Skip to main content

Ráðstefna Kennsluakademíu opinberu háskólanna

Ráðstefna Kennsluakademíu opinberu háskólanna - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. nóvember 2026 8:30 til 17:00
Hvar 

Saga

Auglýst síðar

Nánar 
Á íslensku

 Kennsluakademía opinberu háskólanna heldur sína árlegu ráðstefnu í Sögu, föstudaginn 20. nóvember 2026 klukkan 9:00 – 17:00.  

Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem láta sig kennslu á háskólastigi varða, kennurum, nemendum og stjórnendum.   

Áhersla ráðstefnunnar er: Nám og kennsla í breyttri heimsmynd: Hugrekki, hugsjónir og manneskjan í brennidepli. 
Hvernig styrkjum við háskólasamfélagið á tímum hraðra breytinga?  

Gestgjafar ráðstefnunnar í ár eru meðlimir Kennsluakademíunnar af Menntavísindasviði Háskóla Íslands.   

Þátttaka er gjaldfrjáls og öllum opin en skráningar er krafist til að hægt sé að áætla fjölda. Hér er skráning. Boðið verður upp á kaffi og te meðan á ráðstefnu stendur og léttar veitingar að ráðstefnu lokinni. Dagskrá er enn í mótun.