Nám í Svíþjóð
Háskólatorg
Forvitin(n) um nám í Svíþjóð?
Fulltrúar ellefu sænskra menntastofnanna kynna skólana sína og þá námsmöguleika sem þar bjóðast.
Svíþjóð er með næstflesta háskóla í heiminum sem teljast til „top ranking“ háskóla og eina landið af Norðurlöndunum með skóla á topp 100 í QS World University Rankings. Mikla nýsköpun er að finna í landinu en Svíþjóð er leiðandi í tækni-sprotafyrirtækjum og er Stokkhólmur sprota-höfuðborg Evrópu (bara Silicon Valley er með fleiri sprotafyrirtæki). Hvergi annars staðar í heiminum finnast fleiri fjölþjóðleg fyrirtæki miðað við höfðatölu. Grunnurinn að þessu liggur í sænsku menntakerfi sem er framúrskarandi í því að kenna nemendum sínum skapandi hugsun og hvernig þeir geta komið fram með nýjar hugmyndir.
Á námskynningunni verða fulltrúar frá Chalmers University of Technology, Umeå Universitet, Stockholms Universitet, Kungliga Tekniska Högskolan, Karolinska Institutet, Blekinge Tekniske Högskola, Uppsala Universitet, Handelshögskolan i Stockholm, Gymnastik och Idrottshögskolan, Stockholms Filmskola og Nordiska Folkhögskolan.
Viðburðurinn er haldin í tengslum við Alþjóðadaga HÍ dagana 4.-6. nóvember.
Verið velkomin.