Heilsan okkar: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við

Askja
Fyrirlestrasalur N-132
Heilsan okkar: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við
Fyrsti fundur haustmisseris í fundaröðinni Heilsan okkar verður haldinn 25. september kl. 11:30–13:00 og fjallar um sjálfsvíg á Íslandi, stöðuna í dag og leiðir til forvarna.
Á fundinum verður fjallað um áhættuþætti, stöðu og þróun sjálfsvíga á Íslandi, forvarnir og aðgerðir, mat og þjónustu eftir sjálfsvígstilraunir og stuðning við aðstandendur. Í lokin fara fram pallborðsumræður.
Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir, dósent við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
Fundarstjóri: Eva Skarpaas, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis
Hlekkur á beint streymi frá fundinum: Væntanlegur
Dagskrá:
- Tómas Kristjánsson, lektor við Sálfræðideild Háskóla Íslands - Frá sjálfsvígshugsunum til forvarna: Hvað vitum við og hvað vantar okkur að vita?
- Patrekur Örn Gestsson, rannsóknarmaður hjá Miðstöð í lýðheilsuvísindum - Tengsl áfalla í æsku við sjálfsvígshegðun kvenna
- Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnisstjóri embættis landlæknis – Tölfræði og aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi
- Steinn Thoroddsen Halldórsson geðlækni og yfirlæknir á geðgjörgæsludeild Landspítala - Mat á sjálfsvígshættu og algeng nálgun eftir sjálfsvígstilraunir
- Anna Guðný Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hjálp48 hjá Sorgarmiðstöðinni – Stuðningur við aðstandendur eftir sjálfsvíg
- Pallborðsumræður í lokin
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og eru á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.
Hvert er hægt að leita? Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við sjálfsvígshugsanir eða mikla vanlíðan er hægt að leita aðstoðar í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða á netspjallinu 1717.is allan sólarhringinn. Einnig er hægt að hafa samband við Píeta samtökin í síma 552 2218.
Fyrsti fundur haustmisseris í fundaröðinni Heilsan okkar verður haldinn í Öskju, N-132, 25. september kl. 11:30–13:00 og fjallar um sjálfsvíg á Íslandi, stöðuna í dag og leiðir til forvarna. Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.
