Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttöka barna og ungmenna með flóttabakgrunn

Auglýst síðar
Saman eða sundruð? Vinnustofur um menntun og félagslega þátttöku barna og ungmenna með flóttabakgrunn.
Menntavísindasviði Háskóla Íslands, 29. september 2026 kl. 12.30-17.
Í vinnustofunum verður fjallað um helstu niðurstöður úr rannsóknaverkefninu Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og -ungmenna á Íslandi og hvernig þær geta gagnast vettvangi.
Markmið rannsóknarverkefnisins Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og -ungmenna á Íslandi (ESRCI) er að rannsaka með gagnrýnum hætti þátttöku flóttabarna og -ungmenna á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, skipulag náms þeirra og hvernig hugað er að vellíðan þeirra í félagslegu og námslegu umhverfi.
Þátttakendur í ESRCI verkefninu eru flóttabörn og -ungmenni frá Sýrlandi og Írak af ólíku kyni og á mismunandi aldri. Einnig foreldrar þeirra sem hafa fjölbreytta menntun og félags- og efnahagslega stöðu, svo og kennarar, skólastjórar, og námsráðgjafar barnanna þar sem við á, í leik-, grunn- og framhaldsskólum, starfsfólk sveitarfélaga og sjálfboðaliðasamtök í nærsamfélögum þeirra.
Áherslur vinnustofanna:
- Samtal um ávinning niðurstaðna fyrir starfsfólk á vettvangi skóla og sveitarfélaga, svo og fræðasamfélagið.
- Samtal um hagnýt verkefni og aðferðir sem styðja við farsæla móttöku og menntun barna og ungmenna með flóttabakgrunn í skóla-, frístunda- og félagsstarfi.
- Samtal um lausnir sem hafa reynst vel í vinnu með börnum með flóttabakgrunn.
Markhópur:
Vinnustofurnar eru ætlaðar starfsfólki skóla- og frístundastarfs, svo og félagsþjónustu, sem og öðrum sem vinna með börnum og fjölskyldum með flóttabakgrunn.
Nánari upplýsingar um rannsóknarverkefnið: https://esrci.hi.is/is/forsida-islenska/
Í vinnustofunum verður fjallað um helstu niðurstöður úr rannsóknaverkefninu Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og -ungmenna á Íslandi og hvernig þær geta gagnast vettvangi.
