Kennslufræði háskóla - Örnám


Kennslufræði háskóla
Örnám á framhaldsstigi – 30 einingar
Örnám í kennslufræði háskóla er 30 eininga nám ætlað háskólakennurum, stundakennurum og doktorsnemum. Námið dýpkar þekkingu á kennslufræði, námsmati og endurgjöf og eykur færni kennara til þess að takast á við kennsluáskoranir samtímans.
Námið hentar vel með vinnu.
Skipulag náms
- Heilsársnámskeið
- Kennsluþróun og starfendarannsóknir
- Haust
- Inngangur að kennslufræði á háskólastigi
- Óháð misseri
- Námsmat og endurgjöf
- Skipulag og endurskoðun námskeiða
Kennsluþróun og starfendarannsóknir (STM031F)
Námskeiðið Kennsluþróun og starfendarannsóknir er samstarfsvettvangur þar sem þátttakendur vinna að rannsóknartengdum verkefnum, kennsluþróunarverkefnum eða að rannsókn á eigin kennslu. Tengja má námskeiðið umsóknum í sjóði (t.d. Kennslumálasjóð). Námskeiðið er heilsársnámskeið. Að námskeiði loknu kynna þátttakendur verkefni sín á Menntakviku, rannsóknardegi Menntavísindasviðs.
Inngangur að kennslufræði á háskólastigi (STM105F)
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur lykilhugtökum náms, kennslu og námsmats á háskólastigi. Fjallað verður um hlutverk kennara, kennslusýn, námskenningar, kennsluhætti, kenningar um kennslu, upplýsingatækni og námsmat. Þátttakendur kynnast ýmsum hagnýtum leiðum til að skipuleggja nám og kennslu en fá auk þess innsýn inn í þær kenningar sem að baki kennsluháttum liggja. Áhersla er á að efla umræðu um kennsluhætti og styðja þátttakendur við ígrundun um eigið starf.
Námsmat og endurgjöf (STM209F)
Námsmat og endurgjöf eru veigmikil verkefni háskólakennara sem geta haft veruleg áhrif á gæði náms. Í námskeiðinu kynnast þátttakendur meginhugtökum námsmats svo og kenningum og rannsóknum á áhrifum námsmats og endurgjafar á nám. Fjallað verður um ólíkar tegundir námsmats (lokamat/leiðsagnarmat), leiðir til endurgjafar, námsmatsaðferðir svo og þátttöku nemenda í námsmati.
Skipulag og endurskoðun námskeiða (STM208F)
Námskrárgerð er mikilvægt verkefni háskólakennara. Það fellur í þeirra hlut að skipuleggja námskrá námskeiða og skapa nemendum sínum sem besta umgjörð náms. Jafnframt koma margir háskólakennarar að námskrárgerð innan námsleiða. Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum tækifæri til að huga faglega að námskrárgerð. Í námskeiðinu er m.a. fjallað um skipulag námskeiða, hæfniviðmið, viðhorf og væntingar nemenda, vinnuálag í námskeiðum, kennsluaðferðir og námsmat. Í námskeiðinu vinna þátttakendur að endurskoðun eigin námskeiða.
LOUIS-hæfniramminn við gerð hæfniviðmiða, verkefnalýsinga og matskvarða í háskólanámskeiði (STM111F)
Stuðningur við nýbreytni í kennslu sem styrkir nemendur í að takast á við félagslegar áskoranir er eitt af meginmarkmiðum AURORA-hæfnirammans (LOUIS) og áherslna sjálfbærnimenntunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Í þessu námskeiði er unnið að endurskoðun hæfniviðmiða námskeiða, gerð verkefna sem efla hæfni nemenda sem lýst er í þeim hæfniviðmiðum og endurgjöf sem nemendur fá til að ná enn frekari árangri.
Vinnulag:
Þetta námskeið byggist á hugmyndafræði um þátttöku sem snýst bæði um að valdefla kennara í störfum sínum og gefa þeim svigrúm til að dýpka þekkingu sína um leið og þeir fást við viðfangsefnin. Í þessu felst bæði jafnvægi milli táknrænnar og raunverulegra þátttöku þar sem háskólakennarar verða að skilgreina hæfniviðmið fyrir námskeið sín en líka að ástunda metnað til að veita framúrskarandi háskólakennslu.
Námskeiðið er í þremur hlutum. Í fyrsta lagi er hálfsdags netfundur til að kynna meginmarkmið og skipulag námskeiðsins og hlutverk þátttakenda í hverjum hluta. Einnig kynna þátttakendur námskeiðið sem þeir munu vinna með.
Í öðru lagi er fimm daga staðlota í Reykjavík. Í lok hennar munu kennararnir kynna tengslin milli þeirra eigin hæfniviðmiða, verkefnisins sem þeir unnu með og matskvarðans sem mótaður var til að veita nemendum endurgjöf. Síðan þurfa þátttakendur að skila skriflegu verkefni innan tveggja vikna eftir staðlotuna sem felur í sér lokagerð hæfniviðmiðanna, verkefnislýsinguna og matskvarðann (allt á ensku) samkvæmt leiðbeiningum. Allir munu fá endurgjöf við sitt verkefni.
Í þriðja lagi verður hálfs dags netfundur þar sem þátttakendur kynna eigin lærdóm af vinnunni og hvað og hvernig þeir sjá fyrir sér næstu skref í þróun eigin háskólakennslu. Einnig verður rætt um vísbendingar um hvers konar stuðning þeir telji sig þurfa í framhaldinu.
Hafðu samband
Setberg - Hús kennslunar
s. 525-4002 og 525 5833 kennslumidstod@hi.is
Opið kl. 9:00 – 15.00 alla virka daga

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.