Skip to main content

Opið málþing með Johan Rockström - Ástand náttúru og loftslags: Hvar stöndum við nú?

Opið málþing með Johan Rockström - Ástand náttúru og loftslags: Hvar stöndum við nú? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. október 2026 9:00 til 10:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Það er okkur mikill heiður að bjóða til opins málþings með Johan Rockström, forstjóra Potsdam-stofnunarinnar um rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga (PIK) og einum fremsta vísindamanni heims á sviði sjálfbærni og loftslagsmála. Á málþinginu mun Rockström fara yfir ástand náttúru og loftslags út frá þeim upplýsingum sem við höfum í dag.

Málþingið fer fram föstudaginn 9. október kl. 9.00-10.30. Staðsetning og nánari dagskrá verður auglýst síðar. Málþingið fer fram á ensku og er skráning nauðsynleg.

Vinsamlegast skráið ykkur á málþingið hér: https://forms.cloud.microsoft/e/MysuFrcYs6

Málþingið er haldið í samstarfi Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands, Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, námsbrautar í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands, Líf- og umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands, Jarðvísindadeildar Háskóla Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Málþingið er hluti af viðburðaröðinni Loftslagsmál og rannsóknir.

Um fyrirlesara
Johan Rockström er forstjóri Potsdam-stofnunarinnar um rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga (Potsdam Institute for Climate Impact Research), prófessor í jarðkerfisvísindum við Háskólann í Potsdam og prófessor í vatnakerfum og alþjóðlegri sjálfbærni við Stokkhólmsháskóla. Hann er einn þekktasti vísindamaður heims á sviði sjálfbærni og loftslagsmála og leiddi m.a. þróun rammans um þolmörk Jarðar (Planetary Boundaries), sem tilgreinir inna hvaða marka mannkyn þarf að halda sig til að vernda stöðugleika náttúrulegra kerfa Jarðar og skapa góð skilyrði fyrir framtíðina.

Um viðburðaröðina
Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun samtímans og krefjast markvissra rannsókna, þverfaglegrar þekkingar og sterkari tengsla milli vísinda og samfélags. Ný viðburðaröð Háskóla Íslands, Loftslagsmál og rannsóknir, varpar ljósi á stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og þá brýnu þörf að efla samhæfingu, miðlun og nýtingu rannsókna.

Markmið viðburðaraðarinnar er að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku. Sérstök áhersla er lögð á samtal milli vísindafólks, sem og milli fræðasamfélags, stjórnsýslu, atvinnulífs og almennings.

Málþingið fer fram föstudaginn 9. október kl. 9.00-10.30. Staðsetning og nánari dagskrá verður auglýst síðar. Málþingið fer fram á ensku og er skráning nauðsynleg.
Vinsamlegast skráið ykkur á málþingið hér: https://forms.cloud.microsoft/e/MysuFrcYs6

Opið málþing með Johan Rockström - Ástand náttúru og loftslags: Hvar stöndum við nú?