Skip to main content

Um Hernaðarlist Sunzi: Samræða milli Vytis Silius og Geirs Sigurðssonar

Um Hernaðarlist Sunzi: Samræða milli Vytis Silius og Geirs Sigurðssonar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. september 2026 17:30 til 18:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 008

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hernaðarlist Meistara Sun (Sunzi bing fa 孫子兵法) er heimspekilegt rit um hernað sem var sett saman í Kína á tímabili hinna stríðandi ríkja, líklega á 4. öld f.Kr. Þótt umfjöllun þess snúist fyrst og fremst um það hvernig best sé að standa að hernaði með sem mestri hagkvæmni og eins litlu mannfalli og eyðileggingu og unnt er, hefur það einnig verið túlkað í víðara samhengi sem heimspeki stjórnunar, skipulags og félagsfærni. Heimspekilegar nálganir ritsins eru nátengdar daoisma (taóisma) og sumir kaflar þess minna á hluta úr Daodejing (Tao Te Ching), sem á íslensku hefur verið þýtt ýmist sem Bókin um veginn eða Ferlið og dygðin.

Þýðingar þessa forna rits eru fjölmargar á „stórum“ tungumálum á borð við ensku, þýsku, frönsku og japönsku en mun fágætari á tungumálum sem færri hafa að móðurmáli. Árið 2019 kom út íslensk þýðing Geirs Sigurðssonar hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og Háskólaútgáfunni. Á þessu ári, 2026, kom síðan út litháísk þýðing eftir Vytis Silius hjá forlaginu Phi knygos í Vilníus.

Í tilefni af heimsókn Vytis til Háskóla Íslands í byrjun september standa Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og Konfúsíusarstofnunin norðurljós fyrir viðburði þar sem Vytis og Geir munu eiga saman óformlega samræðu um reynslu sína af þýðingarvinnunni, mikilvægustu eða áhugaverðustu þáttum þessa sígilda verks og hvort kenningar þess geti átt erindi á öðrum sviðum mannlífsins en hernaði. Samræðan verður að hámarki ein klukkustund og að henni lokinni gefst áheyrendum kostur á að bera fram spurningar.

Viðburðurinn á sér stað í Veröld – húsi Vigdísar, stofu 008, miðvikudaginn 2. september, kl. 17:30, og fer fram á ensku.

Léttar veitingar – verið velkomin.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum · Konfúsíusarstofnunin Norðurljós · Kínversk-íslenska menningarfélagið

Geir  Sigurðsson og Vytis Silius

Um Hernaðarlist Sunzi: Samræða milli Vytis Silius og Geirs Sigurðssonar