Skip to main content

Kvöldstund með smávinum: Að skrifa stutt

Kvöldstund með smávinum: Að skrifa stutt - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. febrúar 2026 20:00 til 21:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

STUTT-rannsóknastofa í smásögum og styttri textum heldur áfram með kvöldstundir með smávinum í Gunnarshúsi. Höfundar og þýðendur fjalla um verk sín og/eða þýðingar og lesa valda texta. Megin markmið þessara stunda er að skapa tækifæri til að kynnast ólíkum stuttum bókmenntatextum, gömlum og nýjum, og verða fróðari um þá, hvort sem þeir kallast örsögur, smáprósar, prósaljóð eða annað. Einnig að njóta samveru við upplestur og umfjöllun verkanna. Kvöldin eru skipulögð út frá þemum. Að þessu sinni verður efni kvöldsins: Að skrifa stutt.

Gestir fá tækifæri til að bera fram spurningar og bregðast við upplestri og umfjöllun. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Verið hjartanlega velkomin!

Umsjón hafa Kristín Guðrún Jónsdóttir og Ásdís R. Magnúsdóttir

Haldið í Gunnarshús, Dyngjuvegi 8, Reykjavík, fimmtudaginn 19. febrúar kl. 20:00-21:30.

Dagskrá:

    Að skrifa stutt

    • Þórarinn Eldjárn: Dreymt bert
    • Sigurbjörg Þrastardóttir: Mæður geimfara
    • Birta Þórhallsdóttir: Einsamræður
    • Gyrðir Elíasson: Langbylgja

    STUTT-rannsóknastofa í smásögum og styttri textum heldur áfram með kvöldstundir með smávinum í Gunnarshúsi.

    Kvöldstund með smávinum: Að skrifa stutt