Skip to main content

Mennt er máttur: ungmennarannsóknir í Gíneu-Bissá

Mennt er máttur: ungmennarannsóknir í Gíneu-Bissá - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. september 2026 16:15 til 17:30
Hvar 

Gimli

Stofa 301

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Á málstofunni verður kynnt nýtt myndband um rannsóknir námsbrautar í mannfræði í Gíneu-Bissá á sviði mannfræði og hnattrænna fræða. Í myndbandinu er rætt við fjóra rannsakendur um rannsóknir þeirra: Hamadou Boiro, doktor í mannfræði, ræðir rannsókn sína um nám kóranskóladrengja í Gíneu-Bissá; Fatou N´dure Babodóttur, doktor í hnattrænum fræðum, segir frá rannsókn sinni um unglinga í höfuðborginni Bissá og áhrif ójafnaðar á líf þeirra; Jon Edmund Bollom, doktorsnemi í hnattrænum fræðum, kynnir rannsókn sína meðal háskólanema. Auk þeirra er rætt við samstarfsmenn í Bissá, aðkomu þeirra að rannsóknunum og tengslum við Háskóla Íslands: dr. Aladje Baldé, prófessor og rektor Jean Piaget háskólans í Bissá; William Gomes Ferreira aðstoðarrektor; og dr. Zeca Jandi, forstöðumann Félagsvísindastofnunar Gíneu-Bissá (INEP). Auk þess segja þau Jónína Einarsdóttir, prófessor emerítus í mannfræði, og Geir Gunnlaugsson, prófessor emerítus í hnattrænni heilsu, frá upphafi rannsóknanna og framkvæmd þeirra. Að sýningu lokinni munu Jónína og Geir ásamt Fatou og Jon Edmund ræða og svara spurningum um efni og tilurð myndbandsins.

Á málstofunni verður kynnt nýtt myndband (24 mín, skjátexti á ensku) um rannsóknir námsbrautarinnar í Gíneu-Bissá á sviði mannfræði og hnattrænna fræða. Að sýningu lokinni munu Jónína Einarsdóttir og Geir Gunnlaugsson, prófessorar emerítusar og aðrir sem komu að gerð myndbandsins ræða og svara spurningum um efni þess og rannsóknir á vettvangi. Viðburðurinn er haldinn í samvinnu við Afríku 20:20 – áhugamannafélag um Afríku sunnan Sahara og er opinn öllum.

Mennt er máttur: ungmennarannsóknir í Gíneu-Bissá