Skip to main content

Opnun rannsóknarstofu í netöryggi og kynning á verkefnum nemenda í netöryggi

Opnun rannsóknarstofu í netöryggi og kynning á verkefnum nemenda í netöryggi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. maí 2025 9:00 til 13:45
Hvar 
Nánar 
Skráning nauðsynleg
Öll velkomin

Háskóli Íslands og Háskólans í Reykjavík standa fyrir opnun netöryggisstofunnar ”Frostbyte” föstudaginn 23. maí á milli kl. 9:00-13:45. Opnunin fer fram í Háskólanum í Reykjavík, stofu Mars M122. Á opnuninni munu nemendur HR og HÍ kynna verkefni sín á sviði netöryggsmála.

Skráning á viðburðinn er nauðsynleg.

Viðburðurinn fer fram á ensku og viðfangsefni eru:

  • Accidental penetration test – why not to code with AI
  • Future of bootkits and defences against them
  • Real-time malware classification through honeypot analysis
  • How safe is home? – Investigating router configurations and cybersecurity readiness in Iceland
  • Gagnabær: An interactive visualization of real-world cyberattacks
  • LLM-based honeypots
  • Flexible introspection solutions & VMI vs eBPF
  • Vulnerabilities and exploitation of RFID identification cards

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið veitir styrk til netöryggissamstarfs Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Evrópusambandið og evrópska netöryggismiðstöðin (ECCC) veita styrk til netöryggisrannsóknarstofunnar Frostbyte í gegnum verkefnin Eyvör NCC-IS (hæfnisetur í netöryggi Íslands) og Defend Iceland.