Pælt í PISA - Greining á stöðu læsis á stærðfræði
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Bratti
Pælt í PISA - Greining á stöðu læsis á stærðfræði er heiti fyrsta fundar af sjö þar sem markmiðið er að kafa dýpra í niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2022. Fundurinn fer fram 15. janúar kl. 15-16:30 í Stakkahlíð, Bratta.
Hægt er að fylgjast með fundinum hér á Zoom
Á þessum fyrsta fundi verður staða læsis á stærðfræði greind.
Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur við Menntamálastofnun, gefur yfirlit yfir niðurstöður PISA 2022 á stöðu stærðfræðilæsis og Freyja Hreinsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands rýnir dýpra í niðurstöður. Umræður verða í kjölfarið. Fundarstjóri og stjórnandi umræðna: Berglind Gísladóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ.
Alls verða haldnir sjö fundir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Mennta- og barnamálaráðuneytis, Menntamálastofnun, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.
Verið öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Fundunum verður streymt.
--
PÆLT Í PISA - Dagskrá framundan:
Þriðjudaginn 23. janúar 2024 - Greining á stöðu læsis
Mánudaginn 12. febrúar 2024 - Greining á stöðu læsis á náttúruvísindi
Miðvikudaginn 28. febrúar 2024 - Farsæld, líðan og viðhorf nemenda
Þriðjudagur 12. mars 2024 - Rýnt í svör skólastjórnenda
Fimmtudagurinn 21. mars 2024 - Samstarf heimila og skóla
Fimmtudaginn 4. apríl - Menntakerfið og ójöfnuður
--
Um PISA
Menntamálastofnun sá um framkvæmd PISA-rannsóknarinnar sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk vorið 2022. Samstarf hefur verið milli Menntavísindasviðs og Menntamálastofnunar um greiningu gagnanna og túlkun niðurstaðanna.
PISA-rannsóknin er lögð fyrir í 72 löndum um heim allan. Könnuð er frammistaða nemenda í stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrulæsi. Könnunin er framkvæmd á þriggja ára fresti (frestaðist um eitt ár vegna Covid) og gefur vísbendingar um breytingar á frammistöðu nemenda yfir tíma ásamt því að meta stöðu þeirra við lok skyldunáms.