Skip to main content

Doktorsvörn í menntavísindum – Ólafur Örn Bragason

Doktorsvörn í menntavísindum – Ólafur Örn Bragason - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. ágúst 2026 13:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ólafur Örn Bragason ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands. Vörnin fer fram föstudaginn 14. ágúst 2026 kl. 13:00 í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands.

Ritgerðin ber heitið Fagþekking á krossgötum: Umbætur í lögreglumenntun og endurmótun þekkingar íslenskrar lögreglu.

Um doktorsritgerðina

Doktorsverkefnið fjallar um umbætur á lögreglumenntun á Íslandi eftir að grunnmenntun lögreglu var færð frá Lögregluskóla ríkisins til Háskólans á Akureyri árið 2016. Með þeirri breytingu varð lögreglunám að háskólanámi og nýjar kröfur komu fram um fagþekkingu, hæfni, fræðilega hugsun og tengsl náms við starfsvettvang lögreglu.

Í verkefninu er skoðað hvernig þessi breyting mótaði lögreglumenntun og hugmyndir um lögmæta þekkingu í íslenskri löggæslu. Rannsóknin byggist á fjórum samtengdum rannsóknarverkefnum og hafa niðurstöður hvers og eins þeirra birst í fræðigrein. Í þeirri fyrstu er orðræða stefnumótunargagna um umbæturnar greind, með áherslu á lögmætisrök, togstreitu og mótsagnir. Í annarri greininni er fjallað um hvernig sveigjanlegt háskólanám jók aðgengi að lögreglumenntun, útskrifuðum nemendum fjölgaði og mönnun og kynjahlutfall innan lögreglunnar breyttust. Í þriðju greininni er kannað hvernig lögreglunemar mátu hefðbundna og nýja hæfniþætti fyrir og eftir flutning námsins á háskólastig. Í fjórðu greininni er sjónum beint að nýbrautskráðum lögreglumönnum og því hvernig þeir samþætta fræðilega, reynslubundna og tengslabundna þekkingu í daglegu starfi.

Niðurstöður verkefnisins gefa til kynna að háskólavæðing lögreglumenntunar breyti ekki ein og sér lögreglumenningu eða starfsháttum lögreglu. Hún getur þó skapað mikilvæg skilyrði fyrir ígrundun, gagnrýna hugsun, fræðilega þekkingu og heildstæðari hæfni. Til þess að slíkar breytingar festist í sessi þarf lögreglan sem stofnun að styðja markvisst við þekkingarmiðlun, starfsþróun og lærdómsmenningu.

Verkefnið varpar ljósi á að fræðileg þekking og starfsreynsla þurfa ekki að standa sem andstæður í lögreglustarfi. Þvert á móti benda niðurstöðurnar til þess að fagmennska lögreglu byggist á samspili fræðilegrar þekkingar, reynslu, ígrundunar og hæfni til að takast á við fjölbreytt og oft flókin verkefni í samskiptum við almenning.

Um doktorsefnið

Ólafur Örn Bragason (f. 1978) lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2002, M.Sc.-gráðu í réttarsálfræði frá University of Surrey árið 2003 og námi í klínískri sálfræði til starfsréttinda við Háskóla Íslands árið 2004. Hann hlaut starfsleyfi sem sálfræðingur árið 2004 og sérfræðiviðurkenningu í réttarsálfræði árið 2012. Ólafur lauk jafnframt diplómu í háskólakennslufræðum frá Háskóla Íslands árið 2022.

Ólafur hefur starfað hjá embætti ríkislögreglustjóra frá árinu 2004, fyrst sem sálfræðingur við rannsóknir, síðar sem yfirmaður rannsókna og þróunar og frá árinu 2016 sem forstöðumaður Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu. Hann hefur jafnframt langa reynslu af háskólakennslu. Hann hefur kennt réttarsálfræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík og frá árinu 2016 komið að kennslu í lögreglunámi við Háskólann á Akureyri. Hann er jafnframt lektor við Rannsóknarsetur í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri.

Ólafur er giftur Ingibjörgu Ólafsdóttur og eiga þau börnin Tinnu Katrínu (f. 2008) og Darra Stein (f. 2012).

Andmælendur: Dr. Katja Hallenberg, Principal Lecturer in Policing við Canterbury Christ Church University í Englandi og Dr. Andrew Wooff, Associate Professor of Criminology við Edinburgh Napier University í Skotlandi.

Aðalleiðbeinandi: Dr. Guðrún Geirsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Meðleiðbeinandi: Dr. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor emerítus við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Doktorsnefnd: Auk leiðbeinenda sat í doktorsnefnd Dr. Marie-Louise Christina Damen, ráðgjafi við Kulturtanken í Noregi og Guðmundur Ævar Oddsson, prófessor við Háskólann á Akureyri.

Athöfninni stýrir: Dr. Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, varadeildarforseti Deildar menntunar og margbreytileika, Háskóla Íslands.

