Skip to main content

Kvöldstund með smávinum: Borgir og fólk

Kvöldstund með smávinum: Borgir og fólk - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. október 2025 20:00 til 21:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í vetur mun STUTT-rannsóknastofa í smásögum og styttri textum halda mánaðarleg kvöld með smávinum í Gunnarshúsi. Þar munu höfundar og þýðendur fjalla um verk sín og/eða þýðingar og lesa valda texta. Megin markmið þessara stunda er að skapa tækifæri til að kynnast ólíkum stuttum bókmenntatextum, gömlum og nýjum, og verða fróðari um þá, hvort sem þeir kallast örsögur, smáprósar, prósaljóð eða eitthvað annað. Einnig að njóta samveru við upplestur og umfjöllun verkanna. Kvöldin eru skipulögð út frá þemum. Þann 16. október verður sjónum beint að borgum og fólki.

Gestir fá tækifæri til að bera fram spurningar og bregðast við upplestri og umfjöllun. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Verið hjartanlega velkomin!

Umsjón hafa Kristín Guðrún Jónsdóttir og Ásdís R. Magnúsdóttir

Haldið í Gunnarshús, Dyngjuvegi 8, Reykjavík.

16. október kl. 20:00-21:30.

Dagskrá: 

Borgir og fólk

  • Brynja Cortes: Borgirnar ósýnilegu eftir Italo Calvino
  • Óskar Árni Óskarsson: Reykjavíkurmyndir
  • Ásdís Rósa Magnúsdóttir: Parísardepurð eftir Baudelaire
  • Gottskálk Jensson: Manngerðir eftir Þeófrastos 
  • Áslaug Agnarsdóttir: mondo cane eftir Jos de Gruyter og Harald Thys

Dagskrá næstu kvöldstunda: 

13. nóvember. Nýlegar þýðingar.

  • Þórður Sævar Jónsson: Tókýó-Montana hraðlestin eftir Richard Brautigan
  • Berglind Erna Tryggvadóttir: Mér líður ágætlega en mér gæti liði betur eftir Lydiu Davis
  • Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson: 43 smámunir eftir Katrin Ottarsdóttir
  • Rut Ingólfsdóttir: Stílæfingar eftir Raymond Queneau

11. desember. Að skrifa stutt. 

  • Þórarinn Eldjárn: Dreymt bert
  • Sigurbjörg Þrastardóttir: Mæður geimfara
  • Birta Þórhallsdóttir: Einsamræður
  • Gyrðir Elíasson: Lungnafiskarnir, Þöglu myndirnar, Pensilskrift

Efni kvöldstundanna 2026 verður m.a.: Gömul form í nýjum búningi: lesið í hið liðna; Eldri þýðingar og Minningar: skemmti- og atvikasögur.

Viðburðurinn er haldinn á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.

Kvöldstund með smávinum.

Kvöldstund með smávinum: Borgir og fólk