Málstofa um mannréttindi

HR, stofa M103
Málstofa um mannréttindi: Viðurkenning fyrir bestu meistararitgerðir um Mannréttindasáttmála Evrópu og áhrif hans á landsrétt
Að frumkvæði Oddnýjar Mjallar Arnardóttur, dómara við Mannréttindadómstól Evrópu, og fyrrum prófessors við Lagadeildir Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands, hafa lagadeildirnar gert samning við Mannréttindadómstólinn um starfsþjálfun. Starfsþjálfun við dómstólinn býðst einum brautskráðum kandídat árlega frá hvorri deild sem viðurkenning fyrir framúrskarandi meistararitgerð um Mannréttindasáttmála Evrópu.
Árið 2026 hljóta þessa viðurkenningu Aldís R. Ingólfsdóttir frá Lagadeild HR, fyrir ritgerðina Hvað ef við hlustuðum? Kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum og Kristín Hekla Örvarsdóttir frá Lagadeild HÍ fyrir ritgerðina Réttlát málsmeðferð í einkamálum: Samspil krafna 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og meginreglna íslensk einkamálaréttarfars.
Á málstofunni mun Oddný Mjöll kynna starfsþjálfunina. Þá munu Aldís og Kristín Hekla fjalla um efni ritgerða sinna og taka við viðurkenningum.
Málstofan verður haldin í HR, stofu M103 , fimmtudaginn 20. ágúst frá kl. 11:30 til 12:30.
Málstofan verður haldin í HR, stofu M103 , fimmtudaginn 20. ágúst frá kl. 11:30 til 12:30.
