Skip to main content

Málvísindakaffi: Íslenskur námsorðaforði

Málvísindakaffi: Íslenskur námsorðaforði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. september 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Saga S-285

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrsta Málvísindakaffi misserisins verður haldið föstudaginn 4. september kl. 12:00–13:00 í stofu 285 í Sögu. Málvísindakaffi er viðburðaröð á vegum Íslenska málfræðifélagsins í samstarfi við Málvísindastofnun Háskóla Íslands.

Að þessu sinni flytur Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, erindi um rannsóknarverkefnið Íslenskur námsorðaforði, sem hún leiðir ásamt dr. Auði Pálsdóttur.

Um erindið

Í rannsóknarverkefninu hefur verið þróað íslenskt námsorðaforðapróf sem byggir á orðum af Lista yfir íslenskan námsorðaforða (LÍNO-2) úr mismunandi tíðniflokkum. Um er að ræða fyrsta íslenska orðaforðaprófið sem byggist á tíðni orða í samtímatextum og námsefni og inniheldur eingöngu námsorð í lagi 2.

Prófið var þróað í fjórum þrepum með þátttöku um 6.000 grunnskólanemenda víða um land á árunum 2023–2025 og sýnir marktæka fylgni við lesskilningspróf Menntamálastofnunar.

Í lokaþrepi rannsóknarinnar tóku nærri 3.000 nemendur í 7.–10. bekk þátt. Þeim var skipt í sambærilega íhlutunar- og samanburðarhópa. Íhlutunin fólst í markvissri vinnu með kennsluleiðbeiningar og nemendahefti með orðum af LÍNO-2.

Niðurstöðurnar sýndu verulegan árangur af íhlutuninni, bæði hjá nemendum af íslenskum og erlendum uppruna. Rúmlega 50 kennarar tóku þátt í verkefninu og var reynsla þeirra af kennsluefninu mjög jákvæð.

Um fyrirlesara

Dr. Sigríður Ólafsdóttir er dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og leiðir rannsóknarverkefnið ásamt dr. Auði Pálsdóttur. Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við Árnastofnun, Hugvísindasvið Háskóla Íslands og fyrrum Menntamálastofnun.

Verkefnið hlaut Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands í flokknum Samfélag vorið 2023.

Öll velkomin.

Íslenska málfræðifélagið 

Málvísindakaffi: Íslenskur námsorðaforði