Skip to main content

Upphafsmálþing Íslenska málsýnabankans

Upphafsmálþing Íslenska málsýnabankans - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. ágúst 2026 14:00 til 17:00
Hvar 

Edda

Fyrirlestrasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Upphafsmálþing Íslenska málsýnabankans fer fram í fyrirlestrasal Eddu þriðjudaginn 25. ágúst frá klukkan 14 til 17. Þar eru á dagskrá, auk kynningar á Íslenska málsýnabankanum, fyrirlestrar frá erlendum samstarfsaðilum verkefnisins innan Speech Accessibility Project og DELAD-átaksins.

Fjallað verður um nýtingu á máltækni- og gervigreindarlausnum í þágu fólks með tal- og máltruflanir og áhersla lögð á uppbyggingu gagnainnviða.

Dagskráin er eftirfarandi:

  • 14-14:45: Mark Hasegawa Johnson - The Speech Accessibility Project
  • 14:45-15:15: Alice Lee og Satu Saalasti - DELAD - An initiative for facilitating sharing of corpora of speech disorders
  • 15:15-15:30: Kaffihlé
  • 15:30-16:00 Alice Lee - Building a speech corpus of disordered speech for teaching and assessing Speech and Language Therapy students in Ireland
  • 16:00-16:30: Satu Saalasti - Studying speech, sharing data: Behavioral and neuroimaging approaches at the Logolab infrastructure, University of Eastern Finland
  • 16:30-17:00: Iris Edda Nowenstein - Íslenski málsýnabankinn / The Icelandic Language Biobank

Málþingið er haldið í samstarfi við Máltæknisetur og fer fram í fyrirlestrasal Eddu. Viðburðurinn fer fram bæði á ensku og íslensku og er öllum opinn.

Íslenski málsýnabankinn

Íslenski málsýnabankinn er þriggja ára verkefni sem hlaut styrk úr Markáætlun í tungu og tækni. Því er stýrt af Irisi Eddu Nowenstein en hún er lektor í íslenskri málfræði og máltækni við Háskóla Íslands og talmeinafræðingur á Landspítala.

Heildarmarkmið verkefnisins er að skapa grunnforsendur fyrir aðgengi íslenskumælandi fólks með tal- og máltruflanir að heilbrigðismáltækni. Til er fjöldi heilbrigðismáltæknilausna sem nýtist fólki með tal- og máltruflanir en slíkar lausnir eru sjaldnast í boði á íslensku, að hluta til vegna gagnafæðar og skorts á innviðum fyrir söfnun klínískra málheilda. Íslenski málsýnabankinn er liður í því að það breytist, þar sem hrint verður af stað umfangsmikilli gagnasöfnun svokallaðra málsýna bæði frá fólki með tal- og máltruflanir og viðmiðunarhópum. Annars vegar er einblínt á greiningu og eftirfylgd einkenna í tali og máli, t.d. fyrir taugahrörnunarsjúkdóma, og hins vegar stuðlar gagnasöfnunin að þróun á nýjum lausnum fyrir tjáskiptatækni, t.d. þegar kemur að persónumiðaðri talgreiningu fyrir fólk með óskýrleika í tali.

Speech Accessibility Project

Speech Accessibility Project er styrkt af Amazon, Apple, Google, Meta og Microsoft og hefur það að markmiði að auka aðgengi að talgreiningu, fyrst og fremst með söfnun gagna frá einstaklingum með taltruflanir. Verkefninu er stýrt af Mark Hasegawa-Johnson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskólann í Illinois Urbana-Champaign og rannsakanda við Beckman Institute for Advanced Science and Technology.

DELAD

DELAD er sérstakt átak innan CLARIN sem hefur það að markmiði að auðvelda rannsakendum að safna, varðveita og deila klínískum málföngum innan ramma evrópskra reglugerða. Satu Saalasti og Alice Lee sitja báðar í stjórn DELAD. Satu Saalasti er talmeinafræðingur, dósent við Háskólann í Austur-Finnlandi og rannsakandi við LogoLab. Alice Lee er talmeinafæðingur og dósent í talmeinafræði við Háskólann í Cork á Írlandi.

Edda - hús íslenskunnar.

Upphafsmálþing Íslenska málsýnabankans