Kveðjuhóf til heiðurs Guðbjörgu Vilhjálmsdóttur
Hvenær
12. desember 2023 16:00 til 19:00
Hvar
Oddi
stofa 101
Nánar
Aðgangur ókeypis
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, prófessor í náms- og starfsráðgjöf lætur formlega af störfum við Háskóla Íslands.
Af þessu tilefni býður námsbraut í náms- og starfsráðgjöf til kveðjuhófs þar sem samstarfsfólk og nemendur innan og utan skólans munu flytja ávörp og kveðjur.
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar í kaffistofu í Odda.
Öll velkomin.
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, prófessor í náms- og starfsráðgjöf.