Samspil manna og dýra: Heilsa, velferð og tækifæri í alþjóðlegu samhengi

Saga
Saga S-054
Á þessum viðburði er varpað ljósi á samspil manna og dýra með áherslu á hlutverk þeirra í heilbrigðis-, mennta- og félagsþjónustu. Sérfræðingar frá Bandaríkjunum og Háskólanum á Hólum deila innsýn sinni í rannsóknir, reynslu og þróun á sviði dýratengdrar þjónustu, með sérstakri áherslu á velferð dýra og gagnkvæm áhrif á heilsu.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Fyrra erindið:
Samspil manna og dýra: Innsýn frá Bandaríkjunum og Norðurlöndum (35 mínútur)
Útdráttur
Í þessum fyrirlestri er fjallað um samspil manna og dýra (HAI) út frá sjónarhornum Bandaríkjanna og Norðurlanda, með áherslu á hlutverk menningarlegra og stofnanalegra ramma í mótun þessa fræðasviðs. Einnig verður veitt yfirlit yfir notkun dýra í heilbrigðisþjónustu, með sérstaka áherslu á velferð dýra og samtengingu heilsufarslegra áhrifa.
Um fyrirlesara
Nina Ekholm Fry er gestafræðimaður (Fulbright Specialist) við Háskólann á Hólum með áherslu á tengsl manna, dýra og geðheilbrigðis. Hún er forstöðumaður hestatengdra verkefna (Equine Programs) við Institute for Human-Animal Connection við University of Denver í Colorado, og kennari við framhaldsnám í félagsráðgjöf og hagnýtri sálfræði. Rannsóknir hennar og starf beinast að notkun samskipta við hesta í sálfræðimeðferð, sem og atferli og velferð hesta. Hún er faglegur umsjónaraðili meistaranámslínu í Human-Animal-Environment Interactions og stýrir einnig framhaldsnámsvottun fyrir fagfólk á sviði hestatengdra íhlutana í geðheilbrigði. Undanfarin 18 ár hefur hún unnið að innleiðingu dýra í þjónustu við fólk, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Nina er sálfræðingur og sænskumælandi Finni og tekur virkan þátt í fagfélögum sem snúa að velferð bæði manna og dýra.
Seinna erindið
2) Uppbygging dýratengdrar þjónustu á Íslandi (15 mínútur)
Útdráttur
Samstarf við hesta í meðferðarlegum tilgangi fer vaxandi á sviði heilbrigðis-, mennta- og félagsþjónustu um allan heim, þar á meðal á Íslandi. Háskólinn á Hólum er leiðandi á alþjóðavísu í kennslu og rannsóknum á hestum – sérstaklega íslenska hestinum – og er í einstakri stöðu til að stuðla að þverfaglegri þróun dýratengdrar þjónustu. Í erindinu verður veitt yfirlit yfir nýleg rannsóknar- og þróunarverkefni við Hóla sem styðja við uppbyggingu þessa vaxandi sviðs.
Um fyrirlesara
Frá janúar 2026 hefur Erika Berg starfað sem Fulbright-fræðimaður við Háskólann á Hólum, þar sem hún hefur sinnt kennslu, tengslamyndun við fagfólk og samstarfi við kennara við þróun úrræða á sviði dýratengdrar þjónustu. Hún býr yfir meira en þriggja áratuga reynslu af hestatengdri þjónustu (EAS) og hefur starfað með fjölda slíkra miðstöðva í Bandaríkjunum, auk virkrar þátttöku í samtökum á borð við Professional Association of Therapeutic Horsemanship International og Horses and Humans Research Foundation. Hún er nú framkvæmdastjóri Bison Strides Equine Assisted Services Program og dósent við North Dakota State University í Fargo. Þar hefur hún þróað aukagrein (minor) í EAS og kennir námskeið með áherslu á inngildingu, fjölbreytileika og aðgengi.