Málþing meistaranema á Menntavísindasviði

Saga
S-316 og S-346
Málþing meistaranema á Menntavísindasviði verður haldið þriðjudaginn 22. september 2026 kl. 12:45–16:20 í húsnæði Menntavísindasviðs í Sögu.
Mæting, myndataka, ávarp sviðsforseta og kaffihlé fara fram á 1. hæð í Sögu. Kynningar á meistaraverkefnum fara fram í tveimur kennslustofum á 3. hæð í Sögu, í stofum S-316 og S-346.
Dagskrá
Kl. 12:45 Mæting á 1. hæð í Sögu
Kl. 12:50 Myndataka meistaranema á 1. hæð í Sögu
Kl. 13:00 Ávarp Freyju Hreinsdóttur sviðsforseta á 1. hæð í Sögu
Kl. 13:20–15:00 Kynningar á meistaraverkefnum á 3. hæð í Sögu
Kl. 15:00–15:20 Kaffihlé með léttum veitingum á 1. hæð í Sögu
Kl. 15:20–16:20 Kynningar á meistaraverkefnum á 3. hæð í Sögu
Athugið að kynningarnar fara fram í tveimur mismunandi kennslustofum á 3. hæð í Sögu.
Allt um málþing meistaranema og dagskrána hér:
https://malthingmvs.hi.is/
Málþingið er öllum opið – vinir, ættingjar og samstarfsfólk eru hjartanlega velkomin!
Málþing Meistaranema á Menntavísindasviði
