Nýnemadagar: Stórt vísó frá RIFF í Háskólabíói

Háskólabíó
Stúdentaráð stendur fyrir stórri vísindaferð á RIFF í Háskólabíói í tilefni nýnemadaga.
RIFF er alþjóðalega kvikmyndahátíðin í Reykjavík en hún er meðal stærstu og fjölbreyttustu menningarviðburða í landinu. Í ellefu daga á hverju hausti flykkjast Íslendingar í bíó til að sjá það besta og ferskasta í alþjóðlegri kvikmyndagerð. Enn fremur býðst gestum að spjalla við leikstjóra um verk sín, sækja málþing og fyrirlestra, tónleika og listasýningar, og að sjá kvikmyndir við óhefðbundin skilyrði – í sundi, í helli eða í stofunni hjá þekktum kvikmyndagerðarmanni.
SHÍ mun annast skráningu í vísindaferðina í samstarfi við nemendafélögin. Viðburðurinn verður auglýstur nánar á samfélagsmiðlum þegar nær dregur. Jafnframt býðst stúdentum sérstök kjör á hátíðarpössum RIFF.