Faðir sjúkraþjálfunarinnar? Uppgangur og fall dr. Johans Mezger

Lögberg
Stofa 103
Faðir sjúkraþjálfunarinnar? Uppgangur og fall dr. Johans Mezger
Dr. Johan Mezger (1838–1909) er nú flestum gleymdur, en á nítjándu öld var hann einn frægasti læknir Evrópu. Hann vakti bæði aðdáun og andúð, en orðsporið átti hann að þakka byltingarkenndri meðferð við meiðslum og stoðkerfisvanda: núningi, liðlosun og nuddi. Eftir að sænski krónprinsinn hlaut hjá honum „kraftaverkalækningu“ varð hann heimsfrægur og tugir þúsunda lögðu leið sína á læknastofu hans í Amsterdam, þar á meðal keisaraynjur og drottningar, nær allt aðalsfólk álfunnar og fjöldi þekktra tónlistarmanna. Mezger tók einnig að sér útvalda nemendur, þar á meðal íslenskan lækni. Með tímanum tóku framfarir í læknisfræði þó að grafa undan stöðu Mezgers innan læknastéttarinnar. Síðar á ævinni leitaðist hann við að þróa byltingarkennda allsherjarmeðferð við öllum meinum og þá urðu hroki hans og metnaður honum að falli. Þannig féll hann úr frægðarsessi í fullkomna gleymsku. Fyrirlesturinn greinir ástæðurnar fyrir frama og falli Mezgers og metur þýðingu hans fyrir sögu læknisfræðinnar, nuddlækninga, sjúkraþjálfunar og endurhæfingar.
Peter Jan Margry er prófessor emerítus í þjóðfræði við Amsterdamháskóla og rannsakandi við Meertens-stofnun Konunglegu hollensku vísindaakademíunnar (KNAW). Rannsóknir hans snúast einkum um trúarmenningu, helgigöngur, helgisiði, óhefðbundnar lækningar, hefðir og menningararf.
Fyrirlesturinn er á vegum námsbrautar í þjóðfræði og safnafræði og Félags þjóðfræðinga á Íslandi.
Faðir sjúkraþjálfunarinnar? Uppgangur og fall dr. Johans Mezger.
Mánudaginn 24. ágúst kl. 16-17 Stofa 103 í Lögbergi
Á vegum Námsbrautar í þjóðfræði og safnafræði og Félags þjóðfræðinga á Íslandi
