Frá þekkingu til þróunaráhrifa: Aðför að jafnrétti

Aðalbygging
Hátíðarsalur
Opinn fundur á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, Jafnréttisskóla GRÓ og utanríkisráðuneytisins í samvinnu við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands þriðjudaginn 3. mars frá kl. 12:00 - 13:15.
Viðburðurinn er hluti af fundaröð um hlutverk Íslands í eflingu mannauðs og velferðar í þróunarlöndum í gegnum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu sem starfar undir merkjum UNESCO. Að þessu sinni er kastljósinu beint að Jafnréttisskóla GRÓ, GRÓ GEST, sem þjálfar og menntar sérfræðinga í lág- og millitekjuríkjum, sem og frá átakasvæðum, og stendur fyrir fjölbreyttum jafnréttisverkefnum og - rannsóknum í samstarfslöndum skólans.
Á fundinum munu nemendur GRÓ GEST deila reynslu sinni og sýn á mikilvægi námsins í alþjóðlegu samhengi og ræða áskoranir sem þau standa frammi fyrir þegar teikn eru á lofti um bakslag á sviði kynja- og hinsegin réttinda víða um heim.
Frá stofnun hefur GRÓ GEST, sem starfar innan Háskóla Íslands, útskrifað hátt í 300 nemendur frá rúmlega 40 ólíkum löndum.
Að auki styður skólinn við alþjóðlegt tengslanet fyrrverandi nemenda, sem starfa hjá opinberum stofnunum, fyrirtækjum, frjálsum félagasamtökum, háskólum og alþjóðastofnunum í heimalöndum sínum. Fyrrum nemendur eiga það sameiginlegt að fara fyrir verkefnum sem ætlað er að stuðla að auknu félagslegu réttlæti hvort sem er í gegnum umbætur í stefnumótun, uppbyggingu stofnana, rannsóknir eða önnur samfélagsleg verkefni.
Á viðburðinum verður fjallað um hvernig efling þekkingar og hæfni í jafnréttismálum tengist með beinum hætti aukinni hagsæld og velferð. Spurt er hvernig unnt er að byggja upp og viðhalda traustri og trúverðugri sérþekkingu á sviði jafnréttismála í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi. Einnig verður hugað að því með hvaða hætti sérfræðingar eru færir um að mæta pólitískum, félagslegum og menningarlegum áskorunum sem geta hamlað framförum í jafnréttismálum.
Dagskrá
Fundarstjórn: Irma Erlingsdóttir, prófessor og forstöðumaður GRÓ GEST
12:00 Opnunarorð: Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands
12:05 Opnunarávarp: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra (óstaðfest)
12:15 Aðalerindi: Yeshiwas Degu Belay, fyrrum GRÓ GEST nemi og doktorsstyrkþegi sem stundar nám við Háskóla Íslands og Erasmus-háskólann í Rotterdam
12:25 Myndbrot – reynslusögur nemenda Jafnréttisskólans
12:35 Pallborðsumræður með nemendum GRÓ GEST: Aarti Lila Ram, aðstoðarframkvæmdastjóra hjá Engro Foundation í Pakistan, Thelma Kaliu, stofnanda GenHub í Malaví, Mohamed Altamash Khan, yfirþjálfara hjá Men Against Violence & Abuse, Indlandi, og Yeshiwas Degu Belay. Umræðustjóri: Thomas Brorsen Smidt, námsstjóri GRÓ GEST
13:05 Lokaorð: Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu
Boðið verður upp á léttan hádegisverð eftir fundinn
Viðburðurinn er öllum opinn, en vinsamlega skráið þátttöku hér
Opinn fundur á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, Jafnréttisskóla GRÓ og utanríkisráðuneytisins í samvinnu við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands þriðjudaginn 3. mars frá kl. 12:00 - 13:15.