Öll eru velkomin.

Ólafur Örn Bragason ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands. Vörnin fer fram föstudaginn 14. ágúst 2026 kl. 13:00 í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Fagþekking á krossgötum: Umbætur í lögreglumenntun og endurmótun þekkingar íslenskrar lögreglu. Um doktorsritgerðina Doktorsverkefnið fjallar um umbætur á lögreglumenntun á Íslandi eftir að grunnmenntun lögreglu var færð frá Lögregluskóla ríkisins til Háskólans á Akureyri árið 2016. Með þeirri breytingu varð lögreglunám að háskólanámi og nýjar kröfur komu fram um fagþekkingu, hæfni, fræðilega hugsun og tengsl náms við starfsvettvang lögreglu. Í verkefninu er skoðað hvernig þessi breyting mótaði lögreglumenntun og hugmyndir um lögmæta þekkingu í íslenskri löggæslu. Rannsóknin byggist á fjórum samtengdum rannsóknarverkefnum og hafa niðurstöður hvers og eins þeirra birst í fræðigrein. Í þeirri fyrstu er orðræða stefnumótunargagna um umbæturnar greind, með áherslu á lögmætisrök, togstreitu og mótsagnir. Í annarri greininni er fjallað um hvernig sveigjanlegt háskólanám jók aðgengi að lögreglumenntun, útskrifuðum nemendum fjölgaði og mönnun og kynjahlutfall innan lögreglunnar breyttust. Í þriðju greininni er kannað hvernig lögreglunemar mátu hefðbundna og nýja hæfniþætti fyrir og eftir flutning námsins á háskólastig. Í fjórðu greininni er sjónum beint að nýbrautskráðum lögreglumönnum og því hvernig þeir samþætta fræðilega, reynslubundna og tengslabundna þekkingu í daglegu starfi. Niðurstöður verkefnisins gefa til kynna að háskólavæðing lögreglumenntunar breyti ekki ein og sér lögreglumenningu eða starfsháttum lögreglu. Hún getur þó skapað mikilvæg skilyrði fyrir ígrundun, gagnrýna hugsun, fræðilega þekkingu og heildstæðari hæfni. Til þess að slíkar breytingar festist í sessi þarf lögreglan sem stofnun að styðja markvisst við þekkingarmiðlun, starfsþróun og lærdómsmenningu. Verkefnið varpar ljósi á að fræðileg þekking og starfsreynsla þurfa ekki að standa sem andstæður í lögreglustarfi. Þvert á móti benda niðurstöðurnar til þess að fagmennska lögreglu byggist á samspili fræðilegrar þekkingar, reynslu, ígrundunar og hæfni til að takast á við fjölbreytt og oft flókin verkefni í samskiptum við almenning. Um doktorsefnið Ólafur Örn Bragason (f. 1978) lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2002, M.Sc.-gráðu í réttarsálfræði frá University of Surrey árið 2003 og námi í klínískri sálfræði til starfsréttinda við Háskóla Íslands árið 2004. Hann hlaut starfsleyfi sem sálfræðingur árið 2004 og sérfræðiviðurkenningu í réttarsálfræði árið 2012. Ólafur lauk jafnframt diplómu í háskólakennslufræðum frá Háskóla Íslands árið 2022. Ólafur hefur starfað hjá embætti ríkislögreglustjóra frá árinu 2004, fyrst sem sálfræðingur við rannsóknir, síðar sem yfirmaður rannsókna og þróunar og frá árinu 2016 sem forstöðumaður Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu. Hann hefur jafnframt langa reynslu af háskólakennslu. Hann hefur kennt réttarsálfræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík og frá árinu 2016 komið að kennslu í lögreglunámi við Háskólann á Akureyri. Hann er jafnframt lektor við Rannsóknarsetur í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri. Ólafur er giftur Ingibjörgu Ólafsdóttur og eiga þau börnin Tinnu Katrínu (f. 2008) og Darra Stein (f. 2012). Andmælendur: Dr. Katja Hallenberg, Principal Lecturer in Policing við Canterbury Christ Church University í Englandi og Dr. Andrew Wooff, Associate Professor of Criminology við Edinburgh Napier University í Skotlandi. Aðalleiðbeinandi: Dr. Guðrún Geirsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Meðleiðbeinandi: Dr. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor emerítus við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Doktorsnefnd: Auk leiðbeinenda sat í doktorsnefnd Dr. Marie-Louise Christina Damen, ráðgjafi við Kulturtanken í Noregi. Athöfninni stýrir: Dr. Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, varadeildarforseti Deildar menntunar og margbreytileika, Háskóla Íslands. Öll eru velkomin.

Doktorsvörn í menntavísindum – Ólafur Örn Bragason

Dagskrá

13:00 - 16:00
Doktorsvörn í menntavísindum – Ólafur Örn Bragason