhugtökin nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi. Farið er yfir grundvallaratriði við vöruþróun og hugmyndavinnu. Farið yfir helstu þætti varðandi vöruþróunarferlið sjálft sem og hugmyndavinnu og gildi hópa fyrir vöruþróunarferlið. Jafnframt er farið yfir helstu þætti við val og síun hugmynda. Einnig er fjallað um klasa og klasasamstarf. Nýsköpun á Íslandi, með áherslu á ferðaþjónustu, eru gerð skil.
Menning og ferðamál (MEF1206120)
Í námskeiðinu er fjallað um samspil menningar og ferðamála út frá alþjóðlegu sjónarhorni og íslensku. Farið verður í ýmis lykilhugtök eins og menningu, framboð og eftirspurn menningar, upprunaleika, upplifunar- og skapandi ferðamennsku, miðlun og túlkun menningar, félags- og menningarleg þolmörk sem og tengsl gesta og gestgjafa. Nemendur skilgreina menningarferðamennsku og -ferðaþjónustu á Íslandi ásamt miðlun og túlkun menningar í hvers konar menningarstofnunum í landinu.
Áætlanagerð og rekstrargreining (ÁOR1906120)
Fjallað er um stofnun fyrirtækja og mismunandi rekstrarform. Fjallað er um áætlanir og áætlanagerð s.s. rekstraráætlun, greiðsluáætlun,efnahagsáætlun og viðskiptaáætlanir. Fjallað er um tímavirði peninga og mat á fjárfestingarkostum. Farið er yfir helstu kostnaðarhugtök og kostnaðarföll ásamt greiningu á kostnaði. Þá er fjallað um rekstrarumhverfi fyrirtækja og greiningu viðskiptatækifæra.
Menningararfur er auðlind (MEA3706120)
Fjallað verður um hugtakið menningararf, tilurð hans og miðlun, einkum þætti sem lúta að sögu, minjum og þjóðháttum. Gerð verður grein fyrir menningarlandslagi og minjaheildum. Fjallað verður um menningararf sem aðdráttarafl og helstu álitamál og kenningar um nýtingu menningararfs í ferðaþjónustu. Farið verður yfir lög, reglugerðir og sáttmála sem í gildi eru um íslenskan menningararf og starfssemi stofnana á sviði minjavörslu og kynntar leiðir til miðlunar á menningararfi fyrir ferðafólk.
Straumar og stefnur í viðburðastjórnun (SSV2506170)
Námskeiðinu er ætlað að ná utan um þann mikla fjölbreytileika sem einkennir flóru viðburða hérlendis og á alþjóðavísu. Ýmsar gerðir viðburða eru kynntar s.s. íþróttaviðburðir, tónlistarhátíðir, hátíðisdagar, persónulegir viðburðir, matartengdir viðburðir, bæjarhátíðir, ráðstefnur og fundir.
Fjallað verður um nýjustu strauma, stefnur og kenningar í viðburðastjórnun í nútímanum s.s. tækninýjungar, öryggisgæslu, sviðsetningu, samskipti við fjölmiðla og fleira. Námskeiðið verður að hluta til byggt á efni sem sérhæfðir gestafyrirlesarar leggja til.
Gert er ráð fyrir að nemendur í námskeiðinu haldi ráðstefnu um stöðu viðburðastjórnunar á Íslandi í lok námskeiðs.
Hafðu samband
Hægt er að hafa samband við þjónustuborð Háskólans á Hólum og senda fyrirspurnir varðandi nám og umsóknir á netfangið holar@hi.is.
Fylgdu okkur á:
